Íslendingur - 20.06.1930, Blaðsíða 1
ISLENDINGUR
Talsími'105.
Ritstjóri: Gunnl. Tr. Jónsson.
Strandgata 29.
XVI. árgangur.
Akureyri, 20. júní 1930
Gagnfrædaskóli Nordurlands.
(Sungið á|50 jra almæli skólans á Möðrnvöllum
ob [Akureyri iagana 31. rnaí og 1. júní 1930).
I.
vono er komið heim í Hörgárdalinn,
heilsar á ný og fagnar gömlum vinum,
ber frá þeim kveðju, er kól og fjellu í valinn,
kemur með söng og gleðst með öllum hinum.
Vorið það heilsar vinum sínum öllum:
Velkomnir aftur heim að Möðruvöllum!
Margt hefir breytst og margs er hjer að sakna.
Mörgum er ljúft að gista fornar slóðir.
Moldin er trygg og minningarnar vakna.
Máli hins liðna tala steinar hljóðir.
Margt hafa árin tengt við gamla grunninn.
Geymt er hjer margt — og þó er skólinn brunniim.
Bræður og vinir, blessum liðna daga.
Breytingum tímans æðri kraftar ráða.
Vel er, ef okkar verk og æfisaga
verða þeim lingu hvöt til nýrra dáða.
Þá hafa rætst í íslandsbygðum öllum
óskir, sem fengu líf á Möðruvöllum.
II.
Það boðar líf að læra
og ljós, að stefna hátt,
og því skal þakkir færa
og þroska hugans mátt.
Þeim opnast ótal vegir,
sem upp á tindinn fer,
og lengra andinn eygir
en auga mannlegt sjer.
i ^lag skal hátíð halda
og heiðra hvern þann mann,
sem verður góðra gjalda
að göfgu starfi vann.
Nú birtast bænir hljóðar
og blessun þúsundföld.
Hjer voru vættir góðar
að verki -— í hálfa öld.
III.
í djúpi andans dafnar eilíf þrá.
Alt dauðlegt kyn vill æðri þroska ná.
Þeir skynja fyrstir lífsins leyndu mál,
sem læra að skilja sína eigin sál.
Sú þörf, sem menn til meiri fræðslu knýr,
er merki þess, hvað inni fyrir býr.
Sá vitkast mest, sem vinnur þyngsta raun.
Vinna er máttur, þekking sigurlaun.
Þó eldri kynslóð eigi lög og heit,
þarf æskan samt að hefja nýja leit.
Margt fagurt orð er fornum rúnum greypt,
feðranna reynsla dýru verði keypt.
Sinn leyndardóm hið liðna í skauti ber.
Alt líf er samstarf þess, sem, var og er.
Hin forna speki, minninganna mál,
er megnug þess að styrkja unga sál.
Sjá, hinna föllnu nýtur æskan enn,
sem unnu göfug störf og voru menn,
sem gátu fjötur fáviskunnar leyst,
fræðsluna auldð, giftu landsins treyst.
Öll þjóðin skilur þeirra tign og dáð.
Með þeirra hjálp var mörgum sigri náð.
Og hver, sem heill að þjóðar viðreisn vann,
er verður þess, að æskan blessi hann.
IV.
Það fylgir því ábyrgð að fara með völd,
það fylgir því ábyrgð að lifa,
og þjóðin man nöfn þeirra öld eftir öld,
sem örlagarúnirnar skrifa.
En öllum, sem virða sín helgustu hei’t,
er heimurinn opinn og fagur, •
og fagnandi og ung er hin frjálsborna sveit,
en fram undan — skínandi dagur.
Hún lifir og nemur þau lönd, sem hún á.
Hún logar af heilögum eldi.
Úr skínandi draumum og skyldunnar þrá
hún skapar sitt framtíðar veldi.
Þó bjart sje í lofti, þá birtir þó enn
-j:m bygð hinna hrjóstrugu landa.
011 veröldin hrópar á máttugri menn,
á meiri og voldugri anda.
V.
CJndir skólans mentamerki
mætast vinir enn í dag.
Sýnum öll í vilja og verki
vöxt og trú og bræðralag.
Forna dáð er fremd að rækja
Fagrir draumar rætast enn.
Heill sje þeim, sem hingað sækja.
Höldum saman, Norðanmenn!
Enn er liðinn langur vetur,
loftin blá og jörðin græn.
Hefji hver, sem hafið getur,
huga sinn í þökk og bæn.
Svo skal lofa liðna daga
að líta fram og stefna hátt
Þá fær íslands unga saga
æðra líf og nýjan mátt.
Alt skal lúta einum vilja.
Alt skal muna þennan dag.
Allir, sem við skólann skilja,
skulu syngja þetta lag.
Sýnum öll á sjó og iandi
sigurþrek hins.vitra manns.
Sýnum það, að afl og andi
eigi skóla norðanlands.
Davíð Stefánsson,
frá Fagraskógi.
Sá einn, sem áfram sækir
á andans þyrnibraut,
og stæltur störf sín rækir,
hann storkar hverri þraut.
Hann ber sitt manndómsmerki.
Hann markar öði-um slóð.
Hann vex með sínu verki.
Hann vitkar sína þjóð.
33. tölubl.
BAKURGYRAR BIO■
Ijaugardagskvöldið kl. 8’/a1
Ný mynd!
Flugálfarnir.
Mikilfengleg cirkus-mynd, sem
mjög hefur verið rómuð utan-
lands. —
Aðalhlutverkin leika:
Fee Malten og
Henrich George.
Sunnud. kl. 5: Niðursett verð.
Alþýðusýning.
Litla kærasfan.
Gamanleikur með
\ilma Banky
í aðalhlutverkinu.
Sýnd í síðasta sinn.
Sunnudagskv. kl. ö1/"1
Ný mynd!
Baskervilla^
hundurinn.
Kvikmyndasjónleikur í 7 þátt-
um um hina alþektu samnefndu
sögu Conan Doyle. Mun marg-
an, sem lesið hefur um afreks-
verk Scherlok Holmes, fvsa að
sjá þau færð út á kvikmynd.
Landskjörið.
Um 70 prc. kosið.
Kosningaþálttakan góð víaðsthvar
um landið, og er talið að um 70%”
kjósenda hafi neytt atkvæðarjettar
síns, þó frjettir sjeu enn ekki fengn-
ar allstaðar að.
í kaupstöðum landsins voru at-
kvæði greidd sem hjer segir:
Reykjavík
Akureyri
Hafnarfirði
Vestmannaeyjum
ísafirði
Siglufirði
Seyðisfirði
Neskaupstað
6148 atkv.
915 —
785 -
746 -
584 —
335 -
267 —
251 —
Alls 10071 atkv.
Hjer í Eyjafjarðarsýslu voru greidd
rúmlega 940 atkvæði, og sýndu
hrepparnir þessa útkomu:
Svarfaðardalshreppur 160 atkv,
Saurbæjarhreppur 172 —
Qlæsibæjarhreppur 120 —
Arnarneshreppur 100 —
Öngulstaðahreppur 101 — -