Fréttablaðið - 14.12.2010, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
VIÐSKIPTI Tæplega helmingur þeirra
rúmlega sextíu starfsmanna Kaup-
þings sem slitastjórn bankans hefur
rukkað vegna lána sem þeir fengu
til hlutabréfakaupa hefur samið við
bankann um endurgreiðslu. Samn-
ingarnir sem þegar hafa náðst munu
skila búinu vel á annað hundrað
milljónum.
Starfsmennirnir fengu fimmtán
milljarða að láni með persónu-
legri ábyrgð sem var felld niður á
stjórnar fundi bankans nokkrum
dögum fyrir bankahrun. Þeirri
ákvörðun var rift í vor. Persónulegu
ábyrgðirnar sem nú hefur verið
reynt að innheimta námu þó innan
við tíu milljörðum. Af þessum ríf-
lega sextíu starfsmönnum hlutu
um tuttugu lykilstarfsmenn níutíu
prósent heildarupphæðarinnar að
láni.
Enginn starfsmannanna hefur
verið knúinn í gjaldþrot, að sögn
Ólafs Garðarssonar, formanns slita-
stjórnar Kaupþings. Langflestir
hafa samþykkt að skila inn umbeðn-
um upplýsingum, til dæmis skatt-
framtölum mörg ár aftur í tímann,
svo slitastjórnin geti metið greiðslu-
getuna og samið á grundvelli henn-
ar. „Svo eru dæmi um að fólk neiti
okkur um upplýsingar og þá fara
málin fyrir dóm,“ segir Ólafur.
Samið var við flesta um að endur-
greiða sextíu til sjötíu prósent. „Nú
erum við að fást við þá sem ekki geta
greitt sínar skuldir – sýna greiðslu-
vilja en eiga ekki eignir til að mæta
þeim,“ segir Ólafur. Kröfuhafar hafi
ekki hag af að keyra menn í þrot,
enda eignir þeirra gjarnan veðsett-
ar og lítið úr þrotabúunum að hafa.
Á þriðja tug manna hafa kosið að
fara með mál sín fyrir dóm. Það eru
aðallega þeir sem mest skulda. - sh
Þriðjudagur
skoðun 16
14. desember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Tilboð til jóla 40% afsl
áttur!
Tilboðsverð 5.850 kr.
Patti.isÍslenskir sófar sniðnir að þinum þörfumMál og áklæði að eigin vali.
Basel Ó hætt er að segja að Katrín GuðrúnTry Olympics, sem fram fó íPé
Katrín Guðrún Tryggvadóttir og Þórdís Erlingsdóttur náðu langt á Special Olympics:
Þórdís Erlingsdóttir og Katrín Guðrún Tryggvadóttir stoltar með verðlaunapeningana sem þær fengu fyrir frækilega frammistöðu á
Evrópumótinu í skautum í Rússlandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sætur en óvæntur sigur
3
Te og kaffi heldur úti skóla, Te- og kaffiskólanum, þar sem
nemendum gefst kostur á að læra um sögu og uppruna kaffis,
að þekkja muninn á kaffitegundum og blöndum, allt um viðhald
kaffivéla og fleira. Áhugasamir geta sent Halldóri Guðmundssyni
skólastjóra póst á dori@teogkaffi.is eða hringt í síma 555-1910.
jólagjöfin hennarÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 20102 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Jólagjöfin hennar
veðrið í dag
14. desember 2010
293. tölublað 10. árgangur
Á tökustað stórmyndar
Baldur Bragason vinnur við
Karla sem hata konur.
fólk 42
dagar til jóla
Opið til 22 í kvöld
10
Skráðu þig á
americanexpress.is
og fáðu tvöfalda Vildar-
punkta Icelandair af allri
veltu fram að jólum!
2xfleiri
Vildarpunktar
Jólabónus
Samið við Kaupþingsmenn
sem geta nær ekkert greitt
Helmingur þeirra fyrrverandi starfsmanna Kaupþings sem slitastjórnin hefur krafið um fleiri milljarða
vegna lána til hlutabréfakaupa hefur samið um endurgreiðslu. Hún nemur í heild undir 200 milljónum.
