Fréttablaðið - 10.09.2010, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 10.09.2010, Blaðsíða 62
42 10. september 2010 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 SJÓNVARPSÞÁTTURINN LÁRÉTT 2. malur, 6. strit, 8. skrá, 9. sarg, 11. í röð, 12. leikur, 14. arkarbrot, 16. guð, 17. eyrir, 18. ýlfur, 20. þurrka út, 21. titra. LÓÐRÉTT 1. viðskipti, 3. pot, 4. málmur, 5. angan, 7. hindrun, 10. kvk nafn, 13. vætla, 15. rænuleysi, 16. magur, 19. til. LAUSN LÁRÉTT: 2. poki, 6. at, 8. tal, 9. urg, 11. lm, 12. parís, 14. fólíó, 16. ra, 17. aur, 18. ýla, 20. má, 21. riða. LÓÐRÉTT: 1. kaup, 3. ot, 4. kalsíum, 5. ilm, 7. trafali, 10. gró, 13. íla, 15. óráð, 16. rýr, 19. að. Haukur Ingvarsson, Illugi Jökulsson og Þorgerður E. Sigurðardóttir bæt- ast í hóp gagnrýnenda Kiljunnar sem hefur göngu sína aftur á RÚV í haust. Páll Baldvin Baldvinsson og Kolbrún Bergþórsdóttir verða á sínum stað auk þáttastjórnandans Egils Helgason sem er ánægður með viðbótina. „Illugi verð- ur fyrir áramót með Þorgerði og Hauk- ur kemur síðan í staðinn fyrir hann og verður með okkur eftir áramót,“ segir Egill en ráðgert er að gagnrýnendapör- in skipti þáttunum nokkuð bróðurlega á milli sín. Það vekur hins vegar mestu athygl- ina að Haukur, þekktastur fyrir snarpa menningarrýni sína í útvarpsþættin- um Víðsjá, skuli hafa orðið fyrir valinu því hann fór ekki fögrum orðum um bókmenntagagnrýnina í Kiljunni fyrir rösku ári í áðurnefndum útvarpsþætti. Egill kveðst ekki hafa heyrt þá gagn- rýni. „Nei, mér finnst Haukur fyrst og fremst skemmtilegur og snjall strák- ur. Ég hef lesið eftir hann og hann hefur komið í þáttinn til mín,“ segir Egill. Haukur er nú í rithöfundarleyfi og á þar að auki von á sínu fyrsta barni. Hann segist aldrei hafa haft neinn sér- stakan áhuga á að fara í sjónvarp. „En það hefði líka verið hallærislegt að taka ekki þessu boði. Maður getur ekki bara setið og gagnrýnt út í eitt án þess að vilja sjálfur taka þátt.“ - fgg Gagnrýnandi Kiljunnar gagnrýnir í Kiljunni NÝTT FÓLK Í KILJUNNI Haukur Ingvarsson, Illugi Jökulsson og Þorgerður E. Sigurðardóttir verða í gagnrýn- endasveit bókaþáttarins Kilj- unnar. Haukur gagnrýndi þáttinn fyrir rösku ári en viðurkennir að það hefði verið hallærislegt að taka ekki boðinu frá Agli Helgasyni. Nú styttist óðum í að Ingólfur Þórarinsson, best þekktur sem Ingó úr Veðurguðunum, þreyti frumraun sína á leiksviði en söng- leikurinn um Buddy Holly verður frumsýndur í næsta mánuði. Færri vita hins vegar að það er Jóhannes Haukur Jóhann- esson, en hann ættu margir að kannast við úr sjónvarpsþáttunum um Martein sem sýndir voru á RÚV, sem þýðir söngleikinn og nýtur þar góðrar aðstoðar frá Davíð Þór Jónssyni sem þýðir söngtexta. Það eru ekki bara tóm leiðindi sem eiga sér stað í hinni opinberu heimsókn Jónínu Leósdóttur og Jóhönnu Sigurðar- dóttur til Færeyja. Ummæli færeyska þingmannsins Jenis av Rana hafa hlotið mestu athyglina en á meðan heimsótti Jónína færeyska bókaforlagið Bókadeildina og fékk eintak af færeysku útgáfunni af smásagna- safninu Elskar mig, elskar mig ekki en hún inniheldur sextán norrænar smásögur um ástina. Jónína samdi titilsöguna og spurning hvort Jenis fái ekki áritað eintak frá forsætis- ráðherrafrúnni. Stúlknasveitin The Charlies er nú á fullu við æfingar fyrir mikla kynn- ingarveislu í Los Angeles. Þær Klara, Steinunn og Alma hafa sungið frá sér allt vit á æfingum í hljóðveri og þær eru svo sannarlega umkringdar stórstjörnum. Við hliðina á þeim hefur barnastjarnan Justin Bieber þanið raddböndin en að sögn stúlknanna er að hann undirbúa sig fyrir VMA- verð- launin í Ameríku. