Fréttablaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 4
4 4. janúar 2010 MÁNUDAGUR lyf? Kynntu þér þinn rétt á lfi.is Þarft þú að nota lyf að staðaldri? Frumtök • Hjartaheill • Beinvernd • Lyfjafræðingafélag Íslands v VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 15° -1° -7° -1° 2° -2° -2° 1° 1° 22° 1° 20° 2° 12° -7° -1° 16° -5° Á MORGUN Hæg breytileg átt um allt land. MÁNUDAGUR Víðast 3-8 m/s. -5 -3 -2 -5 -7 -2 -8 -2 -12 0 -6 5 6 5 4 3 7 8 10 5 5 6 -6 -6 -4 -12 -10 1 0 -4 -8 -6 KULDALEG KORT Það verður áfram heldur kalt á land- inu einkum í inn- sveitum norðaust- anlands þar sem frost hefur náð 20 stigum síðustu daga. Á morgun verður talsvert frost um allt land en á miðvikudag hlýnar heldur vestan til á landinu. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður STJÓRNSÝSLA Taki forseti Íslands sér lengri umþóttunartíma en til dagsins í dag vegna Icesave-lag- anna kann hann að mati Eiríks Tómassonar lagaprófessors að vera brotlegur við stjórnarskrá. Eiríkur segir ekki við neinar reglur að styðjast um hversu lang- an tíma forsetinn geti tekið sér til að gera upp hug sinn. Almennt séu lög undirrituð jafnóðum og þau berast frá Alþingi. „Það er ekkert athugavert við að forsetinn taki sér einhvern umþótt- unartíma, en hann má að mínum dómi ekki vera lengri en örfáir dagar,“ segir hann og bendir á að ákvörðun forseta hafi legið fyrir daginn eftir að lögð voru fyrir hann lög um fjölmiðla í júníbyrj- un 2004. Þau voru ekki lögð fyrir forseta fyrr en viku eftir að þau voru samþykkt á Alþingi. Frídagar um áramótin segir Eiríkur að geri stöðuna sérstaka nú. „Ef þetta hefði gerst í miðri viku hefði maður talið tímann full- langan nú þegar.“ Eiríkur segir tímann hins vegar geta skipt máli, enda sé þingið búið að samþykkja lagafrumvarp og síðan er gert ráð fyrir því að ef forsetinn synji lögum staðfest- ingar þá öðlist þau þegar gildi. „Það getur oft legið á að lög öðlist gildi, þótt það geti verið misjafnt. Í þessu tilviki sem við stöndum nú frammi fyrir sjáum við að þótt lögin komi ekki til framkvæmda fyrr en eftir langan tíma þá getur skipt máli að eytt sé óvissu um það hvort þau öðlist gildi til frambúð- ar eða hugsanlega til bráðabirgða. Þess vegna væri það að mínum dómi brot á stjórnarskrá ef forset- inn færi að draga þetta á langinn umfram örfáa daga,“ segir hann og kveðst telja að forsetanum beri að gera upp hug sinn ekki síðar en í dag. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, segir erfitt að geta sér til um mögulegar afleið- ingar þess synji forseti Íslands lög- unum staðfestingar. „Það er nátt- úrlega líklegt að það gæti leitt af sér mikla pólitíska upplausn og alvarlegt ástand,“ segir hann, en rifjar um leið upp að það sama hafi menn haldið árið 2004 þegar fjöl- miðlalögin hafi verið lögð fyrir forsetann. „Þá varð reyndar ekki pólitísk upplausn. Hins vegar eru aðstæður kannski miklu erfið- ari núna en voru þá,“ segir hann. Þannig sé ekki hægt að gefa sér að ríkisstjórnin myndi hrökklast frá nú þótt lögin yrðu ekki staðfest. „En það kemur alveg til greina.“ Ólafur telur hins vegar lík- legra að forsetinn staðfesti lögin, þótt ómögulegt sé um það að spá. „Hann hefur líka opnað þann möguleika að synja.“ olikr@frettabladid.is Synjun gæti valdið pólitískri upplausn Ólafur Þ. Harðarsonar stjórnmálafræðingur segir erfitt að meta áhrifin neiti for- setinn að skrifa undir Icesave-lögin. Stjórnin gæti hrökklast frá. Jaðrar við stjórn- arskrárbrot að bíða lengur með undirskrift, segir Eiríkur Tómasson lagaprófessor. NÁTTÚRUFAR Hekla getur gosið með skömmum fyrirvara, að sögn Frey- steins Sigmundssonar, jarðeðlis- fræðings hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Rætt hefur verið um að Hekla „sé komin á tíma“ en fjallið hefur gosið reglulega. Haft er eftir Freysteini á Vísi. is að þrýstingur í kvikuhólfi undir Heklu sé sambærilegur við það sem hann var síðast þegar Hekla gaus. Þetta geti þýtt að langtíma- fyrirboði um gos í fjallinu sé kom- inn fram og að sýna þurfi aðgæslu. Freysteinn segir hins vegar að skammtímafyrirboðar goss séu litlir jarðskjálftar og jarðskorpu- hreyfingar. Þeir muni ekki sjást fyrr en nokkrum klukkustund- um fyrir gos. Því sé ómögulegt að segja til um með vissu hvenær gos kunni að hefjast. - óká Hekla sögð komin á tíma: Sami þrýsting- ur og var síðast MEXÍKÓ, AP Mexíkóski eiturlyfja- baróninn Carlos Beltran Leyva var handtekinn í Culiacan, þar sem hann og bræður hans ólust upp og stofnuðu glæpa- klíku sem lengi hefur verið ein sú valdamesta í landinu. Aðeins hálfur mánuður er síðan Arturo bróðir hans var drep- inn þegar her- inn gerði árás á dvalarstað hans í Guernavaca. Óljóst er hvort Carlos tók við forystu glæpaklíkunnar eftir fráfall Arturos. Eftir að Felipe Calderon tók við forsetaembætti í Mexíkó hefur hann lagt mikla áherslu á baráttu gegn fíkniefnabarónum í landinu. - gb Fíkniefnastríðið í Mexíkó: Annar barón hnepptur í hald CARLOS BELTRAN LEYVA GENGIÐ 31.12.