Hljómlistin - 01.04.1913, Blaðsíða 13

Hljómlistin - 01.04.1913, Blaðsíða 13
HLJÓMLISAIN 59 til kirkjubyggingar og þá var leikið um vet- urinn til ágóða fyrir hana. Jafnvel veturinn 1877—78 var farið að hugsa um að fá orgel í hina nýju kirkju. I3á var »Leikfélag Stykk- ishólms« stofnað. Líka var þá stofnað söng- félag er þeir Sveinn Jónsson, Guðmundur Guðmundsson og Olafur Thorlacius gengust fyrir. Guðmundur var söngkennari, þar lil hann fór suður á land 1888. Að þeim tíma var söngfélagið við og við allt af starfandi. Tilgangur söngfélagsins var i fyrstu sá, að lialda uppi söng milli þátta, er leikið var. 1879 um liaustið, var hin nýja, fyrsta kirkja hér vígð og var þá harmoníum lánað í kirkj- una þann dag. 1883 var kirkjan búin að eignast orgel. Var bæði sungið opinbeilega til þess og á annan liátl safnað fé. Lika var sungið opin- berlega til þess að kaupa tvo dýra kerta- sljaka í kirkjuna. 1883 var hljóðfæri keypt í kirkjuna. 1903 var það selt og keypl annað, er Ágúst íaktor Þórarinsson útvegaði1 *). Og nú er enn í ráði að fá nýlt og gotl orgel í kirkjuna, þar eð hljóðfærið frá 1903 er mjög óhenlugt og lítt hafandi. Mun Ágúst Þórarinsson einnig sjá um þau kaup. Organistar liafa verið þessir: Sveinbjörn Hjallalín, frú Magdalena Hall- dórsson, Hallgrímur Jónsson, Jósef H. Jóns- son og frú Kristín Sveinsdóttir, sem hefir haft þann starfa á liendi siðan árið 1898 og hefir enn í dag. Þegar Hallgrímur Jónsson var liér organ- leikari reyndi hann að koma á Söngfélagi að nýju, en varð lítið úr. Frú Kristín hefir haldið uppi söng við og við, og lagt sig fram að liafa kirkjusönginn í góðu lagi. Og ávalt æfður fjórraddaður söngur fyrir hátíðir. Hátíðasöngvar Bjarna Porsteinssonar hafa og verið sungnir nokkr- um sinnum, í kirkjunni. Baldvin Bárðdal hefir líka nú í seinni tíð 1) Pað fé, sem var þá í höndum, takmarkaði orgelkaupin. reynt að sýna viðleítni til þess að halda uppi samsöng, og hefir slofnað söngfélag að nafni »Gígjan«, í því skyni, en hefir átt erfitt upp- dráttar. Sami organisti hér og á Helgafelli. Það sem lútir að söng í Helgafellskirkju, er það að segja: Litlu fyrir 1898 var keypt orgel í kirkjuna. Spilaði Jósef H. Jónsson fyrst á það og svo frú Kristin síðan. í Bjarnarhöfn er nýlega komið orgel (í líð séra Jóns Magnússonar). t*eir liafa spilað á það synir séra Jóns. En nú spilar þar ung- írú Petrína Sæmundsdóttir á Seljum. Þess skal geta að það sem lútir að kirkju- söng hér i sveitinni, verður maður að álykta að hann sé mikið á eftir tímanum, eins og mun vera alment í sveitum, það hefir verið svo afar-erfitt að fá fólk til þess að taka þátt í honum. Það gera staðhættirnir og nú fólks- fæðin. Menn syngja, sinn í hvert skifti, með organistanum. B. B. Bréfkaflar. ii. Frá Hornaiirði. — — — »í Bjarnaneskirkju hefir verið harmóníum síðan um aldamót síðustu (1900) en enginn sérstakur organleikari. Síðasta ár var þó ekkert hljóðfæri haft, og stafar það ai' því að kirkjan er nýbygð og gamla hljóðfærið var altof lítið i liina nýju, en fjeþröng að hinu leitinu, samt er nú farið að efna til samskota fyrir orgel og vonast maður því eftir að í sumar komi gotl hljóð- færi i kirkjuna. — Söngfélag er hér ekkert og hefir aldrei verið svo því sé nafn gef- andi. Að vísu æfðu fáir menn nokkur lög i fyrra vetur, en því miður getur lítið lag orðið á þvi sökum þess að kennarann vantar. — Hér i Austur-Skaftafellssýslunni eru að eins lil 10 harmónía, en svo fá sem þau eru, þá eru þeir þó færri, sem geta leikið á þau, því þeir geta ekki talist nema

x

Hljómlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hljómlistin
https://timarit.is/publication/435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.