Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1975, Blaðsíða 41

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1975, Blaðsíða 41
Ávíð oií dreif EMBÆTTAVEITINGAR í STJÓRNARRÁÐINU Safnaö heflr verið upplýsingum um embættaveitingar í stjórnarráðinu frá 1. janúar 1973 til 1. október 1975. Skráin hér á eftir nær aðeins til lög- fræðinga og aðeins til deildarstjóra, sendifullltrúa, skrifstofustjóra og ráðu- neytisstjóra. Getið er, ef lögfræðingar hafa verið settir í embætti. Forsætisráðuneytið. Björn Bjarnason var sklipaður skrifstofustjóri hinn 16. september 1975 frá þeim degi að telja. Hann var settur deildarstjóri 25. október 1974 og skipaður deildarstjóri 14. maí 1975 frá þeim dögum að telja. Björn hafði verið blaðamaður um skeið, áður en hann hóf störf í ráðu- neytinu. Utanríkisráðuneytið. Hannes Hafstein var skipaður sendifulltrúi 15. ágúst 1974 frá þeim degi. Sverrir Haukur Gunnlaugsson var settur deildarstjóri 1. október 1974 frá þeim degi. Landbúnaðarráðuneytið. Gunnlaugur Briem fékk lausn frá embætti ráðu- neytisstjóra 30. apríl 1973 frá 1. júlí þ. á. að telja. Sveinbjörn Dagfinnsson var skipaður ráðuneytisstjóri 30. apríl 1973 frá 1. júlí. Auk hans sóttu um embættið Ásgeir Pétursson, dr. Björn Sigurbjörnsson náttúrufræðingur, Héð- inn Finnbogason og Sigurgeir Jónsson. Félagsmáiaráðuneytið. Hinn 30. apríl 1973 fékk Hjálmar Vilhjálmsson lausn frá embætti ráðuneytisstjóra frá 1. júlí þ.á. Hjálmar var sæmdur stór- riddarakrossi fálkaoðunnar 17. júní 1973. Hallgrímur Dalberg var skipaður ráðuneytisstjóri 5. júní 1973 frá 1. júlí. Auk hans sótti Árni Guðjónsson hrl. um embættið. Jón S. Ólafsson var skipaður skrifstofustjóri 4. júlí 1973 frá 1. sama mánaðar. Guðmundur Karl Jónsson var skipaður deildarstjóri 24. júlí 1974 frá 1. ágúst. Jón Sigurpálsson var skipaður deildarstjóri 16. nóvem- ber 1974 frá 1. desember. Fjármálaráðuneytið. Þorsteinn Geirsson, sem skipaður hafði verið deildar- stjóri launadeildar frá 1. janúar 1973, var settur skrifstofustjóri frá 1. ágúst 1974 með bréfi 18. júlí það ár. Höskuldur Jónsson viðskiptafræðingur var þá settur ráðuneytisstjóri, en Jón Sigurðsson fékk leyfi frá því embætti til að gegna starfi fulltrúa Norðurlanda í bankaráði Alþjóðabankans í Washing- ton. Jón tók við því starfi 1. nóvember 1974 og er kjörinn til þess til tveggja ára. Gunnlaugur Claessen var settur deildarstjóri eigna- og málflutningsdeildar frá 1. október með bréfi 7. október. Viðskiptaráðuneytið. Hinn 10. júní 1974 var Yngvi Ólafsson skipaður deildar- stjóri frá 15. maí að telja. Hann var sýslumaður í Dalasýslu 1965—1974, en hafði áður starfað í ráðuneytinu frá 1948, sem deildarstjóri frá 1958. 87

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.