Búnaðarrit - 01.01.1983, Blaðsíða 399
ULL OG GÆRUR
393
3. tafla. Frumþættir ullarvaxtar, arfgengi þeirra og erfða-
fylgni við þunga á hreinu reyfi.
Erfðafylgni við
Frumþáttur Arfgengi, h2 hreint reyfi, rG
Heint reyfi ..................................... 0,40—0,76 (1,00)
Þungiáfæti ...................................... 0,36—0,65 - 0,12—+ 0,27
Skinnfellingar .................................. 0,35—0,50 - 0,06—+ 0,12
Rciknað yfirborð................................. 0,50 + 0,20
Þvermál ullarhára ............................... 0,45—0,47 + 0,16—+ 0,36
Lagðlengd ....................................... 0,37—0,43 + 0,46
Þéttleiki hársekkja ............................. 0,31—0,42 - 0,02—+ 0,30
S/P-hlutfall..................................... 0,45 + 0,32
Bylgjutíðni ..................................... 0,31—0,48 - 0,53
sem ekki telst til vaxtarþáttanna, er neikvætt tengd þunga á
hreinu reyfi erfðafræðilega.
íslenskt gildi á arfgengi ullarþunga var á bilinu 0,14—
0,33 hjá einstökum aldursflokkum áa, 1—5 vetra gömlum,
en 0,19 þegar allir aldursflokkar voru teknir saman (7).
í sömu rannsókn fundust eftirtalin gildi á erfðafylgni við
ullarþunga: frjósemi áa + 0,29; einkunn fyrir vænleika
lamba + 0,39; ullarflokkur — 0,28. Þessar niðurstöður voru
túlkaðar þannig, að jákvæð erfðafylgni ullarmagns við
frjósemi ærinnar og einkunn hennar fyrir lambavænleika
væri bundin við stærð ærinnar, sem hefði jákvæð áhrif á alla
þessa eiginleika. Hina neikvæðu erfðafylgni milli ullar-
magns og ullarflokks töldu höfundar stafa af hinu missterka
úrvali að þunga lamba á fæti, en alhvít lömb á þeim búum,
sem rannsóknin náði til, voru mun minna valin með
hliðsjón af þunga heldur en gulu lömbin.
Á íslandi hafa verið gerðar umfangsmiklar rannsóknir á
rauðgulum illhærum, og er arfgengi á tilvist þeirra mjög
hátt. Arfgengi á gæruflokk lamba hefur reynst vera um 0,5
og arfgengi á ullarflokk áa 0,55 (13,7).
Árangur ullarúrvals.
í Ástralíu hafa verið gerðar fimm umfangsmiklar úrvalstil-
raunir með ullarmagn. Hér á eftir verður sagt frá helstu