Æskan

Árgangur

Æskan - 01.09.1976, Blaðsíða 21

Æskan - 01.09.1976, Blaðsíða 21
3 ^^pLskoska fjalllendinu er hérað sem Kintyre nefn- ist. Landið er þarna klettótt og illt yfirferðar. í Kyntyre eru nokkrar risastórar holur og gjótur sem roönnum hættir enn þann dag í dag til að villast í. Sú trú hefur frá alda öðli verið ríkjandi í Kintyre að langt niðri í þessum jarðhellum haldi undirheima- m til og þarna niðri séu dýrðlegar veislur haldnar ' glæsilegum, upplýstum veislusölum. Á tunglskinsbjörtum nóttum hefur fólk í Kintyre ftieira að segja þóst heyra undurfagran söng og hljóðfæraslátt upp úr gjótunum og eru þá verur und- |i'heimanna að skemmta sér og stíga dans. En eng- lnn má hætta sér of nálægt bústöðum undirheim- anna því þá á hann víst að hann hendi eitthvert ólán. Einu sinni bjó í Kintyre maður að nafni Alasdair. Hann var vinsæll og dáður meðal almennings fyrir Þa3 hve duglegur hann var að spila á belgpípu sína fyrir dansi sem gjarnan dunaði langt fram á nótt. Og var alkunna að enginn í öllu landinu gat leikið á belgpípu eins og Alasdair. Á einu slíku kvöldi þegar skemmtunin stóð sem hæst og Alasdair spilaði af hjartans list og betur en nokkru sinni áður, sagði hann: „Kæru vinir, nú ætla é9 að spila fyrir ykkur nýtt lag, sem er ennþá fallegra °9 betra en allt sem áður hefur heyrst. Meira að Se9ja tónlist undirheimabúa verður lítilfjörleg við hliðina á laginu mínu.“ Hann þreif síðan belgpípuna °9 ætlaði að fara að spila. Þessi talsmáti kom mönn- Urn mjög á óvart og var ekki frítt við, að menn yrðu Sripnir hræðslu. Menn vissu nefnilega að undirheima- búar þoldu ekki að gert væri lítið úr þeim á neinn hátt. Þess vegna sagði gamall bóndi, MacGrew að n9fni við Alasdair: „Góði vinur, taktu þessi orð aft- Ur> þú hefur fengið þér full mikið neðan í því og írnyndar þér þess vegna að þú sért duglegastur af °Hum. — En það er satt að þú spilar betur en aðrir, Sem til þekkist, en undirheimabúar þola ekki sllkan telsmáta. Tónlist þeirra ber af öllu öðru og engin ^annleg vera getur komið í hálfkvisti við þá!“ . En Aalasdair sat við sinn keip. Hann sagði: „Eng- 'nn spilar betur en ég! Ég skal sýna ykkur það! Nú 1 nótt ætla ég að ganga um dalinn þar sem hellarnir eru og blása f belgpípuna mína og sannið þið til, mig mun ekkert ólán henda!“ Við þetta svar urðu, allir orðlausir. Menn skildu að Alasdair meinti hvert orð og hann ætlaði raun- verulega að bjóða verum undirheimanna byrginn. Og hann tók belgpípuna og spilaði fegursta lag, sem fólk hafði nokkurn tíma heyrt. Það var sem það heyrði bylgjurnar gjálfra við klettana, þyt vindsins í trjánum, kyrrlátan nið árinnar og fuglasöng loftsins. Allir, sem á hlýddu héldu niðri í sér andanum og stóðu grafkyrrir. Enginn hafði nokkru sinni heyrt nokkuð þessu líkt. Og Alasdair hélt áfram að spila. Hann stóð upp, gekk út úr húsinu og tók stefnu að jarðhellunum. Allir veislugestirnir fylgdu á eftir honum, þar til hann kom að stóru gjótunni, sem lá að bústöðum undir- heimafólksins. — Þorði hann að halda áfram? Alasdair lét sér hvergi bregða, hann spilaði sem mest hann mátti og hélt ótrauður áfram. Fólkið stóð lengi og beið, alveg fram á morgun og vonaðist það til að sjá hann aftur. En Alasdair kom ekki til baka. Menn kölluðu á hann en enginn svaraði. Og enginn þorði að fara niður f gjótuna. Þannig hvarf Alasdair fyrir fullt og allt. Og allir söknuðu hins dugléga belgpípuleikara. Nótt eina löngu seinna vaknaði MacGrew og heyrði greinilega spilað á belgpípu. Konan hans vaknaði líka. „Heyrirðu þetta," hvíslaði hún, „þetta er Alasdair." MacGrew hljóp út og í þokunni þóttist han geta greint mann með belgpípu. Var það Alas- dair, Hann kallaði nafn hans, en maðurinn hvarf, en ómur belgpípunnar heyrðist lengi á eftir. Enn þann dag í dag er sagt að annað slagið megi heyra Alasdair spila á belgpípuna sína að næturlagi í Kyntire. /i" w ík' •* * ^SKAN - Það munar um hvern

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.