Íslendingur - Ísafold - 08.11.1968, Blaðsíða 1

Íslendingur - Ísafold - 08.11.1968, Blaðsíða 1
1. tbl. Föstudagrur 8. nóvember 1968 ■ 53 og 93. árgangur AVARP til lesenda! „íslendingur — ísafo!d“, tvö elztu vikublöðin á Islandi sam- einuð í eitt — hefur nú göngu sína svo sem raun ber vitni. Og mdir það falla einnig sumpart að öllu og sumpart að einhve.. nokkur smáblöð. Sjálfstaeðismenn í strjábýlinu hafa samein- azt um útgáfu öflugs blaðs til þjónustu við þá, sem þar búa, og aðra þá, sem skilja og styðja málstað þeirra og hlutverk í þjóð- félaginu. „tslendingur — ísafold" er helgað viðburðum og málefnum í fjórum núverandi strjálbýliskjördæmum Vestfjarða, Norð- urlands og Austurlands. Frásögnum og stjórnmálaskoðunum er haldið aðskildum, en blaðið styður grundvallarstefnu Sjálf- stæðisflokksins. Stjórnmálaskrif þess eru á ábyrgð ritstjórnar einnar, nema annars sé getið. „íslendingur — ísafold" mun koma út tvisvar í viku megin liluta ársins, 8 síður i senn, annars einu sinni í viku, 8—12 síður í senn. Gildir sú meginregla um skiptinguna að blaðið komi einu sinni í viku framan af árinu og um mitt árið, annars tvisvar í viku. Er stefnt að því, að gefin verði út um 90 tölu- blöð á ári. Ársáskrift kostar 300 krónur, sem greiðast í tvennu lagi fyrirfram fyrir hvert misseri. Ekkert áskriftargjald verð- ur innheimt til næstu áramóta. Útgáfufélagið Vörður hf. er útgefandi blaðsins og það er unnið í prentsmiðju þess. Aðsetur er á Akureyri. — Félagið er þegar orðið svo öflugt að unnt er að hefja útgáfustarfsemina, en fjölbreytni og efling biaðsins er undir því komin, að félagið haldi áfram að stækka. Með stöðugri uppbyggingu einni sam- an er þess að vænta, að blaðið geti mætt kröfum um sífellt bætta þjónustu við viðskiptavini sína og þar með notið þeirra vinsælda, sem gerir það útbreitt og áhrifamikið. Útgáfufélagið Vörður h.f. væntir þess, að njóta enn auk- innar þátttöku samherja í baráttunni fyrir málstað strjálbýl- isins og hlutverki þess í þjóðfélaginu. Það væntir þess einnig, að „íslendingur — Isafold" megi njóta trausts og viðurkenn- ingar, ekki aðeins hjá viðskiptavinum blaðanna tveggja sem nú hafa verið sameinuð, heldur hjá öllum þeim, sem byggja strjálbýlið og/eða vilja reisa þar stoðir framfara og farsældar í nútíð og framtíð. Blað fyrir Vestfirði, IMorður- og Austurland Ungu stúlkurnar hér á mynd- inni, þær Olga Guðnadóttir og Heiðrún Hallgrímsdóttir, benda á það, hve óramikill meirihluti af íslandi tilheyrir hinu eigin- Iega strjálbýli. Strjálbýlið nær allar götur frá Holtavörðuheiði vestur um firði og norður um land, austur um firði og vestur með suðurströndinni á Skeiðar- ársand. Fyrir þetta svæði er „ís- lendingur-lsafald“ gefið út. Blaðið á sér það baráttumál stærst og mest, að auka skilning íbúa strjálbýlisins á stöðu sinni, hlutverki og möguleikum, og sam hug þeirra í framfarasókn, sem fullgildra þegna í landinu. Góð lífskjör allra landsmanna, jafnt andleg og veraldleg, eru forsenda byggðs lands. Byggt land er for- senda þess, að náttúruauður Iandsmanna verði nýttur. Hvor- ugt verður frá öðru skilið á með- an ísland er íslenzkt land. Barátta blaðsins verður því í rauninni barátta fyrir þjóðhags- lega réttlátri, hagkvæmri og nauðsynlegri byggðaþróun í fram tíðinni, lykilþróun almennra Viðræður stjórnmálaflokkanna um efnahagsmálin á lokastigi Litlar líkur á myndun þjóðstjórnar