Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 43
BÚNAÐA.RRIT.
39
sjálfum sér, auk styrks annarstaðar frá. Geta nú t. d.
lent og affermt sex stórskip — áttæringar — í einu, í
syðri vörinni, þegar hásjávað er, í stað tveggja, er Jón
kom að jörðinni. Sama er að segja um norðurvörina.
Byggingar eru afarmiklar eftir Jón á jörðinni, bæði fyrir
menn og skepnur. Tvö geymsluhús, grafin í hólátúni,
og geymast kartöflur og rófur í þeim óskemdar árlangt.
Jón hefir látið sér mjög ant um hag sjómanna þeirra,
er dvelja á vertiðinni i Þorlákshöfn, enda hefir veiði-
staðan þar verið fyrirmynd hvað reglusemi og siðgæði
snertir. Fyrir hvatir hans, fyrst og fremst, þar stofnaður
styrktarsjóður til hjálpar sjómönnum, er bíða atvinnu-
tjón á vertíðinni vegna sjúkdóms. Hann hefir og átt
góðan hlut í stofnun lestrarfélags þar. Alkunnugt, hví-
líkur bjargvættur Jón hefir reynst sjóhröktum mönnum,
er svo oft hafa orðið að leita lands í Þorlákshöfn. Jón
hefir og jafnan verið máttarstólpi síns sveitarfélags.
Þetta árið voru 10 umsóknir: 1 úr S.-Múlas., 9 úr Y.-Skf.g.,
6 úr Árn.s. og 1 úr Mýras.
Jsriö 1908.
67. Halldór Jónsson, bóndi og kaupmaður í Vík í
Mýrdal i Vestur-Skaftafellssýslu. Hann hefir stækkað
túnið um 18 dagsi. og sléttað þar af 15 dagsl. Auk
þess sléttað í gamla túninu 11 dagsl. Hlaðið 510 f.
langan grjótgarð kringum túnið, dregið grjótið að langan
veg og ógreiðan, auk þess sett um túnið 200 faðma vír-
girðing, þar sem ekki var hægt að koma grjóti að. Bygt
nátthaga um 6 dagsl., sléttað í honum 4 dagsl. Alls
þá sléttað 30 dagsl. Nátthaganum er skift í 4 parta með
virgirðingu og neti, er girðing sú sett í kross, og hafa
ærnar ekki nema 1 reit í einu, verða með því miklu
meiri nyt.jar nátthagans. Aðrar girðingar en um túnið
heflr hann og gert stórmiklar um lönd til ræktar og
beitar, grafið 1100 f. langan varnarskurð og gert 1600
f. langar gaddavírsgirðingar og grjótgarða á 2. hundrað f.