Vörður - 01.01.1918, Blaðsíða 2

Vörður - 01.01.1918, Blaðsíða 2
2Ó VÖRÐUR Samverkamönnum hennar er kunnugt, aö þetta er réttilega mælt. Frú Anna tók mikinn þátt í félagslífi kennara og naut trausts þeirra. Heimili þeirra hjóna var fyrirmyndarheimili. Var frúin einstök móöir og húsfreyja. Bera börn hennar ljósastan vott þess, hvernig uppeldi þeirra var, enda voru báðir foreldrarnir svo einstaklega samtaka í uppeldisstarfinu. H. J. „Þ i ngs dly ktu n um uppeldismdl. Samþykt í neðri deifd alþingis 7. sept. 1917. Neðri deild alþingis skorar á stjórnina a'S rannsaka uppeldismálakerfi og athuga þetta: x. Hvort eigi mundi réttara að láta skólaskyldu koma á menn 16—20 ára, en láta þó foreldra og héruö sjá fyrir J)ví, aö börn hafi tilskilda Jxekking undir staö- festinguna, en landiö kosti ekki annaö viö þá kenslu en éftirlit nxeö prófum.“ Ólíklegt er aö þing íslendinga fallist á aö færa skóla- skyldu á árin 16—20. Myndi þaö síst veröa til bóta. Ætti aö veröa nokkuö vit í slíku, yröi sú skólaskylda aö haldast, sem nú er. Væri henni létt af, kæmu 16 ára unglingarnir ólæsir, óskrifandi og viltir í skólana. Reynslan myndi veröa sú, aö allur fjöldi heimila, eink- um í kauptúnum, myndi algerlega vanrækja uppeldi barn- anna. Ákvæöi um eftirlit meö prófum bætti ekki úr þessu.

x

Vörður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vörður
https://timarit.is/publication/518

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.