Tíminn - 24.12.1978, Blaðsíða 13

Tíminn - 24.12.1978, Blaðsíða 13
 V „ IÓLAPÓSTURINN „ #> ■ 13 -t. Hvítlaukspylsa með spínati og gulmtum 500 g GOÐA-pylsa, t.d. Óðals- eða Reykt Medister 1 lítið hvítlauksrif 1 msk smjör ■ 150 g ostur 2 msk stcinselja spínat gulreetur p KKkF Mataruppskriftir Til þess að hinfjölbreytta GOÐA-jramleiðsla komi neytendwn að sem bestum notum höfwn við nú hafið útgáfu uppskrifta. Og tilaðauðvelda húsmœðrumaðhalda þessari útgáfu tilhaga er fáanleg lausblaðabók jyrirþær. Þaðsemáðurhejúrkomið út, verður endurprentað smátt og smátt, þannig að þaðjalli irm í sajhið. RÁÐ og RÉTTIR eiga érindi til allra þeirra er kunm að meta góðan mat. Spytjið um Rað og rétti í nœstu matvömbúð Afurðasala Kjötiðnaðarstöð Síminn hjá lækninum hringdi ofboðslega. Læknirinn, sem var einn af þessum pókerandlitslækn- um, er láta sér ekki bregða, þó um svarta- dauða sé að ræða, lét sér auðvitað hvergi bregða. Hann lét símann glymja svolítið, síðan tók hann tól- ið upp. Maðurinn hinum megin var í óskaplegri geðs- hræringu og var heila ei- lífð að kynna sig. Læknir- inn beið rólegur og spurði svo af hræsnislegri still- ingu, hvað væri að? —Það, það er hann sonur minn, hann er búinn...hann er kominn með... hann er lagstur í s.karlatssótt! æpti röddin. — Svoooooo, sagði lækn- irinn, og hugsaði sig um. — Heyrðu, ég kom einmitt í morgun og gaf honum pillur, og nú verður hann bara að vera einangr- aður... — Það er einmitt það sem að er, greip hinn end- inn fram í fyrir lækninum, og var sízt rólegri, — strákurinn asnaðist til að kyssa vinnustúlkuna. — Jæja, sagði læknirinn og hafði svo sem séð það svartara, þá er ég hræddur um að hún þurfi að fara í sóttkví líka í nokkra daga, og svo skal ég... — Já, en ástandið er miklu verra, þetta er sko alvarlegt mál, læknir, það versta er enn eftir, ÉG er búinn að kyssa vinnusttílk- una líka —l hrópaði röddin svo hátt, að tólið skalf í hendi læknisins. En doktor lét sér hvergi bregða, og sagði með stillingu, sem hann hefði mátt fá Falka- orðuna fyrir: —Svona nú, maður minn, það er engin ástæða til að skelfast, og hlustaðu nú á, hvað ég segi. Farðu strax í rúmið, og ég kem eftir augnablik með lyf handa þér, og svo þarftu aðeins að halda kyrru fyrir í nokkra daga... —En það er ekki ailt bú- ið, sagði sjúklingurinn há- grátandi af geðshræringu. ÉG er búinn að kyssa kon- una mína! —Hvern þremilinn ertu að segja maður, sagði læknirinn, og var nú öll ró og stilling horfin á hálfu augnabliki, — hvert þó í þreifandi, þríkrossaðan, þremilinn ertu að segja! Og hvers vegna í hvítgló- andi heitasta, hurðarlausu, hoppandi, heklugjósandi heimili he'ðankvaddra hrossaþjófa gaztu ekki sagt þetta fyrr, maður! — Nú fæ ég bölvaða pestina líka! Skrýtlur „Kæri vinur”, sagði eiginkon- an, ,,mér þykir reglulega leiðin- legt, að ég skyldi gleyma afmælisdeginum þinum i fyrra mánuði. — Eiginlega ætti ég skil- ið að þú gleymdir minum, sem er á morgun”. Hvorugur bibliufastur! Eftir siðustu heimsstyrjöld voru oft heitar umræður i norska Stórþinginu útaf uppgjöri við hina meintu föðurlandssvikara. Einn bændaflokksmaðurinn vildi fara vægt i sakirnar: „Persónulega vil ég ekki berja mér á brjóst, eins og fariseinn”. Hambro þingforseti greip þá fram i: ,,Ég vil áminna hæstvirt- an þingmann um að fara rétt með staðreyndir. Það var alls ekki fariseinn, sem barði sér á brjóst. Það var tollheimtumaðurinn, og hann sagði: „Guð vertu mér aumum syndara liknsamur!” Gesturinn sá flugu i súpunni sinni og kallaði á þjónimí og spurði: Hvað er þessi fluga að gera i súpunni?” Þjónr.inn leit andartak á flug- una og sagði siðan: „Mér sýnist hún vera að æfa baksund, herra minn”. Frá nyrstu herstöðvum US Navy á útkjálka Norður-Alaska er þessi skrýtla sögð: Yfirsig hraustur nýliði i hern- um óskaði að fá inngöngu i her- deild úrvals útvarðasveitanna, skilyrðin fyrir upptöku voru þessi: 1) að drekka úr heilli viskýflösku á tíu minútum, 2) að skjóta lifandi isbjörn, 3) að kyssa Eskimóastólku. Hinn hrausti nýliði drakk úr viskýflöskunni á átta minútum og slagaði siðan af stað til afrek- anna. Eftir 36 klukkustundir kom hann aftur slangrandi, en nú hálf- meðvitundarlaus með sundurrifin fötin og blæðandi úr mörgum sár- um. Sigri hrósandi leit hann i kringum sig i hópnum og sagöi: „Jæja, drengir, hvar er svo kvenmaðurinn sem ég á að skjóta?” Til jólagjafa: Tvískiptir barnagallar Skíðagallar - allar stærðir Mittisúlpur - allar stærðir Glæsilegt litaúrval BLÁFELDUR S/F Síðumúla 31 - Sími 30757

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.