Alþýðumaðurinn

Tölublað

Alþýðumaðurinn - 21.06.1932, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 21.06.1932, Blaðsíða 1
48. tbl. Akureyri, Þriðjudaginn 21. Júní 1932. II. árg. Árásir á verkakaupid Kviksögum þyrlað upp til að hræða verkalýðinn. Verkalýðurinn sviftur fuiitrúa sínum í stjórn ríkisverksmiðjunnar á Siglufirði. Mistök auðvaldsins utanlands og innan. Auðvaldið virðist vera að færast í aukana og löngun þess til að svelta verkalýðinn eftirminnanlega að magnast. Er ekkert ti! sparað til að koma þessari göfugu hug- sjón í framkvæmd. — Sérstaklega beinast nú árásirnar á kjör þess verkalýðs, sem við síldarvinnu starf- ar- Með niðurlagningu Siklareinka- sölunnar var aðal stoðinni kipt undan þessum atvinnuvegi. Á eftir fylgdi margfalt tap á við það er hefði þurft að verða, ef einkasalan hefði starfað áfram. Verkunarlaun eru óborguð- Verkalýðurinn á eftir að fá verkakaup borgað frá síðasta ári. Útgerðarmenn og saltendur sitja f skuldakútnum. Niðurboð á þessa árs framleiðslu erlendis hefir átt sér stað eins og á verstu óreiðu- árunum áður en Síldarein'kasalan var stofnsett. Að tveim til þrem mönnum undanskildum. eiga allir í fullri óvissu um það, hvort þeir — og með hvaða verði — geta selt síld í sumar. Skakkaföllunum af þessu ástandi á nú að velta yfir á verkalýðinn. Eins og áður er getið hér í blað- inu, átti að nota síldarbræðsluverk- smiðjurnar til að þrýsta kaupinu niður. Með hótun um að þær störfuðu ekki, átti að hræða verka- lýðinn til að lækka kaupið- »Vinir« Krossanesverksmiðjunnar unnu af kappi hér í bænum og í grendinni. Siglfirðingurn var ógnað með því að dr- Pauls-verksmiðjan starfaði ekki. Ríkisverksmiðjan er látin til- kynna að hún starfi máske ekki. Ríkisvald og auðvald starfa og standa saman að því að hræða og kúga eins og föng eru til. Ríkis- valdið gengur í fararbroddi. Ríkis- verksmiðjan, sem bygð var til að vernda landsmenn gegn kúgun út- lendinga, er látin í hendur hrein- ræktaðra kaupkúgunarmanna. Full- trúa verkalýðsins í stjórn verksmíðj- unnar, Ouðmundi Skarphéðinssyni, er sparkað, og landssímasfjóri sett- ur í staðinn. Petta er gert eftir ósk atvinnurekenda. Blöð atvinnurekenda eru látin syngja sultarsöngir.n fyrir hönd eigenda þeirra. Þau eru látin flytja tröllasögur um að útlendingar ætli að slíta viðskiftum við ísland. — Stórir leiðangrar eiga að veiða síld- ina úti á hafinu. Pessi útgerð á ekkert að kosta. Allt fæst sama sem gefins, nema það sem íslensk- ur verkalýður vinnur að. Siglufjörður kemur mest við sögu síldarverkunarinnar. Pað þykir því ekki nema rétí að skýra frá við- skiftum verkalýðsins þar og stjórn- ar ríkisverksmiðjunnar. Par stend- ur nú í miklu þrefi. Verkalýðurinn er sviftur fulltrúa sínum í stjórn- inni, svo hann sé ekki að trufla startið með þ’ í að fryggja kjör verkalýðsins. í starfið er settur maður, sem hefir svo umfangsmiklu embætti að sinna, að hann getur ekki komið nálægt stjórn verk- smiðjunnar. Fulltrúi sunnlenskra útgerðarmanna, Sveinn Benedikts- son, sem dólgslegast hagaði sér á aðalfundi Síldareinkasölunnar s. 1, haust og barðist óðast fyrir nið- urlagningu hennar, játar á fundi á Siglufirði á Laugardaginn var, að þetta séu sín handaverk. Hann hafi ekki getað þolað tvo siglfirska full- trúa í stjórninni, og þá var auðvit- að fulltrúi verkalýðsins iátinn fara. Blað atvinnurekenda á staðnum — ^Siglfirðingur-K — er látinn flytja verkalýðnum þær fréttir, að Svíar þeir, sem undanfarið hafa keypt síld af íslendingum, séu að útbúa risavaxna leiðangra til síldveiða úti á hafinu, og það er reiknað út að sú síid kosti ekki yfir 10 krónur tunnan í sænskri höfn. Og verka- lýðurinn er særður til að lækka kaupið, svo hægt sé að keppa við þessa síld. — Forstjórar ríkisverk- smiðjunnsr eru hinir nægjusömu menn, sem ætla að ganga á undan og gefa eftir af kaupi sínu. Sam- kvæmt lögum á hver stjórnandinn að hafa 3000 krónur fyrir starf sitt í stjórninni. Landssímastjóri, sem mun hafa milli 10 og 20 þúsund þar fyrir utan, ætlar aö gefa eftir öll stjórnarlaunin — gefa þau til atvinnubóta. Sveinri Benediktsson, sem mun hafa 30—50 þúsund í

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.