Íslendingur


Íslendingur - 26.08.1981, Blaðsíða 6

Íslendingur - 26.08.1981, Blaðsíða 6
ÍÞRÓTTIR____ MAGNÚS ÞORVALDSSON STEFÁN ARNGRÍMSSON Stórgóður árangur 3. flokks iðið hafnaði í 3. sæti Skemmtileg nýbreytni á minningarleiknum Ólíkt því sem verið hefur undan- farin ár, kom meistaraflokkslið KA hvergi við sögu í hinum árlega minningarleik um Jakob Jakobsson. Þess í stað lék gamla ÍBA-liðið við stjörnulið Her- manns Gunnarssonar. Sigraði stjörnuliðið með fjórum mörk- um gegn engu, en það var ekki sanngjarnt miðið við gang leiks- ins. Tókst gamla IBA þrátt fyrir snilldartakta og ágæt marktæki- færi ekki að skora hjá Sigurði Dagssyni, sem varði mark stjörnuliðsins með sóma. IBA liðið var skipað þessum mönn- um: Samúel Jóhannsson, Guðni Jónsson, Sigbjörn Gunnarsson, Þormóður Einarsson, Ragnar Þorvaldsson Haukur Jóhanns- son, Númi Friðriksson, Jón Stefánsson, Skúli Ágústsson, Sævar Jónatansson, Sigurður Jóhannsson, Gunnar Austfjörð, Gunnlaugur Björnsson, Rögn- valdur Reynisson, Kári Árna- son. Væri vel til fundið að láta gamla ÍBA leika í fleiri minning- arleikjum. Dagana 13. til 16. ágúst fór fram úrslitakeppni 3. flokks og var leikið á akureyri. Eins og áður voru mætt til úrslitana 8 lið í 2 riðlum og voru Þórsarar í A-riðli ásamt val, Í.K. og Tý. í B-riðli voru í A, Þróttur R.vík, Fylkir og Höttur. Mótið þóttist takast vel og hin ágæti árangur Þórs Akureyringum öllum gleðiefni. Þórsarar mættu Tý Vest- mannaeyjum í sínum fyrsta leik á fimmtudag og eftir fremur jafnan fyrri hálfleik hristu Þór- sarar Týrara af sér og unnu yfir- burða sigur 5:1. Leikið var á hinum nýja grasvelli Þórs og er hann hinn ágætasti og það var leikur Þórs einnig. A undan höfðu Valsmenn unnið ÍK með 2:1 í fremur slökum lei. ÍA vann Fylki 2:0 og Þróttur Hött 4:0 í B-riðlinum. I öðrum leik sínum mættu Þórsarar IK og er skemmst frá því að segja að Þór hafi yfirburði á öllum sviðum knattspyrnunar og sigraði verð- skuldað 5:1. Valur vann Tý létt með 4 mörkum gegn en engu án þess að sýna neina stórtakta. Akranes vann Hött með fá- heyrðum yfirburðum, 12:0! Þróttur bar sigur'orð af Fylki þannig að sýnt var að á laugar- deginum yrði um hreina úrslita- leiki að ræða um réttinn til að leika í úrslitum keppninnar. Akranes og Þróttur skyldu jöfn 1:1 íallfjörugumleikogvar IA þar með komið í úrslit. Leikur Þórs og Vals var fjörugri og sveiflukenndari. I fyrri hálf- leik hafði Þór frumkvæðið og Benedikt fyrirliði liðsins sýndi gott fordæmi er hann skoraði glæsilegt mark sem færði liði hans forystu í leiknum. Fram Golfmenn byggja að Jaðri Golfklúbbur Akureyrar er nú að byggja við skála sinn á Jaðarsvelli og er nýbyggingin nú fokheld. BJÖRGVIN SIGRAÐI A INGIMUNDARMÓTINU Um helgina var hið svonefnda Ingimundarmót í golfi, og um leið var vígður nýr 18 holu völlur. Mótið var haldið í minningu Ingimundar heitins Árnasonar, sem um árabil vann ötult starf fyrir Golfklúbb Ak- ureyrar. Úrslit urðu þessi: eftir síðari hálfleik gekk hvorki né rak en eftir jöfnunarmark Guðna Bergssonar var eins og örvænting gripi um sig í liði Þórs jafnvel þó þeim hafi nægt jafntefli út úr leiknum. Valsarar létu síðan kné fylgja kviði og bættu tveimur mörkum við og úrslitasætið var þeirra. Sannar- lega vonbrigði fyrir Þórsstrák- ana sem höfðu leikið svo skýnandi vel. Á sunnud. byrjaði keppnin um sætin, frá 8 og upp úr, en augu flestra beindust vitanlega að leikjunum um efstu sætin. Þórsarar mættu Þrótti R.vík og voru hinir fyrrnefndu hvergi bangnir og unnu enn einn yfir- burða sigurinn 4:1 og sýndu það að þeir voru með eitt allra besta lið keppninnar. Úrslitaleikurinn var ekki eins fjörugur og reis aldrei undir þeim vonum er við hann voru bundnar, sér í lagi voru Valsmenn ósáttir við sjálfa sig. Þeir geta það líka, ÍA vann 1:0, þrátt