Dagfari - 01.12.1944, Blaðsíða 1

Dagfari - 01.12.1944, Blaðsíða 1
Ritstjórn og útgáju annast: Sverrir Haraldsson, VI. M., og Steingrímur SigurSsson, kennari. AVARP Um leið og Dagfari leggur af stað út í lífið, þykir oss lilýða að fylgja lionum úr hlaði með fáeinum orðum. Það hefir viljað hrenna við meðal nemenda Menntaskólans á /lkureyri, að þeir liafa haft lítinn áhuga á að búa skólablað sitt vel úr garði, og oft hefir Muninn flogið út í heiminn verr fleygur en skyldi. Slíkt er vítavert. Vér eigum að sjá sóma vorn í því, að veita skólablaði voru þolanlegt vega- nesti. Við eigum að gera okkur það Ijóst, að það er hluti af oss sjálfum, og að nekt þess er blettur á oss. Aðal-fyr- irsláttur nemenda hefir verið sá, að þeir geti ekki skrifað, svo að sóma- samlegt sé. Slíka fjarstæðu tökum vér ekki til greina. Vér trúum því ekki, að í þrjú hundruð manna hóp leynist ekki rnargir, sem geta fært hugsanir sínar í letur og kastað fram stöku, þegar svo ber undir. Og hví ekki að veita skólablaðinu sínu aðstoð í þeim efnum, þegar þörf gerist? Höfuð-tak- markið, sem Dagfari hyggst að keppa að,er að glœða áhuga nemenda á því,að þjálfa sig í ritleikni og auka fegurð- artilfinningu þeirra á bundnu máli og óbundnu. Enn þá er hann ungur að- ár- um og reynslulaus nleð öllu, en engu að síður bjartsýnn á framtíðina. Vonir lians eru fleygar, og hann treystir á að- stoð og skilning allra góðra drengja og meyja,og vonar,að þau munistyðja sig yfir þœr torfærur, sem kunna að mæta honum, er hann leggur í hina fyrstu ferð sína út í lífið. Látið hann ekki þurfa að knýja að dyrurti og kyssa á kjólfald ykkar í leit eftir aðstoð. Gefið ykkur fram, ef þið liafið eitthvað að bjóða, og það verður allt vel þegið. Hver staka, hver grein og hvert ritað orð, þótt gert væri af vanefnutn, rnun verða flugfjöður, sem léttir lionum flugið yfir „örðug- asta hjallann“. Sú er von okkar, að lítgáfa blaðs þessa skapi ekkert sundurlyndi meðal nemenda. Muninn og Dagfari eru og eiga að vera bræður, sem keppa að sama marki. Aðeins líminri sker úrþví, hvort áhugi nemenda eykst við það, að blöðin eru tvö, því að við það skapast eins konar samkeppni milli blaðanna. jafnvel þó að full vinsemd ríki milli þeirra um að ná fyrr hinu setta marki. Nemendur Menntaskólans á Akur- eyri! Sýnið nú, að ykkur veitist auð- velt að búa þessi tvö skólablöð það vel úr garði, að þau ekki ferðist meðal ykkar, vafin tötrum sem beiningamenn og stafkarlar. Ósk vor er: Almenn þátttaka sveina og meyja skólans í því, að veita blöð- ÍSLENZK ÆSKA Landið frægsta ljóða og sagna, leyndra vætta og kynngi magna, landið ótal gæða og gagna, grundin Islands frið. Aldrei skal þinn orðstír þagna alla heimsins tíð. íslenzk æska! Vertu á verði. Varaðu þig á „Hrappi“ og „Merði“. Byggðu voldugt varnargerði um velferð sérhvers manris. Gæt þess enginn arf þinn skerði, auð þíns fósturlands. Heimurinn berst af hatri og níði. Heilar þjóðir lýstar kvíði. Þú átt líka í þínu stríði, þreyttu fyrir bættum hag. Fyrir að þín lífssól líði lengra yfir þroskans dag. LArlQSBÓKASAFN ,\s 156373 ÍSLANDS um þessurn aðstoð sína með j>ví, að senda ]>eim efni til birtingar, þegar þörf er á. Takist þetta, er markinu náð. Sverrir Haraldsson. Vopn þín eru viljafesta, vit og trú á allt það bezta. Sóknarþrek og sigur mesta, samtök allra ljá. Sinni för mun sá ei fresta, sem vill marki ná. Æska! Lærðu af landsins sögum. Lestu gnótt af dýrum brögum. Skuggsjá þar af þjóðarhögum þú munt gleggsta fá.. Fósturland vort fegri dögum fagna lætur þá. Þú átt landsins gögn og gæði, • gamla menningu og fræði, sem þú átt að efla bæði og vort tungumál. Andans þroska þinn svo glæði þjóðarinnar sál. Sællífið er svikum blandið. Sókn þarf til að forðast grandið. Til að efla bræðra-bandið, berjast heil þú skalt, fyrir þig og fvrir landið, fyrir lífið allt. Kári frá Hvoli. STÉTTASKIPTING. Brot Líkaminn líkist ríki, og lík er skipting enn. Hendurnar ambáttir eru, en andinn er förumenn. Munnurinn birðstarfið hefir og heimtir skattana inn. Maginn, sem öllu eyðir, er auðvitað keisarinn. Kári frá Hvoli.

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/452

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.