Kirkjuritið - 01.06.1960, Blaðsíða 25

Kirkjuritið - 01.06.1960, Blaðsíða 25
Gaulverjabœr í Flóa. Erindi flutt í tilefni af 50 ára afmæli Gaulverjabæjarkirkju 8. nóvember 1959. Gaulverjabær í Flóa kemur mjög snemma við sögu. Hann er landnámsjörð Lofts hins gamla Ormssonar, en frá honum er sagt í Landnámu. Loftur kom ungur að aldri til Islands af Gaulum. Hallveig kona Ingólfs, fyrsta landnámsmannsins, var föðursystir Lofts, svo að auðrakið er, hver muni hafa haft áhrif á Loft til íslandsferðar. Loftur hefur verið trúmaður á heiðna vísu. Sagt er, að hann hafi farið til blóta í Noregi þriðja hvert ár, en vera má, að förin hafi einnig verið til kaupskapar, því að Loftur var far- maður. Gaman er að athuga, að a. m. k. fjórir bæir í Árness- þingi bera glöggt vitni norskum uppruna manna þeirra, er þá hyggðu, Gaulverjabær og þrír Vorsabæir, í Flóa, á Skeiðum °g Ölfusi. Frá Lofti landnámsmanni og konu hans eru komin ýmis stór- menn, þau helztu, sem getið er, eru Þorlákur biskup Þórhalls- s°n hinn helgi í Skálholti 1178—1193, Páll biskup Jónsson í Skálholti 1195—1211, og Brandur Sæmundsson biskup á Hól- Um 1163—1201. Álitið er, að niðjar Lofts hafi svo búið áfram í Gaulverjabæ, en fáar sagnir og engar sögur, svo að vitað sé, eru tengdar við Þú. Þess vegna eru frekar litlar heimildir um það, sem gerist í Gaulverjabæ fram yfir kristnitöku. Flest rök hníga að því, að kirkja hafi snemma verið reist í Gaulverjabæ, jafnvel að Gaulverjabær hafi verið prestssetur og kirkjustaður frá önd- Verðri kristni. Máldagar kirkjunnar eru að vísu ekki kunnir, fyrr en frá dögum Þorláks biskups helga. í kirknatali Páls hiskups Jónssonar frá því um 1200 er örugglega getið um kirkju í Gaulverjabæ. Á því tímabili þá þegar er staðurinn all- nkur bæði að jörðum og gangandi fé. Samkvæmt Wilchins- rnáldaga, frá 1397, var kirkjan í Gaulverjabæ helguð heilagri ^íaríu guðsmóður. í sama máldaga er sagt frá bænhúsum og

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.