Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 55
BÚNAÐARRIT.
51
Aí því, sem að framan er sagt, sést nokkuð hvað
bótavant þykir við hinar myndirnar.
Gagnvart mynd II. 1—2 má benda á, að vel má
komast af með minna rúm en þar fer í fjósgangana.
Mun það einnig oftast kosið hér, þar sem efni bænda
eru alment smá, en dýrt byggingarefni. Nægilegt loft-
rúm í fjósinu má vinna með frekara risi. Erfiðleikum
er bundið að stækka húsin með því fyrirkomulagi, er
myndin sýnir. Um ris á hlöðum og um fjárhús er
áður sagt það, er einnig tekur til myndanna II. og III.
m. fl.
Við myndirnar IV. 1—3 er einkum athugavert:
1. Húsasundin, með ókostum sínum. 2. Dyr á hlöðu
beint úr fjósi. 3. Gegngangur um fjós með hey úr
hlöðu í hesthúsið (órói fyrir kýrnar, ef gegna þarf hest-
unum á öðrum tíma, sem oft vill verða). 4. Vöntun fóður-
gangs í hesthúsinu. 5. Naumast nóg birta í fjósi, sé
gluggar að eins á öðrum gafli (eða hlið, ef tvístætt er).
Um mynd V. 1—3 sama sem IV. 1 —3, töluliðina
2—5, og auk þess erfiðleikar við flutning mykjunnar úr
fjósi í skarnhús. Krókóttur inn- og útgangur fyrir hest-
ana í innri básaröðum, o. fl.
í ritgerðum þeim, er fylgja myndunum II.—VI., eru
ýmsar góðar bendingar um byggingastarflð, enda minnir
mig að þær ritgerðir væru einna skýrastar og fjölbreytt-
astar þeirra, er húsamyndunum fylgdu.
Þó það sé mikill kostur, að hægt sé innlags í hlöðu,
er þess að gæt.a, að sé veggur sá, sem innlagsopið er á,
alveg eða að mestu í jörð, verður að gæta varhuga við,
að hann snarist ekki inn. Hefir slíkt víða átt sér stað.
Sé veggurinn hár, t. d. 3—4 metra, er varla að búast
við að hann standi móti brekku, nema með styrktar-
bríkurn, enda þótt hlaðinn væri úr góðu grjóti, lögðu í
sement, eða steyptur. A slíkum gaflvegg hlöðu, sem eigi er
4*