Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 247
BÚNAÐARRIT
243
og Þingeyjar sýslum og á Austurlandi. Aðrar sýningar
verða ekki styrktar með fé þetta ár.
Nautgripafélög hafa fengið rúmlega 2600 kr. styrk
(1 kr. 50 au. fyrir hverja kú, er fullnægjandi skýrsla er
gefin um), og hrossakynbótafélög 500 kr. Eitt hrossa-
kynbótafélag er nýstofnað, i Hreppunum. Til sauðfjár-
læktarbúa var varið 1750 kr. Þau eru 9, sem félagið
styrkir. Eitt þeirra, Hreiðarsstaðabúið, legst niður á þessu
ári. Eigandi þess treystir sér ekki til að halda þvi áfram,
vegna heilsuleysis síns. í ráði var, að stofna eitt á
þessu ári í Y.-SkaftafellssýsJu, en því er frestað eftir
samráði við sýslunefndina. Nánara er skýrt frá kyn-
bótafólögum í skýrslu Ingimundar Guðmundssonar í Bún-
aðarritinu.
Til nautgripagirðinga þriggja var veittur um 270 kr.
styrkur, þriðjungur kostnaðar.
Til kynblöndunartilrauna með íslenzku fé, einkum
til sláturfjárframleiðslu, voru greiddar 200 kr. eftir á-
kvörðun síðasta búnaðarþings. 500 kr. styrkur, er bún-
aðarþingið hét til kynblöndunartilrauna með útlendu fé,
ef aðflutningsleyfi fengist, er ekki kominn til útborgunar.
Aðflutningsleyfið mun vera ófengið.
Undanfarin ár hafa þeir fjárræktarmennirnir Hall-
grímur og Jón Þorbergssynir ferðast um mikinn hluta
Norðurlands og Austurlands til að skoða fé og gefa leið-
beiningar um sauðfjárrækt, með nokkrum styrk frá Bún-
aðarfélaginu. í vetur hefir Jón ferðast um nokkurn hluta
Húnavatns, Stranda, og Borgarfjarðar sýslna og um
Dala, Snæfellsness, Mýra, Borgarfj. og Kjósar sýslur, flutt
fyrirlestra á 35 stöðum, víðast tvo (áheyrendur alls nær
1400, flest bændur), komið á 382 bæi og gefið leiðbein-
ingar um fjárval o. fl. Næsta vetur er i ráði að hann
ferðist í sömu erindum um Gullbringu, Áiness, Rang-
árvalla og Y.-Skaftafells sýslur.
Fóðurtilraunir voru gerðar í vetur á Hvanneyri með
hey, þar á meðal súrhey, rófur og fóðurbæti ýmsan.
16*