Slitastjórnin hótaði fimm fyrrverandi starfsmönnum Kaupþings, sem fluttu
eignir á maka sína í miðju hruni, að eignirnar yrðu kyrrsettar ef þeir yndu
ekki ofan af þeim gjörningum. Að sögn Ólafs urðu þeir allir við því.
Nokkrir háttsettir starfsmenn Kaupþings fluttu eignir á eiginkonur sínar
í byrjun október 2008. Meðal þeirra fimm sem urðu við beiðninni um
að flytja þær til baka í sumar eru Frosti Reyr Rúnarsson, Hannes Frímann
Hrólfsson, Ingvar Vilhjálmsson og Ólafur Frímann Gunnarsson.
Fimm undu ofan af eignatilfærslum
SAMGÖNGUR Miðað við fyrirliggjandi áætlanir
standa þeir sem aka Suðurlandsveg til vinnu
undir tæpum helmingi áætlaðra tekna af inn-
heimtu vegatolla þar.
Endanleg fjárhæð tolla og útfærsla afsláttar-
gjalda vegna tvöföldunar Suðurlandsvegar,
Vesturlandsvegar og Reykjanesbrautar sunnan
Hafnarfjarðar liggur þó ekki fyrir. Tölur Vega-
gerðarinnar miða við að gjaldið samsvari sjö
krónum fyrir hvern ekinn kílómetra. Miðað
við þær forsendur myndi bíltúr úr höfuðborg-
inni á Selfoss kosta 700 krónur. Fimmtungur
íbúa Árborgar, nærri 1.600 manns, sækir
vinnu á höfuðborgarsvæðið.
Ögmundur Jónasson samgönguráðherra
fagnar umræðu um gjaldtökuna og bendir á að
menn hafi tímann fyrir sér áður en að henni
komi; svigrúm sé til breytinga. - óká / sjá síðu 14
Á annað þúsund sækir vinnu yfir Heiðina
SUÐURLANDSVEGUR BREIKKAÐUR Framkvæmdir við breikkun Suðurlandsvegar standa nú yfir. Formaður bæjarráðs Árborgar telur að um 1.600 manns úr sveitarfélaginu
sæki vinnu til höfuðborgarinnar. Ætla má að vegatollar á Suðurlandsvegi skili um 844 milljónum króna á ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sagan lifir
Eyrarbakkakirkja er 120
ára í dag.
tímamót 22
VÆTA VESTAN TIL Í dag verða
sunnan eða suðvestan 8-15
m/s, hvassast NV-til. Væta V-til en
léttskýjað A-lands fram eftir degi.
Hiti 0-8 stig, en vægt frost inn til
landsins.
VEÐUR 4
7
5
4
-2
4
ÚKRAÍNA Á næsta ári verður lokaða
svæðið í kringum kjarnorkuverið í
Tsjernóbyl opnað ferðamönnum.
Boðið verður upp á merktar
leiðir um svæðið í kringum
kjarnaofninn sem bilaði fyrir
tæpum aldar fjórðungi með þeim
afleiðingum að geislavirk mengun
dreifðist um stórt svæði í norðan-
verðri Evrópu.
Merktu leiðirnar eiga að vera
öruggar heilsu fólks, þótt þær
liggi um svæði sem enn er mjög
hættulegt vegna mikillar geisla-
mengunar.
„Þótt þetta sé mjög sorgleg saga
er ýmislegt að sjá þarna ef menn
fylgja opinberu leiðinni og fara
ekki frá hópnum,“ segir Júlía Jer-
sjóva, talskona neyðarástands-
ráðuneytis Úkraínu, sem skipu-
leggur ferðirnar.
Nokkur fyrirtæki bjóða nú þegar
upp á ferðir inn á lokaða svæðið, en
Jersjóva segir þær ferðir ólöglegar
og alls ekki hættulausar.
Um 2.500 manns starfa að við-
haldi kjarnorkuversins, en vinna
á vöktum til að minnka hættuna á
skaða vegna geislamengunar.
Nokkur hundruð manns sem
bjuggu í nágrenninu hafa flutt heim
aftur þrátt fyrir hættuna. - gb
Úkraínumenn hyggjast bjóða ferðamönnum að skoða hættulegar slóðir:
Opna Tsjernóbyl á næsta ári
United á toppinn
Manchester United sigraði
Arsenal og komst á toppinn.
sport 38