Samtíðin - 01.10.1936, Blaðsíða 6

Samtíðin - 01.10.1936, Blaðsíða 6
4 SAMTÍÐIN Islensk kona gerist húsameistari Viðtal við ungfrú Halldóru Briem Við Tekniska háskólann í Stokk- hólmi stundar um þessar mundir nám fyrsti íslenskur kvenstúdent, sem valið hefir sér húsagerðarlist að viðfangsefni, ungfrú Halldóra Briem frá Akranesi, dóttir síra Þorsteins Briem alþm. Halldóra lauk stúdents- prófi við Mentaskólann i Beykjavík vorið 1935 og sigldi haustið eftir til Stokkliólms til þess að nema þar liúsagerðarlist. Samtíðin hefir hitt ungfrú Hall- dóru að máli og spurt hana, hvernig lienni liki raámið. Eftirfarandi sam- tal er ritað í Stokkhólmi í sumar, er Halldóra var nýkomin til bæjarins úr stuttu sumarleyfi utan úr Skerja- garðinum skamt þaðan. — Þér megið kallast brautryðj- andi, þar sem engin íslensk kona lief- ir áður lagt stund á byggingarvísindi austan megin Atlantsliafsins að minsta kosti. — Frá því er ég var barn, svarar ungfrúin, — hefir hugur minn hneigst mjög að öllu því, er að húsa- byggingum lýtur. Ég var varla farin að draga til stafs, er ég var altaf að teikna hús. Lengi vel mintist ég þó ekki á það við nokkum mann, að mig langaði til að lesa byggingar- fræði. Þó kom að því, að ég gat ekki lengur þagað yfir þessari þrá minni, og þegar ég fór í Flensborgarskólann í Hafnarfirði haustið 1930, ákvað ég að láta síðar verða af því, að lesa Halldóra Briem byggingarverkfræði. Að afloknu gagnfræðaprófi árið 1932 fór ég i stærðfræðisdeild Mentaskólans og lauk þar stúdentsprófi vorið 1935. — Hvernig líkar yður svo námið hér i höfuðstað Svíþjóðar, og hverraig er þessu raámi hagað hér? — Ég get nú auðvitað ekki svarað því lil fullnustu, hvernig mér muni falla þetta nám, þar sem ég liefi aðeins stundað það vetrarlangt, segir ungfrúin, — en það, sem af er, líkar mér ágætlega. Hvað námstilhög- uninni viðvíkur, er þvi til að svara, að áætlað er, að þetta nám taki 4—5

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.