Kyndill - 01.03.1934, Blaðsíða 11

Kyndill - 01.03.1934, Blaðsíða 11
Ríkisauðvald rikisrekstur Kyndill liti ríkisstjórnanna i 23 ríkjum. 10 ríki höföu takmarkaö innflutning. í 5 ríkjum var öll utanrikisverzluri i hönd- um ríkisins. Síöan hefir rikisvaldið í flestum löndum gert meiri og minni ráðstafanir, tekið fram fyrir hend- urnar á einka-auðvaldinu á ýmsum sviðum. Allir kann- ast t. d. við „viðneisnarstarf“ Roosevelts í Bandaríkjun- um, — þessu Gósenlandi auðmagnsins og einstaklings- hyggjunnar. — Hefði þótt fyrirsögn fyrir 3 árum síðan, að Bandaríkjaforseti og landsstjórn mundu taka svo sterkt í taumana, sem raun ber vitni. í Þýzkalandi er jafnvei talað um 5 ára áætlun af sjálfu auðvaldinu. Vitanlega myndi þvílík skipulagning hafa í för með sér stórum aukin áhrif ríkisvaldsins á hið „frjálsa" atvinnulíf, þótt fyrir frummælendum þessa vaki fyrst og fremst hagsmunir auðvaldsins. í Danmörku hefir ríkið sérstaka gengisstofnun, sem grípur inn á fyrri valdsvið einka-auðvaldsins og skerðir réttindi þess á ýmsan hátt, jafnvel enn frekar en á stríðsárunum, þegar þó voru gerðar ýmsar neyðar- ráðstafanir. Gjaldeyris- og gengis-nefndin danska stjórn- ar og skipuleggur út frá sjónarmiðum ríkisins, en slikt þýðir í framkvæmdinni að tekið er meira tillit en áður til hagsmuna fjöldans — þjóðarinnar í heild. En jafnhliða því, sem borgaraflokkarnir ganga með í því að koma þessum ráðstöfunum í kring vegna knýj- andi nauðsynjar, reyna þeir að talunarka slíkiar ráðstaf- anir og skera þeim svo þröngan stakk, sem unnt er„ en verkalýðurinn hefir algeriega andstæða skoðun hvað þetta snertir. Má nefna fjölda dæma þessu til sönnunar.

x

Kyndill

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kyndill
https://timarit.is/publication/386

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.