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Heimildarmyndin Norð Vestur sem fjallar um snjóflóðið á Flat- eyri 1995 verður frumsýnd í októ- ber. Einar Þór Gunnlaugsson leik- stýrir myndinni, sem tók þrjú ár í vinnslu. „Ég er fæddur þarna og þekkti flestalla sem fórust. Þetta eru mínar æskustöðvar,“ segir Einar Þór, sem síðast leikstýrði kvikmyndinni Heiðinni. „Ég er ekkert sérstaklega örlagatrúar en stundum hefur maður spurt sig af hverju maður fór út í þetta. Á endanum komst maður að því að kannski er þetta eitthvað sem maður þurfti að gera.“ Í Norð Vestur er blandað saman sögulegu efni teknu á 8 mm filmu, fréttum úr fjölmiðl- um, ljósmyndum heimafólks og atvinnuljósmyndara, og þrívídd- ar-módelum. Sagt er frá útköllum bæði í byggðunum vestra sem og Almannavarna ríkisins sem urðu ein af þeim umfangsmestu í sög- unni. Björgunar- og fjölmiðlafólk, heimamenn sem björguðust úr flóðinu og aðstandendur segja frá atburðarásinni þessa örlagaríku daga. „Þetta er örugglega vanda- samasta verkefni sem ég gert í mínu starfi og þarna er gríðarlega mikið af viðtölum,“ segir Einar Þór. „En þetta var í rauninni ekk- ert erfiðara en mörg önnur verk- efni, þegar maður hugsar um til- ganginn. Hann er fyrst og fremst fyrir komandi kynslóðir. Að þær kynnist þessum atburðum og við lærum eitthvað af þessu áður en önnur stórslys koma.“ Fyrri hluti myndarinnar, sem er um 100 mínútna langur, verð- ur frumsýndur í október. Seinni hlutinn, sem er ætlaður fyrir sjón- varp og mynddisk, er um þriggja klukkustunda langur með auka- efni. Tónlistina fyrir myndina sömdu þau Gunnar Tynes og Silla úr hljómsveitinni múm. -fb Vandasamasta verkefni Einars EINAR ÞÓR GUNNLAUGSSON Heimildarmyndin Norð Vestur eftir Einar Þór Gunn- laugsson verður frumsýnd í október. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Bandaríski rapparinn Chino XL er í gestahlutverki á fyrstu sólóplötu Authentic the Exception, sem heitir réttu nafni Magnús Þór Gylfason. „Það kostaði hálft ár í bið og 1.500 dollara að fá hann. Það þurfti mikið af símtölum og mikið að „fiffa“ til að fá hann,“ segir Magnús, sem hopp- aði hæð sína þegar hann samþykkti að taka þátt. „Þetta var stund sem ég var búinn að bíða eftir. Þegar ég fékk símanúmerið og gat verið í beinu sambandi við hann vissi ég að þetta var hann. En að bíða svona lengi var mjög erfitt.“ Chino er stórt nafn innan neðan- jarðar hip hop-senunnar í Banda- ríkjunum. Hann var uppgötvað- ur þegar hann var sextán ára af hinum virta upptökustjóra Rick Rubin. Árið 2007 samdi hann við Machete Music sem er í eigu ris- ans Universal. Hópur gestarappara kemur við sögu á plötu Magnúsar, Thoughts Words & Actions, og eru þeir allir bandarískir nema einn, hinn íslenski S. Cro. „Þegar ég gerði plötuna og vildi fá ákveðna listamenn vissi ég að þeir kostuðu 1.000 dollara og sumir meira. Ég vildi fá listamenn sem hafa haft áhrif á mig,“ segir Magnús, sem vann baki brotnu hjá Símanum til að láta drauminn ræt- ast enda var platan algjörlega borg- uð úr eigin vasa. „Ég vann bara eins og naut til að fjármagna þetta. Ég þurfti að taka mikið af aukavökt- um.