Fréttablaðið - 17.05.2010, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 17.05.2010, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 17. maí 2010 13 VIÐSKIPTI Breska ferðaskrifstofan Thomas Cook hefur tapað sjötíu milljónum punda, jafnvirði tæpra 13,5 milljarða króna, vegna röskunar á flugi á megin- landi Evrópu af völdum gossins í Eyjafjallajökli í síðasta mánuði. Öskufallið er reyndar ekki það eina sem setur strik í reikn- ing ferðaskrifstofunnar. Óeirðir á götum Aþenu vegna efnahags- þrenginga þar hafa skilað sér í fækkun ferðamanna þangað. Bókanir í Bretlandi hafa dreg- ist saman um tæpan fjórðung og mun það skila sér í hækkun á farmiðaverði, eins og Manny Fontenla-Novoa, forstjóri ferða- skrifstofunnar, bendir á í sam- tali við breska dagblaðið Tele- graph. - jab Bretar tapa á Eyjafjallagosinu: Skilar sér í far- miðaverðið ÖSKUSTRÓKUR STÍGUR UPP Ferðaskrif- stofur og flugfélög víða um heim hafa tapað háum fjárhæðum vegna röskunar á millilandaflugi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Akur- eyri hefur upplýst innbrot í níu bifreiðar á Akureyrarflugvelli 14. apríl síðastliðinn og í fjórar vinnuvélar við Eyjafjarðar- braut vestri 4. maí. Í þessum innbrotum var stolið GPS-tækj- um, geislaspilurum og ýmsu smá- dóti. Þá var bensínlykli stolið úr einni bifreiðinni og hann notaður til úttektar fyrir um 50 þúsund krónur. Þó nokkrar skemmdir voru unnar í þessum innbrotum. Fjórir piltar 17 til 21 árs viður- kenndu að hafa verið að verki. Mörg þjófnaðarmál upplýst: Fjórir brutust inn í níu bíla DÓMSMÁL Matvælastofnun og íslenska ríkið hafa verið dæmd til að greiða dýralækni ríflega 660 þús- und krónur vegna starfa við hrossa- hóp sem var illa haldinn af salmon- ellusýkingu í Mosfellsbæ í desember 2008. Gera má ráð fyrir að fleiri dýralæknar sem önnuðust hrossin fari í mál gegn Matvælastofnun í kjölfar dómsins. Upphaf málsins er að héraðsdýra- læknir hjá Matvælastofnun hafði samband við dýralækninn vegna veikinda sem komin voru upp í hrossunum. Dýralæknirinn fór á staðinn til að veita hjálp. Fleiri dýra- læknar komu svo að störfum á síð- ari stigum málsins. Þeir sendu Mat- vælastofnun reikninga, þar sem þeir litu svo á að fyrirmæli um aðstoð hefðu borist frá stofnuninni. Mat- vælastofnun leit hins vegar svo á að eigendum hrossanna bæri að borga fyrir dýralæknisþjónustuna. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykja- víkur segir að lagt sé til grund- vallar að gefin hafi verið fyrir- mæli af hálfu Matvælastofnunar þegar dýralæknirinn var kallaður til. Hann hafi brugðist við eins og til hafi verið ætlast í framhaldi af fyrirmælunum. - jss VIÐBÚNAÐUR Mikill viðbúnaður var í hesthúsum í Mosfellsbæ þar sem sýktu hrossin voru hýst. Dýralæknir vinnur mál gegn Matvælastofnun: Ríkið greiði salmonellureikning vegna hrossa VERÐLAUN Samtökin Blátt áfram hlutu í gær Mannréttindaverð- laun Reykjavíkurborgar en þau voru veitt á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar. Blátt Áfram eru sjálfstæð félagasamtök sem systurnar Svava og Sig- ríður Björns- dætur stofnuðu árið 2004. Til- gangur sam- takanna er að efla fræðslu og forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi. Sigríður Björnsdóttir formað- ur samtakanna og Birta Ósk Friðbertsdóttir, ellefu ára, tóku við Mannréttindaverðlaununum fyrir hönd samtakanna úr hendi borgarstjóra Reykjavíkur Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Verðlaun- in eru listaverk eftir Söru Vil- bergsdóttur. Í fréttatilkynningu kemur fram að Sigríður sagði viðurkenninguna mikilvæga fyrir samtökin og sönnun þess að starfið skilaði árangri. Mannréttindadagur Reykjavíkur: Blátt áfram fær Mannréttinda- verðlaun SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.