Fréttablaðið - 06.05.2011, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 06.05.2011, Blaðsíða 50
6. maí 2011 FÖSTUDAGUR38 sport@frettabladid.is PORTO OG BRAGA frá Portúgal mætast í úrslitaleik Evrópudeild UEFA í Dyflinni þann 18. maí næstkomandi. Porto vann spænska liðið Villarreal í undanúrslitum og Braga hafði betur gegn Benfica sem einnig er frá Portúgal. Porto varð Evrópumeistari árið 2004 en þetta er í fyrsta sinn í sögu Braga sem liðið kemst í úrslitaleik Evrópukeppni. NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS HJÓLADEILDIN ER Í HOLTAGÖRÐUM. Í VINNUNA Í SUMAR HJÓLAÐU ÍS L E N SK A SI A .I S U T I 54 88 1 05 /1 1 VERÐ: 49.990 KR. JAMIS CITIZEN 1 28˝ dömuhjól. Litir: Hvítt, rautt. VERÐ: 45.990 KR. JAMIS EXPLORER 1 26˝ dömuhjól. Litir: Blátt, rautt. VERÐ: 49.990 KR. JAMIS CITIZEN 1 28˝ herrahjól. Litur: Dökkgrátt. VERÐ: 45.990 KR. JAMIS TRAIL XR 26˝ fjallahjól. Litir: Blátt, grátt. KÖRFUBOLTI Sundsvall Dragons, með þá Hlyn Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson innanborðs, varð í gær Svíþjóðarmeistari í körfu- bolta. Sundsvall vann sigur á Norr- köping Dolphins, 102-83, í oddaleik í rimmu um titilinn í gær. Það var snemma ljóst að Jakob var funheitur. Hann skoraði fyrstu fimm stigin í leiknum og fyrstu tíu af fimmtán stigum Sundsvall. Hann setti fjögur þriggja stiga skot í röð og alls sex í fyrri hálfleik. Sundsvall var með 22 stiga for- ystu eftir fyrri hálfleik og Jakob langstigahæstur með 26 stig. Í síð- ari hálfleik náði Norrköping aldrei að saxa verulega á forystuna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Alltaf átti Sundsvall svar, oftast fyrir utan þriggja stiga línuna. Hlynur var á sínu fyrsta tíma- bili með Sundsvall og hrósaði Jak- obi sérstaklega eftir leik í samtali við Fréttablaðið. „Það var ótrúlegt að sjá Jakob í þessum leik. Mikið svakalega var hann góður,“ sagði Hlynur og furðaði á sig að Jakob hefði fengið að leika lausum hala. „Norrköping er með mjög hæfi- leikaríka og góða leikmenn en þegar kemur að því að leika skipu- lega eru þeir úti á túni. Hann var búinn að hitta úr fjórum í röð og enn galopinn. Jakob refsaði þeim grimmilega.“ Hlynur sagði skýrt dæmi hafa verið í upphafi fjórða leikhluta þegar hann gaf stoðsendingu á Jakob sem setti niður sinn sjöunda þrist í leiknum. „Ég keyrði upp að körfunni og var ekkert sérstaklega líklegur til að skora, þó ég segi sjálfur frá. Samt tvímönnuðu þeir á mig og skildu eftir mann sem var búinn að setja niður sex þrista gal- opinn á kantinum. Ég gaf bara bolt- ann á hann.“ Hlynur sagði að það hefði munað mikið um að margir í liðinu hefðu áður unnið titla og því vitað hvað þyrfti til í oddaleik sem þessum. „Sundsvall varð meistari árið 2009 og margir eru enn í liðinu. Jakob varð meistari með KR árið 2009 og ég með Snæfelli í fyrra. Það er erfitt að fara í úrslitaleiki án þess að þekkja til. Við erum einfaldlega með leikmenn sem kunna það,“ sagði Hlynur, sem bætti við að þeir hefðu mætt fullir sjálfstrausts til leiks í gær. „Við trúðum því að við værum bestir og ætluðum okkur einfaldlega að vinna.