Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 32
28
BÚNAÐARRIT.
sökum vatnsrenslis og annara óþæginda. Sáð var gul-
rófum (íslenzkum, norskum og dönskum), nokkrum kál-
tegundum o. fl.
Óblíða náttúrunnar hefir lamað starfsemina i stöð-
mni að miklum mun, bæði hindrað sáningu á hæfilegum
tíma, og eftir að sáð var dregið úr eðlilegri framför.
En svo bættist við, að ómögulegt reyndist að fá fluttan
nokkurn tilbúinn áburð í vor, eins og að undanförnu, en
húsdýraáburður lítill og lélegur heima. Þetta í sam-
einingu hefir orsakað, að allur gróður hefir orðið lítill,
og sumar fyrirskipaðar tilraunir ómögulegar með öllu,
svo sem áburðartilraunir. Nýyrkjutilraunir þær, sem
byrjað var á í fyrra, stönsuðu líka næstum alveg vegna
áburðarskorts. Að eins tilraun nr. 2 var hægtað fram-
kvæma fuilkomlega, hinar var iítið eða ekkert gert við.
Tilraunar þessar eru því ekki lengur ábyggilegar til
samanburðar, því samkvæmt fyrirmælum Akureyrar-
fundar áttu tilraunirnar að framkvæmast á 6 árum
í röð.
Engin veruleg framför var á neinurn gróðri í stöð-
inni, að grasi einu undanteknu, fyr en um miðjan ágúst,
þá komu hlýviðri með skúrum, og hélst þá framförin
þangað til um miðjan september. Eftir þann tíma óx
litið, enda var þá byrjað að slá.
Fóðurtegundir þær, er teknar voru til athugunar,
voru með flesta móti, bæði korn og fóðurrófur. Þetta
er aðallega vegna þess, að hin fræga jurtakynbótastofn-
un á Svalöí í Svíþjóð hafði látið gróðrarstöðinni endur-
gjaldslaust i té nokkur korn- og fóðurrófna-afbrigði.
1. Korntegundir til fóðurs.
Af byggi var sáð 7 tegundum (Bjarkö, Tryssei,
Finne, Finnegut, Bamse, Björneby og Svalöfs Svan-
halskorn) í samtals 21 ara. Af höfrum var sáð 9 teg-
undum (Sort Fanehavre, Duppauer, Tartar King, Storm
King, Aas Ligow, Svalöfs Guldregn, Svalöfs Ligow, Sva-