Blanda - 01.01.1923, Blaðsíða 74
úþpbyggilega í einu.“ Þrátt íyrir þeniian ýmigust
blómguðust klúbbarnir yel, og enginn þótti reyndar
maður með mönnum, uema hann væri i einhverjum klúbb.
Það var því eðlilegt, þótt heldri borgarar þessa bæjar,
einkum hinir döusku, sem þektu ldúbblíf annarsstaðar
frá, söknuðu þeirra hér. Þeir stofnuðu því „k]úbselskab“
árið 1805. Formenn voru Ole Biör.o, sjálfur lögreglu-
þjónninn, og Jokannes Zoéga elzti tugtmeistari, en með-
limirnir voru Hr. Sysselmand S. Guðlaugsen, þ. e.
Sigurður Guðlaugsson stúdent, er um tíma var settur
sýslumaður í Snæfellsnessýslu, H. Kragh lögreglu-
þjónn, því að Noldte var skamma stund hér, N. Sívertsen,
þ. e.KikulásSigurðsson verzlunarmaður, J. Bergström, þ.
e. Jón Bergström sigldur snikkari, og þótti afbragðs smið-
ur, en nokkuð drykkfeldur, og lenti síðar ásveit. Hjáhon-
um lærði Diðrik Knudsen, sem beztur smiður þótti hér
í bæ um miðbik síðustu aldar. B. Lundberg þ. e.
Bjarni Guðmundsson, sýslumanns i Gullbringusýslu
Bunólfssonar; hann var járnsmiður, og hafði numið
erlendis, og átti dgnska konu, er Anna Neumann hét,
H. Rickdal norskur skómakari, hét fullu nafni Hans
Wingaard Richdal; dóttir lians var Kristjana móðir
Sigurðar kaupmanns Sæmundssonar og þeirra systkina.
Annars lagði gamli Richdal gjörva hönd á alt mögu-
legf, og var við raargt riðinn hér í kaupstaðnum nokk-
ur ár, E. Jonsson studiosus, þ. e. Einar stúdent og
faktor Jónsson, tengdafaðir Jóns Sigurðssonar, og loks
hr. Riis og hr. Ealck, danskir verzlunarmenn, er voru
hér stutt. Þetta voru stofnendur, en siðar bættust ýms-
ir við. Ekki var Frydensberg gefið um þennan félags-
skap, þó að annar lögregluþjónn hans væri formaður, enda
var þetta ekkert annað en spila- og drykkjusamkoma,
er hélt íundi þrisvar í viku, sunnudag, þriðjudag og
fimtudag. Gerðu meðlimirnir opt ýmsar óspektir, er þeir
fóru heim á næturnar, t. d. með því að taka gluggahlera