fyrir að Valur væri sterkari aðilinn lengst af. Fögn- uður Skagamanna var að von- um mikill en vonbrigði Vals- manna að sama skapi sár. Lið Vals, IA og Þórs eru mjög álíka að getu og á góðum degi vinna þau hvort annað, það kom einmitt í ljós í keppni. Lið Þórs er sterkt, drengirnir stórir og stæðilegir. Flesta leiki sína spilaði liðið vel og verðskuldar fyllilega það sæti sem það hreppti, með örlítilli heppni hefði liðið náð enn lengra. Þeir sem höfðu fyrir því að sjá þessa ungu menn spila fengu að sjá góða og skemmtilega knatt- spyrnu þar sem leikgleði og barátta sitja í fyrirrúmi. Meist- araflokksmenn félaganna geta ýmislegt af strákunum lært og þá myndi miðlungsleikjum ef- laust fækka, þeir eru allt of algengir. Barátta Þórs skóp sigur þeirra - er liðið bar sigurorð af KR-ingum 2-1 Sigur Þórs yfir KR kemur á elleftu stundu og má mikið vera ef hann á ekki eftir að reynast dýrmætur. Þegar einungis tveim- ur umferðum er ólokið í 1. deild hefur Þór 10 stig, sama stiga- fjölda og KR, en andstæðingar þess síðarnefndu eru öllu erfið- ari en Þórs. Hvernig sem fram- haldið verður þá jukust likurnar á áframhaldandi veru í 1. deild stórkostlega við sigurinn á fi mmtudagsk völdið. Aðstæður til knattspyrnu voru ömurlegar, úrhellisrigning og kuldi, knattspyrnap var líka samkvæmt því, léleg. Áhorfend- ur voru fáir eða einungis 750 manns. Upphafsmínúturnar lof- uðu svo sem góðu því heima- menn komust í 2:0 á fyrstu 12-13 mín. með mörkum Guðmundar Skarphéðinssonar og Guðjóns Guðmundssonar. Um frekari efndir loforða varð þó ekki og leikurinn datt niður á plan meðalmennskunar, kýlingar og hlaup án nokkurs ávinnings. Sóknir KR þennan tíma voru bitlausar og lítt útfærðar, áltént ógnuðu þeir ekki marki Þórs. Leikmenn áttu ákaflega erfitt með að hemja knöttinn svo sendingar andstæðinga á milli voru algengar. Síðari hálfleikur var keimlík- ur þeim fyrri nema hvað KR- ingar sóttu öllu meira. Þórs- arar gerðu þeim auðveldara fyrir með því að draga sig sífellt aftar og treysta á að halda fengnu forskoti. í sjálfu sér er það ekki óeðlilegt ef staða liðsins er höfð í huga en liðið þurfti þess ekki þar sem andstæðingurinn var ekki sterkari. Seint í leikn- um tókst Elíasi Guðmundssyni að skora fyrir KR en minnugir þess, að sókn er besta vörnin, sóttu Þórsarar síðustu mínúturn ar og fór Jón Lárusson m.a. illa með upplagt tækifæri. Baráttan var aðall Þórs í þessum leik og á henni má komast langt. I sjálfu sér var knattspyrnan sem liðið sýndi ekki góð en sigurinn sem slíkur öllu mikilvægari. Mikilvægi leiksins hefur haft sitt að segja en þó virtust Þórsarar hvergi bangnir og berjist þeir jafn mikið í komandi leikjum ætti fall að vera umflúið. Erfitt er að nefna einn leikmann öðrum fremur, þetta er fyrst og fremst sigur liðsheildarinnar. Nú er Þórsara að halda áfram á sömu braut, tryggja sæti sitt í 1. deild, svo Akureyri megi áfram eiga tvö lið í deildinni, jafn stórum bæ er ekki annað sæmandi. KA TAPAÐI 1-0 í EYJUM KA-menn náðu sér ekki á strik Án forgjafar: Högg Björgvin Þorsteinsson GA 151 Gunnar Þórðarson GA 154 Sigurjón R. Gíslason GK 157 Með forgjöf: Þórður Svanbergsson GA 143 Halldór Svanbergsson GA 146 Gunnar Þórðarson GA 146 „Það má segja að þetta hafl verið sanngjarn sigur. Eyjamenn voru mun ákveðnari og við náðum okkur eiginlega ekki á strik í leiknum“, sagði Ásbjörn Björns- son þegar hann var spurður um gang leiksins. IBV sigraði með einu marki gegn engu, og skoraði það Ómar Jóhannsson. Þetta er annar leikurinn í röð sem KA tapar og hafa þeir færst úr fjórða sæti niður í það sjöunda. Er vonandi að þeim takist að sigra í þeim tveimur leikjum sem þeir eiga eftir svo þeir verði ögn hærra á stigatöflunni. 6 - ÍSLENDINGUR

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.