19. júní


19. júní - 19.06.1959, Blaðsíða 32

19. júní - 19.06.1959, Blaðsíða 32
Kona í hæstarétti Rannveig Þorsteinsdóttir hefur fyrst íslenzkra kvenna skráð nafn sitt á spjöld þeirrar sögu, er geymir nöfn hæstaréttarlögmanna á Islandi. Hún hefur nú nýverið lokið við að flytja þau mál fyrir hæstarétti, sem veita henni rétt til að skeyta stöf- unum hrl. við nafn sitt, en það er stytting á starfs- heitinu hæstaréttarlögmaður. Námsferill hennar var glæsilegur. Hún lauk öllu námi sínu á óvenju skömmum tíma. Þegar hún tók lögfræðipróf 1949, voru ekki liðin nema 4 ár, siðan hún tók gagnfræðapróf, og mun það algert einsdæmi. Hún var önnur kona á landinu, sem tók lögfræðipróf, cg er eina konan, sem leyfi hefur til að taka að sér málflutning. Árið 1953 aflaði hún sér réttinda til að flytja mál fyrir und- irrétti. Og nú er hún hér á vistlegu heimili, sem hún hefur búið sér uppi í Drápuhlíð, í hópi góðra gesta, sem eru samankomnir í tilefni þessa merka áfanga, sem hún hefur náð. 1 örlitlu hléi, sem verður á gestakomu undir til baráttunnar fyrir bættum kjörum til handa þeim, sem verst eiai settir og minnst mega sín í þjóðfélaginu. Guðný Helgadóttir. kvöldið, hripa ée niður nokkrar spurningar og bið Rannve’gu að segja mér örlítið frá námi sínu. „Þú hefur eflaust sömu sögu að segja og flestar konur af okkar kynslóð. Aðstaða til langskólanáms lá ekki við fæturna á unga aldri?“ „Já, við þekkjum það sjálfsagt báðar, efni og ástæður leyfðu ekki neitt, en löngun var fyrir hendi bæði hjá mér og móður minni. En fátæk ekkja með þrjú börn hafði ekki tök á miklu á þeim árum. En til gamans má segja það, að þegar kenn- arinn í barnaskólanum spurði okkur krakkana, hvað við vildum verða, þegar við værum orðin stór, rétti ég upp höndina og sagðist vilja verða sýslumaður. En sýslumaður var þá í mínum aug- um sá, sem kunni skil á lögum.“ „Var nokkur sérstök ástæða til þess, að þú ákvaðst að leggja út á námsbrautina, þó að þau ár væru að baki, sem flestir sitja á skólabekk?“ „Já, mér fannst, þegar ég kynntist undirbúningi nýju fræðslulaganna, að menntun mín væri ekki næg til þess að standa jafnfætis því unga fólki, sem mundi verða samstarfsmenn mínir, og leit svo á, að stúdentspróf veitti þá beztu almennu menntun, sem völ væri á, og taldi, að nú hefði ég aðstæður til að afla mér þeirrar menntunar og vinna fyrir mér jafnframt.“ „Og svo hefurðu ekki getað hætt, þegar af stað var komið?“ „Nei, það kom svona af sjálfu sér að halda áfram.“ „Finnst þér þess gæta nokkuð í starfi þínu, að menn séu ófúsari að fela konum að reka mál fyr- ir sig?“ „Nei, það finn ég ekki. Mjög margir viðskipta- vinir minir eru karlmenn, og starfsemi mín hefur aukizt á eðlilegan hátt eins og annarra lögfræð- inga.“ „Er ekki töluverð vinna að flytja mál fyrir hæstarétti, og þurfa það ekki að vera merkileg mál, sem tekin eru gild sem prófmál?“ „Jú, það liggur mikil vinna á bak við allan mál- flutning. Og það eru ekki viðurkennd sem prófmál fyrir hæstarétti önnur mál en þau, sem að ein- hverju leyti eru sérstaks eðlis og vandasöm.“ „Ég lét einhvem tíma orð falla um það á þeim árum, sem þú varst á þingi, að það væri eflaust að þakka afrekum þínum við prófborðin, að karl- menn léðu máls á þvi að hafa kvenmann til framboðs.“ „Þú ert nú alltaf með getsakir í garð karla.“ 30 19. JÚNl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.