“ Hann sagði að tímabilið í Svíþjóð hefði verið frábær reynsla fyrir sig. „Ég þurfti að fá nýja áskorun á ferlinum og fékk hana hér. Það hefur gengið á ýmsu, eins og eðli- legt er þegar fimmtíu leikir eru spilaðir á tímabilinu, en ég er samt mjög sáttur.“ eirikur@frettabladid.is Trúðum því að við værum bestir Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson urðu í gær Svíþjóðarmeistarar í körfubolta. Báðir voru lykil- menn í úrslitaleiknum en Jakob fór hamförum í sókninni og fór langt með að klára leikinn í fyrri hálfleik. MEISTARAR Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson með sænska meistara- bikarinn eftir sigurinn á Norrköping í gær. MYND/SUNDSVALL TIDNING/ANNKRISTIN HAGLUND KÖRFUBOLTI Jakob Örn Sigurðar- son spilaði líklega einhvern besta leik sinn á ferlinum er lið hans, Sundsvall Dragons, varð Sví- þjóðarmeistari eftir sigur á Norr- köping Dolphins í oddaleik um sænska meistaratitilinn í gær. Jakob skoraði alls 31 stig í leiknum, þar af 26 í fyrri hálf- leik er Sundsvall stakk hrein- lega af. Norrköping náði aldrei að ógna forystu Sundsvall að ráði eftir það. „Ég veit ekki hvað ég á að segja. Það er bara rosalegt að detta í svona stuð í leik sem þess- um. Það gerist ekki oft og þetta var í raun bara fáránlegt,“ sagði Jakob í samtali við Fréttablað- ið en samtals setti hann niður sjö þriggja stiga skot í ellefu til- raunum. „Eftir að ég hitti úr fyrstu tveimur skotunum leið mér rosa- lega vel í öllu því sem ég gerði. Ég fékk opin skot og hélt bara áfram – að sjálfsögðu.“Hann segir að liðið allt hafi spilað vel í gær og því hafi það staðið uppi sem sigurvegari. „Kaninn okkar, Alex Wesby, er ótrúlegur leikmaður og örugg- lega einn besti Kani sem ég hef spilað með á ferlinum. Hann er frábær varnarmaður og spilar af hörku allan tímann,“ sagði Jakob og minntist einnig á landa sinn, Hlyn Bæringsson, sem gekk til liðs við félagið í fyrra en Jakob er á sínu öðru ári. „Hlynur hefur haft mikil áhrif á liðið. Það sem okkur vantaði í fyrra var maður sem berst fyrir liðið, tekur mikið af fráköstum og skorar mikilvægar körfur. Hann er búinn að breyta miklu og er mjög mikilvægur hlekkur.“ Jakob varð Íslandsmeistari með KR árið 2009 og segir allt- af sætt að vinna titla. „Mér líður frábærlega og þetta er alltaf jafn skemmtilegt.“ - esá Jakob Örn Sigurðarson var hetja Sundsvall: Fékk opin skot og hélt bara áfram FÓTBOLTI Samkvæmt hollenska dagblaðinu De Telegraaf hafa hollensku liðin AZ Alkmaar og Ajax átt í viðræðum um Kolbein Sigþórsson, leikmann fyrrnefnda liðsins. AZ hefur þegar hafnað einu til- boði frá Ajax en samkvæmt De Telegraaf eru félögin nú nálægt því að semja um kaupverð. Þá er samningur Kolbeins við Ajax um kaup og kjör nánast formsatriði. Kolbeinn hefur einnig verið orðaður við önnur lið, svo sem Newcastle og Dortmund, en tilboð hafa ekki borist þaðan. Kolbeinn hefur slegið rækilega í gegn í vetur. Hann er lang- markahæsti leikmaður AZ í hol- lensku úrvalsdeildinni með fimm- tán mörk í 30 leikjum, þar af sautján leikjum í byrjunarliði. - esá Kolbeinn Sigþórsson: Stutt í samning við Ajax KOLBEINN Hér til vinstri í leik með AZ Alkmaar á tímabilinu. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.