Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 1988, Blaðsíða 8

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 1988, Blaðsíða 8
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI Fjölskyldu- dagurinn 15. maí Hinn árlegi fjöl- skyldudagur SÍRON verður nú sem endranær í Kirkju- hvoli Garðabæ. Vegna hvítasunnu- helgarinnar verður dagurinn fluttur til sunnudagsins 15. maí n.k. og opnar húsið kl. 14.00. Sú nýbreytni verður tekin upp að boðið verður upp á skemmtiatriði. Von- andi verður fjöl- mennt þar eins og oftast áður. Mótið af minnismerkinu áður en það var sent út til afsteypu. gerður er af Ragnari Kjartanssyni hefur verið valinn staður á grastorgi við Hrað- frystihús Þormóðs ' ramma, þar sem Síldarverksmiðjan Rauðka stóð áður. Söfnunarféð verður afhent við messu í Siglufjarðarkirkju 14. ágúst á hátíðar- höldunum í tilefni 170 ára verslunar- réttinda og 70 ára kaupstaðarréttinda Siglufjarðar. Það er von SÍRON að brottfluttir Sigl- firðingar bregðist vel við og láti af hendi rakna til góðs málefnis, og greiði gíróseðilinn ekki síðar en 15. júlí n.k. Söfnun vegna kaupa á minnis- varða um drukknaða sjómenn á Siglufirði Stjórn Siglfirðinga- félagsins í Reykjavík og nágrennis ákvað á fundi sínum 12. mars s.l. að gang- ast fyrir söfnun meðal Siglfirðinga í Reykjavík og ná- grenni. Söfnunarféð rennur í sjóð sem stofnaður var á síð- asta ári um kaup á minnisvarða um drukknaða sjómenn á Siglufirði. Minn- isvarðanum, sem Síldarballið 30. Síldarballsnefndin hefur ákveðið að hið árlega SÍLDARBALL fari fram í Félags- heimilinu Seltjarn- arnesi þann 30. apríl og hefjist kl. 22.00. Þetta er sú skemmtun á vegum félagsins sem hvað mestra vinsælda hefur notið. Þeir sem einhverra hluta vegna hafa misst af síldarballinu á undanförnum árum eru hvattir til að láta sjá sig og rifja upp gömlu góðu dagana. apríl Hina þarf ekki að hvetja. Sérstök ástæða er til þess að benda árgöngum, sem ætla að koma saman á Siglufirði í sumar á þann möguleika að hafa „generalpruf- una" á þessu balli.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.