Sameining alþýðunnar - 01.05.1938, Blaðsíða 23

Sameining alþýðunnar - 01.05.1938, Blaðsíða 23
Sameining alþýðimnar 21 höfuðstaðnum og bæjum víðs vegar um landið liefir þó verið mjög ör hin síð- ustu árin. Eflaust eiga innflutnin-sh' ft- in nokkurn þát,t í þessum öra vexti, ekki þó svo að skilja, að kaupfélögun- um hafi verið ívilnað um innflutnings- leyfi öðrum verzlunum fremur, nema síður sé, heldur vegna þess, að heild- salar ag kaupmenn hafa »ihagnýtt« sér innflutiningshöftin á þann hátt, að þeir hafa hækkað vöruverðið úr hófi fram, og hefir því kaupfélögunum reynzt auð- veldara en ella að sýna fólkinu yfir- burð: sína. Það má fullyrða, að ka,upfé- lög kaupstaðanna hafa, síðan innflutn- ingshöftunum var komið á, sparað yfir- gnæfandi meiri hlufa þjcðarinnar millj- ónir króna, bæði með því að selja neyzlu- vörur neðan við almennt kaupmanna- verð og eins með því að knýja fram lækkun á verði kaupmanna. Hefði kaup- félaganna ekki notið, hefðu heildsalar og kaupmenn óáreittir getað verðlagt nauð- synjar fólksins eftir eigin geðþótta. Hyrningarsteinn kaupfélaganna, eins og allra. alþýðusamtaka, er lýðræðið: Jafn réttur félagsmanna, án tillits til efnahags og viðskipta. Sé þessi megin- regla kaupfélaganna, brat'n, hlýtur það að hefta viðgang félaganna og verða til- efni sundrungar. Kaupfélögin eru það víðfeðmiari en v.erklýðsfélögin, að þau geta, auk verkafóiksiins, sameinað milli- stéttina í félögunum, þar sem hún finn- ur hagsmuni sína tengda hagsmunum verkalýðsins í neytendamálum. Verndun lýðræöis og lýðfrelsis er því sameigin- legt áhugamál allra sannra samvirnu- manna. 1. maí munu samvinnumenn því. fylkja sér undir merki siamfylking- arinnar og styðja, með því meginkröíur hennar, sem eru cskorað frelsi til sam- taka fyrir bættum kjörum. Ólafur H. Einarsson: FRELSI Það er til fólk í þessu landi, sem virð- ist vera eitthvað óánirgt með hið marg- rómaða frelsi, sem þjóðin endurheimti fyrir nærri 20 árum., Þettia fólk á það til að benda, á framleðslutæki þjóðar- innar, sem eru þó, þegar öllu er á botn- inn hvolft, einn sýnilegasti ávöxtur vors 20 ára frelsis: og siegja: »Eg á ekki þessa bundnu togara; ef ég ætti, þá ag réði þeim, þá varu þeir ekki bundnir við garðinn. Ég á ekki þesisar verksmiðjur, vélar og verkfæri, ég á ekkert af þessum eianum, þjóðar- innar, og ég er ófrjáls í land', sem er mér ófrjálst, inna.n um framleiðslut rki, sem eru mér ófrjá’s. Ég heH, að fre’sið sé ekki, alveg fengið enn«: Svo talar þetta fólk um, að það sé meiri hluti þjóðarinnar og þurí'i ekki annað en hópa sig saman til að skapa nýt.t frelsi, sem ekkert fordæmi virðist eiga í sögunni.

x

Sameining alþýðunnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameining alþýðunnar
https://timarit.is/publication/397

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.