Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 311
BÚNAÐARRIT
307
metra af steinsteypu, sé hún álíka vatnsmikil og venju-
iega gerist. Sé steypan höfð mjög vatnsmikil, má ætla
nokkru minna. Hér í Reykjavík hafa nokkur hús, og
þar á meðal brunastöðin, verið sléttuð utan (pússuð) með
aquabarsteypu, og hefir það, að því er séð verður, gefist
vel. Að hafa aquabar aðeins á yzta byrðið á veggnum
er auðvitað miklum mun ódýrara og getur, ef frágangur
er góður, verið fullnægjandi. Við það er þó athugandi,
að varla er ennþá fengin nægileg reynsla fyrir því, að
sementhúð með aquabar í loði eins vel við steinsteyp-
una og venjuleg sementhúð. Hingað til heflr þó ekki
borið á, að sementhúðin hafl losnað á húsum þeim, er
slél.tuð hafa verið utan á þennan hátt hér í Reykjavík.
Það skal tekið fram, að þeirri mótbáru heflr verið hreyft
móti aquabar, að það mundi með tímanum eyðileggjast
í veggnum. Ekki er hægt að fortaka, að svo kunni að
reynast á löngum tima; en enn sem komið er hafa menn,
mér vitanlega, ekki fengið reynslu í þá átt.
Um ceresit skal eg vera fáorður. Það er að mörgu
svipað aquabar. Það er notað eins, og verðið er svipað.
Samsetningin er líka svipuð, nema að í því er nokkuð
af asfalti, og ætti það því að líkindum að vera fult svo
endingargott og aquabar. Það gerir steinsteypu mjög
vel vatnshelda, en stendur þó, hvað það snertir, að baki
aquabar. Munur er þó ekki svo mikill, að ekki megi
mæla með því til notkunar.
Vatnshelt sternsement er sérstök sementstegund, sem
búin er til á Þýzkalandi. Er þá blandað í sjálft sementið
efnum, er gera steinsteypuna vatnshelda. Sternsementið
er notað að öllu leyti eins og annað sement. Stein-
steypa með sternsementi er álika vatnsheld og steypa
með aquabar. Steinsteypa úr sternsementi með aquabar
reyndist svo vatnsheld, að ekki var unt að sjá að vatn
gengi minstu vitund í hana. Verð sternsementsins er á
Þýzkalandi nálægt 6,50 krónum fyrir tunnuna.
Leir hefir á seinni árum verið notaður talsvert til
ao*