Fréttablaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 34
31. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR Ástkær eiginkona, móðir og amma, Guðrún Sveinsdóttir Hásölum 13, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfaranótt 24. ágúst sl. Útförin fer fram frá Digraneskirkju, föstudaginn 2. september kl. 15.00. Kristinn Kristinsson Kristinn Kristinsson Steinunn Lilja Sigurðardóttir Sigríður Kristinsdóttir Bergur Þorgeirsson Bergljót Kristinsdóttir Andrés I. Guðmundsson Sveinn Kristinsson Ásta Rut Sigurðardóttir Dagbjört Kristinsdóttir Matthías Jónasson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Anna Lilja Gísladóttir áður til heimilis að Sunnubraut 5, Keflavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi, laugardaginn 27. ágúst sl. Jarðarförin auglýst síðar. Ingibjörg Magnúsdóttir Lárus Ól. Lárusson Kristín G. Magnúsdóttir Eyjólfur Garðarsson barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þorbergur Friðriksson Aðalgötu 1, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 28. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Jón Páll Þorbergsson Sigurbjörg Lárusdóttir Friðrik Þorbergsson Þórunn María Þorbergsdóttir Þorbergur Friðriksson Hildur Pálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Aðalsteinn B. Einarsson fyrrverandi starfsmaður Flugleiða, lést á Landspítalanum v/Hringbraut deild 11e 22. ágúst sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. september kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á krabbameins- deild 11e LSH. Kristjana Þorgilsdóttir Aðalsteinn K. Aðalsteinsson Indiana Sigurðardóttir Rósmary Aðalsteinsdóttir Guðrún K. Aðalsteinsdóttir Haraldur R. Aðalbjörnsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Jón Trausti Kárason fyrrv. aðalbókari Pósts og síma, Hlíðarhúsum 3, lést miðvikudaginn 24. ágúst. Jarðsungið verður frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 1. september kl. 13. Bjarghildur Stefánsdóttir Gylfi Jónsson Þórunn Ásgeirsdóttir Birgir Jónsson Dagrún Þórðardóttir Kári Jónsson Hermína Hermannsdóttir og fjölskyldur. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, Sveinn Áki Þórðarson fv. rafmagnseftirlitsmaður, lést á heimili sínu, Ársölum 1, þann 16. ágúst sl. Útförin hefur farið fram. Þökkum vinum og vandamönnum samúð og vinarhug. Martha Sigurðardóttir Þórður Ben Sveinsson Karólína Kristinsdóttir Anna Sveinsdóttir Pétur Kristjánsson Ásgerður Hrönn Sveinsdóttir Vignir Ólafsson afa- og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Helga Hinriksdóttir frá Hafragili, lést á Dvalarheimili aldraðra Sauðárkróki 19. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristín Sveinsdóttir Gunnar Sveinsson Jóhanna Sveinsdóttir Árni Ingimundarson Kári Sveinsson Margrét Guðmundsdóttir Bjarni Sveinsson Ragnheiður Haraldsdóttir og fjölskyldur. Tveir sendifulltrúar Rauða kross Íslands, Áslaug Arnoldsdóttir og Magna Björk Ólafsdóttir hjúkrun- arfræðingar, munu halda til Íraks 1. september, til starfa með Alþjóða Rauða krossin- um. Áslaug mun dvelja í níu mánuði í Írak og verður starf hennar fólgið í heim- sóknum í fangelsi, sjúkrahús og á geðsjúkrahús í Bagdad, þar sem unnið er að því að bæta aðbúnað vistmanna. Áslaug mun einnig sjá um heilbrigðismál starfsmanna Alþjóða Rauða krossins í borginni. Áslaug er einn reynd- asti sendifulltrúi Rauða kross Íslands og hefur ára- langa reynslu af störfum á átakasvæðum. Hún fór fyrst út sem sendifulltrúi Rauða krossins 1996, þar sem hún starfaði á sjúkra- húsi Alþjóða Rauða kross- ins í Suður-Súdan og hefur síðan unnið meðal annars í Georgíu, Írak, Líbanon, Eþí- ópíu, Úganda, Pakistan og á Haítí. Nú síðast var Áslaug fengin til starfa í Líbíu þar sem hún vann sem hjúkr- unarfræðingur hjá Alþjóða Rauða krossinum í sumar vegna átakanna sem enn standa yfir í landinu. Magna Björk mun starfa í þrjá mánuði með Alþjóða Rauða krossinum í borginni Najaf í Írak. Hún mun sjá um þjálfun lækna, hjúkr- unarfræðinga og sjúkra- flutningamanna á gjör- gæsludeildum í Najaf. Þetta er í annað sinn sem Magna starfar sem sendifulltrúi Rauða kross Íslands, en hún vann í tjaldsjúkrahúsi Rauða krossins eftir jarð- skjálftana miklu á Haítí árið 2010. Sendifulltrúar RKÍ til Íraks Á LEIÐ TIL ÍRAKS Hjúkrunarfræðingarnir Magna Björk Ólafsdóttir og Áslaug Arnoldsdóttir munu báðar starfa að brýnum störfum á vegum Alþjóða Rauða krossins. Björgunarsveitir Slysa- varnafélagsins Landsbjarg- ar standa um þessar mund- ir fyrir kynningarfundum víða um land sem ætlaðir eru nýjum meðlimum sveit- anna. Áhugi á sjálfboða- liðastörfum hjá sveitunum hefur aukist mikið undan- farin ár, einkum á höfuð- borgarsvæðinu og í stærri bæjum landsins. Hafa nýir sjálfboðaliðar á öllum aldri og með alls kyns menntun bæst í hópinn. Nýliðar fara í gegnum strangt nám og þjálfun sem fer aðallega fram á kvöldin og um helgar. Nýliðar þurfa að stunda þá þjálfun í um það bil tvö ár áður en þeir taka þátt í útköllum. Í nám- inu er meðal annars farið yfir fyrstu hjálp, rötun, leit- artækni, fjallamennsku og sjóbjörgun. Áhugasömum er bent á að hafa samband við björgun- arsveitina í sínu heimahér- aði. Upplýsingar má finna á landsbjorg.is. - jma Nýliðar í þjálfun AUKINN ÁHUGI Borið hefur á auknum áhuga á störfum björgunar- sveitameðlima. Sýningin Marc Riboud – ljós- myndir í 50 ár verður opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavík- ur 3. september og stendur til 8. janúar 2012. Marc Riboud hóf störf sem blaðaljósmyndari á sjötta áratug síðustu aldar og varð einn af ljósmynd- urum umboðsskrifstofunn- ar Magnum árið 1953. Þar hlaut hann hvatningu ásamt Robert Capa og Henri Car- tier-Bresson sem urðu læri- feður hans og varð í fram- haldinu leikinn og næmur ljósmyndari. Hinn franski Riboud er einna þekktast- ur fyrir ítarlegar myndfrá- sagnir sínar frá Austur- löndum en hann var einn af fyrstu vestrænu ljósmynd- urunum til að komast inn í Kína eftir menningarbylt- ingu Maós árið 1966. Á þessari yfirlitssýn- ingu má sjá ljósmyndir sem spanna yfir 50 ára tímabil. Ljósmyndir Ribouds hafa verið birtar í virtum tíma- ritum á borð við Life, Géo, National Geographic, Paris Match og Stern. Sýningin er skipulögð af Ljósmyndasafni Reykjavík- ur og Alliance Francaise með aðstoð franska sendi- ráðsins á Íslandi. Riboud í 50 ár MARC RIBOUD Sýning á myndum eftir blaðaljósmyndarann Marc Riboud verður opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.