Viðræður stjórnmálaflokk- anna um efnahagsmál og úr- ræði erju nú á lokastigi, en þær hafa staðið yfir í um 2 mánuði. fullyrt, benda líkur til, að hug- myndir um þjóðstjórn í fram- haldi af viðræðunum eigi sér ekki lengri lífdaga auðið. efnaihagsráðstafanir dragist ekki I ekki í eðlilegan gang nú þegar frekair á Lamgimn, þar sem at- mesit á ríður fyrr en samræmdar viinnuilífið við sjávarsíðuna kemst ' aðigeirðir koana tii. framfara i lífskjörum og menn- ingu. Rödd þess á því ekki að vera neinum íslendingi óviðkom- andi. Vestfirðingar vilja efla sam- band sitt Á næsta ári verður Fjórðungs- samband Vestfirðinga 20 ára, en í því eru sýslu- og bæjarfélög á Vestfjörðum. í stuttu viðtali við formann sambandsins Sturlu Jónsson á Suðureyri, kom. m. a. fram að hugmyndir eru uppi um það, að veita hreppsfélögunum einnig beina aðild að samband- inu. Sturla sagði, að afmæli-sfundutr saimlbandsins yrði haldinn næsta vor, væntanlega á ísafirði. Kæmi iþesisd Ihuigmynd um eflimgu þess iþá væntanlega til athugunar. Að- spurður 'kvað Sturla það æski- lega þróuin, að sveitarfélögin í laindsfjórðungnuim efldu saimtölk sín og kæmu upp sameiginlegum stofnunum til þess að vimna að saimeiginJegum 'hagsmunamiádum. Veður ræður nú úrslitum í síldveiðunum fyrir austan Síldin um 70 mílur frá landi til áramótanna Án þess að nokkuð verði enn BATUR TYNDUR Saknað er 85 -tonna eikarbáts, Þráins NK 70 sem gerður hefur verið út frá Vegtmannaeyjum. Ekkert hefur heyrzt til hans síð- an á þriðjudagsmorgun en hann var á leið að austan til Eyja. Á bátnum eru 9 menn, 7 frá Vestmannaeyjum, 1 frá Reykja- vík og 1 úr Kópavogi. Skipstjóri er Grétar Skaftason. Sennilegasit er því að ríljis- stjóm 'Sjáilf%tæðisfl'okksins og_ A1 þýðuflökksánis sitj'i éfram vi® vöJid og, leg’gi von bráðar tillögur siínar fyriir Allþingi'. M>unu tveinns 'kionair úrræði helzt ihafa verið tal in 'koma til greina 'þ. e. aminars vegar gengisfeiling (hins vegar uppbóitarkerfi til bráðalbirgða. Hækkun siölliuiskatts mium einnig Ihafa verið til umræðu í hvoru tiil- viki.nu sem er. í byrjum Aliþiingis var frum- varp að .fjiárlöigum 1069 lagf fram, en í þvi var að sjiálfsögðu e'k'ki gert ráð fyrir ákveðnum ráð stöfunium í efinaihagsimiálúm, þar sem engan veginn varð séð (fyrir við samningu frumivarpsiins í ág- úslt, hy.er vandi yrði á höndtum og hvaða leiðir yrðé að fara tii úr- bóta. , Mjög knýjaindi er nú orðið að © Síldveiðarnar fyrir 'austan hafa brugðist í ár fram að þessu og er aflinn nú aðeins orðinn um fjórðungur þess, sem aflazl hafði á sama tíma í fyrra. Mun hann nema nú um 90 þús. lestum. Ekki er þó öll von úti um að úr þessu rætist. Fiski- fræðingar okkar hafa spáð því, að síldin muni halda sig nærri landi fram að áramötum og verða þægari en það sem af er. Ef s'pá þeirra reynist rétt, ræð- ur veðrið naéstu vikurnar því, hvort pyngjur Austfirðinga og Norðlendinga þyngjast að gagni í ár, — og þá um leið miklu um ástandið í ríkiskass- anum. • í góðu veðri um síðustu helgi fengu þátarnir góðan afla fyrir austan, síðan kom bræla, en í gær fóru þei£.ýt aft- ur og með góðar vonir um afla, • Síldin hefur undanfarið ver . ið 40—50 mílur undan landi og alll niður í 10 mílur. En fiskifræðingar hafa spáð því, að hún muni halda sig 50 til 90 milur frá landi fram und- ir áramót.

x

Íslendingur - Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.