Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 76
72
BÚNAÐARRIT.
frá tilraunastöðinni i Ási í Noregi af þeim tegundum,
sem líklegastar þóttu til þrifa hér á iandi. Nákvæm
skýrsla um þessar tilraunir verður ekki gefin fyrst um
sinn. Að eins skal þess getið, að ekki fékst fullþroskað
korn af neinni tegundinni, en allar gáfu þær mjög góða
eftirtekju af fóðri. Byggið gaf að meðaltali 23 hesta,
en hafrarnir 28 hesta af þurru heyi af dagsláttu. Mest
uppskera af reit samsvaraði á dagsláttu af höfrum 34
hestum, en af byggi 30 hestum; það er rúmur 1 hestur
og tæpur 1 hestur af ara.
Tegundirnar eru þessar:
Bygg: Hafrar:
Bjarkö, Mesdag,
Björneby, Newton’s Early Black.
Tryssil, Sort íanehavre.
Finne, Buppauer,
Finngut, Tartar King,
Bamse, Störm King,
og eru hór taldar þannig, að hinar fljótvöxnustu eru
taldar fyrst og svo niður eftir, eftir þvi sem vaxtar-
tíminn lengist. Tilraunin er þreföld, og hver reitur 1
ari, svo að alls taka þessar tilraunir yfir 36 ara (um l1/*
dagsl.).
Á land, sem brotið var í fyrra haust og plægt og
herfað vandlega í vor, var sáð:
í 7,3 ara höfrum, og varð eftirtekjan 13 hestar á dagsl.
eða 4110 kg. á hektara; í 17,5 ara höfrum og byggi i
blendingi, og varð eftirtekjan rúmlega 13 hestar ó dagsl.
eða 4200 kg. á hektara.
6. Grasrækt með sáningu.
a. í síðustu skýrslu er þess getið, að grasfiæi var
sáð í 1100 f.3 eða 39,3 ara. Á þetta svæði átti að bera
húsdýraáburð í vor, en hann fékst ekki, og var þá ekk-
ert borið á það, og verður að gæta þess, þegar dæmt er
um eftirtekjuna.