Skátinn - 01.01.1914, Blaðsíða 1

Skátinn - 01.01.1914, Blaðsíða 1
SkátaFélagReykjavíkur. Skátafélag Reykjavíkur er stofn- að 2. nóvember 1912, með 30 meðlimum. Aðalyfirmaður þess er Sigurjón Pétursson. Félagið er grein af „The Boy-Scouts World Wide Brotherhood," sem stofnað er í London í júlí 1907 af Lieut., Gen. Sir Robert Baden- Powell. K. V. B. Sömu reglur gilda fyrir með- limi S. F. R„ sem aðra meðlimi skáta-sambandsins. þær eru þessar: 1. Orð skáta eru áreiðanleg. þess vegnamá hann ekki vanrækja að inna þau störf af hendi, sem hann hefir lagt við drengskap sinn, né vinna þau í flaustri. Ef skátaforingi (flokksforingi, sveitarforingi o. s. frv.), segir við skáta: „þú leggur við dreng- skap þinn, að þetta verði gert“, þá á skátinn að leitast við af fremsta megni að framkvæma skip- unina svo vel sem hægt er, án þess að láta nokkuð aftra sér frá því. Ef skáti vanvirðir sig með því að ljúga eða framkvæmir ekki til hlítar skipun þá, er hann hefir fengið, að viðlögðum ærumissi, er honum vikið úr flokknum, missir skátamerki sitt og fær ekki inntöku aftur. 2. Skáti er trúr við konung sinn, foreldra sína og yfirmenn. Hann veitir þeim fylgi í blíðu og stríðu, á móti óvinum þeirra og þeim, er dirfast að tala illa um þá. 3. það er ein af aðalskyldum skátans að gagna og hjálpa öðrum. Hann metur skyldu sína mest af öllu og hirðir ekki um, þótt hann verði fyrir þá sök af skemtunum eða hagsmunum, jafn- vel þótt líf hans liggi við. 4. Skátinn er vingjarnlegur

x

Skátinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátinn
https://timarit.is/publication/526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.