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 232,8087 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,60 125,20 201,11 202,09 179,38 180,38 24,101 24,243 21,608 21,736 17,464 17,566 1,3477 1,3555 195,18 196,34 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR VERSLUN Útsölur hófust í Kringlunni og Smáralind síðast- liðinn laugardag. Að sögn starfs- fólks verslunarmiðstöðvanna var aðsókn mikil og meiri en búist var við. Útsölunum lýkur í byrj- un febrúar en útsölur mega sam- kvæmt reglum Neytendastofu ekki standa lengur en í sex vikur. Á heimasíðu Neytendasamtak- anna má nálgast verklagsregl- ur í kringum útsölur en samtökin hafa í gegnum árin orðið vör við töluverð vandamál sem skapast í kringum útsölurnar. -jma Útsölur hófust í janúar: Meiri aðsókn en búist var við LÖGREGLUMÁL Harður fjögurra bíla árekstur varð á Akureyri á laugardag, á Mýrarvegi við Skógarlund. Bílarnir, sem komu úr gagn- stæðri átt, rákust þar saman á gatnamótunum. Engin slys urðu á fólki en töluvert tjón varð á bíl- unum. Áreksturinn er rakinn til slæms skyggnis, snjós og hálku. Skemmtanahald var til fyrir- myndar um helgina á lands- byggðinni og óvenju rólegt að sögn lögreglunnar á Akranesi, Ísafirði og Akureyri. - jma Lögreglan á Akureyri: Fjögurra bíla árekstur í hálku fyrir norðan TADSJIKISTAN, AP Að minnsta kosti tuttugu þúsund manns misstu heimili sitt þegar harður jarð- skjálfti varð í Pamírfjöllum á laugardag. Ekki bárust fréttir af neinum dauðsföllum af völdum skjálft- ans, sem mældist 5,3 stig. Marg- ir fengu inni hjá ættingjum, en aðrir fengu skjól í skólum eða öðrum opinberum byggingum. Jarðskjálftar eru algeng- ir í Tadsjikistan, sem er fátækt ríki í hálendinu norður af Afganistan. Þar búa 7,3 millj- ónir manna, sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum. - gb Jarðskjálfti í Tadsjikistan: Tugir þúsunda heimilislaus KRINGLAN Útsölurnar hófust á laugar- dag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL STJÓRNSÝSLA Talið er líklegt að við- semjendur Íslands nýti sér heimild til að hverfa frá samningum um Icesave fáist ekki staðfest lög um ríkisábyrgð vegna þeirra. Heimildir blaðsins innan stjórn- kerfisins herma að þar þyki fólki einsýnt að forsetinn hafi fáa aðra kosti en að staðfesta lögin. Að öðrum kosti falli samningar við Breta og Hollendinga um sjálfa sig og ekkert verði eftir til að kjósa um. Í samningum sem gerðir hafa verið um Icesave eru ákvæði í þá veru að verði þeir ekki staðfest- ir fyrir nóvemberlok 2009 þá geti samningsaðilar dregið sig til baka. Fari svo þá sé ekkert til að greiða atkvæði um í þjóðaratkvæða- greiðslu. Þá er sagt til lítils að fyrri lög um Icesave taki gildi, verði nýju lögunum hafnað, samningarnir hafi kveðið á um skilyrðislausa og óaft- urkræfa ríkis ábyrgð. Þannig gætu hvorki Bretar né Tryggingarsjóð- ur innstæðna undirritað samninga án ríkisábyrðar. Tryggingarsjóður- inn geti ekki skrifað undir samn- ing sem hann hefur ekki burði til að standa undir og sama gildi um Breta og Hollendinga sem áttu að fá í hendur yfirlýsingar frá bæði íslenska lánasjóðnum og ríkislög- manni um að lögin væru í samræmi við samningana, fælu í sér óskil- yrta ábyrgð. Samningar við Breta og Hollendinga falli því um sjálfa sig án ábyrgðar ríkisins. - óká Viðbúið að Bretar og Hollendingar segi upp samningum verði lögum hafnað: Ekkert um að kjósa eftir synjun FRÁ ÁTÖKUM VIÐ STJÓRNARRÁÐIÐ Mótmælendur við Stjórnarráðið fyrir rétt tæpu ári þegar gerður var aðsúgur að Geir H. Haarde, sem þá var forsætisráð- herra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÓLAFUR Þ. HARÐARSON MÓTMÆLI Hátt í þúsund manns komu saman á Bessastöðum á laugardaginn og kröfðust þess að forsetinn staðfesti ekki lögin um Icesave. FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL AÐALSTEINSSON EIRÍKUR TÓMASSON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.