“ Helmingur taktanna var feng- inn frá íslenska upptökustjóranum Fonetic Simbol og hinn frá takt- smiðum frá Tyrklandi, Kólumb- íu, Svíþjóð og bandaríska upptöku- MAGNÚS ÞÓR GYLFASON: GEFUR ÚT SÍNA FYRSTU SÓLÓPLÖTU Keypti þjónustu rándýrra erlendra tónlistarmanna AUTHENTIC THE EXCEPTION Rapparinn fékk góða hjálp frá bandarískum kollegum við gerð nýju plötunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Ég veit ekki um neinn sem er jafnduglegur í rappsenunni hérna,“ segir Ómar Ómar, sem hefur verið virkur í íslensku hip hopi, um Magnús Þór. „Hann er að gera tónlist sem gengur í marga úti. Að vinna með svona nöfnum gerir mikið fyrir plötuna hvað varðar athygli. Með því að gera svona hluti getur hann klárlega farið að spila á tónleikum erlendis. Það eru margir sem eiga eftir að tékka á plötunni, sem er fyrsta skrefið fyrir hann.“ MUN FÁ GÓÐA ATHYGLI ERLENDIS teyminu Da Beatminerz sem hefur unnið með rapparanum Nas. Magnús Þór, sem er 27 ára Reyk- víkingur, leggur mikla áherslu á textagerð í tónlist sinni en lögin sjálf eru undir áhrifum frá Wu- Tang Clan. Hann segist kannast við marga í íslensku hip hop-sen- unni en vegna enskra texta sinna hefur hann verið þar hálfgerður utangarðsmaður. Magnús flytur til Kanada í nóv- ember þar sem hann ætlar í hljóð- blöndunarnám. Þar ætlar hann að ná enn lengra í rappinu. „Þetta er eins árs nám og síðan ætla ég að reyna að finna vinnu úti og láta tónlistina ganga upp.“ freyr@frettabladid.is „Ég horfi alltaf á So You Think You Can Dance og Two And a Half Men. Svo horfi ég líka á Fagur fiskur í sjó sem er skemmtilegur þáttur.“ Irma Gunnarsdóttir, listdansari. VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8. 1 Alice Cooper. 2 Eftirlitsstofnun EFTA, ESA. 3 Á Lewis-eyju í Skotlandi. Finnski hesturinn (Stóra sviðið) Fös 15/10 kl. 20:00 frums Lau 16/10 kl. 20:00 2.sýn Lau 23/10 kl. 20:00 3.sýn Lau 30/10 kl. 20:00 4.sýn Sun 31/10 kl. 20:00 5.sýn Fös 5/11 kl. 20:00 6.sýn Lau 6/11 kl. 20:00 7.sýn Fim 11/11 kl. 20:00 8.sýn Fös 12/11 kl. 20:00 9.sýn Ö U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Lau 11/9 kl. 13:00 Lau 11/9 kl. 15:00 Sun 12/9 kl. 13:00 Sun 12/9 kl. 15:00 Lau 18/9 kl. 13:00 Lau 18/9 kl. 15:00 Sun 19/9 kl. 13:00 Sun 19/9 kl. 15:00 Lau 25/9 kl. 13:00 Lau 25/9 kl. 15:00 Sun 26/9 kl. 13:00 Lau 2/10 kl. 13:00 Lau 2/10 kl. 15:00 Sun 3/10 kl. 13:00 Sun 3/10 kl. 15:00 Fíasól (Kúlan) Lau 11/9 kl. 20:00 Sun 12/9 kl. 20:00 Fim 16/9 kl. 20:00 Fös 17/9 kl. 20:00 Lau 18/9 kl. 20:00 Sun 19/9 kl. 20:00 Fim 23/9 kl. 20:00 Fös 24/9 kl. 20:00 Lau 25/9 kl. 20:00 Sun 26/9 kl. 20:00 Fim 30/9 kl. 20:00 Fös 1/10 kl. 20:00 Lau 2/10 kl. 20:00 Fös 8/10 kl. 20:00 Lau 9/10 kl. 20:00 Hænuungarnir (Kassinn) Fös 10/9 kl. 19:00 Fös 17/9 kl. 19:00 Lau 18/9 kl. 19:00 Sun 19/9 kl. 19:00 Mið 22/9 kl. 19:00 Fös 24/9 kl. 19:00 Lau 25/9 kl. 19:00 Fös 1/10 kl. 19:00 Lau 2/10 kl. 19:00 Sun 3/10 kl. 15:00 Fös 8/10 kl. 19:00 Lau 9/10 kl. 19:00 Sun 17/10 kl. 19:00 Sun 24/10 kl. 19:00 Mið 27/10 kl. 19:00 Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Lau 11/9 kl. 20:00 Ö Sun 12/9 kl. 20:00 U Fim 16/9 kl. 20:00 Fös 17/9 kl. 20:00 síð.sýn. Fim 21/10 kl. 20:00 Fös 29/10 kl. 20:00 Fim 4/11 kl. 20:00 Hamskiptin (Stóra sviðið) Gerpla (Stóra sviðið) U U U U Ö Ö U Ö U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö U Ö Ö Ö Ö U Ö Ö Gildir ágúst 2010 til jún í 2011 hús kor tið 1 OPIÐ KORT Gildir á Leik hús kor tið 201 0/2 011 ÁSK ikhus id.is I mida sala@ le Leikhúsk ort 4 miðar á aðeins 9.900 kr. U Ö Ö Ö U U U Ö Ö
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.