Bankablaðið - 01.12.1944, Blaðsíða 62
74
BANKABLAÐIÐ
MINNINGARORÐ
EYJÓLFUR JÓNSSON
fyrrv. útibússtjóri
Það er auðvelt að láta penna spretta úr
spori — og jaínvel „gamm geysa í hlað“ að
Sólvangi á Seyðisfirði, þegar minnst skal
Eyjólfs Jónssonar. En mér er markaður bás
og verður farið fljótt yfir sögu.
Eyjólfur var fædclur í Sandvík í Norð-
fjarðarhreppi 31. okt. 1869. Foreldrar hans
voru Gróa Eyjólfsdóttir og Jón Þorvalds-
son, ættaður úr Austur-Skaptafellssýslu.
Bjuggu þau síðan um hríð að Stóra-Steins-
vaði í Hjaltastaðaþingá og síðan á
Seyðisfirði. Voru þeir albræður Eyjólfur og
Stefán Th. kaupm. og konsúll á Seyðisfirði.
Um tvitugsaldur lærði Eyjólfur klæð-
skeraiðn i Stavangri í Noregi og síðan ljós-
myndagerð í Kaupmannahöfn. Báðar þess-
ar iðngreinir stunclaði hann síðan á Seyðis-
firði.
Þegar Islandsbanki var settur á stofn 1904,
var Eyjólfur skipaður forstjóri Útibúsins á
Seyðisfirði og gegndi hann því starfi í full
25 ár, eða til 1929.
En Eyjólfur kom víðar við sögu:
Árið 1897 var liann kosinn í bæjarstjórn
Seyðisfjarðarkaupstaðar og átti þar sæti í
39 ár, eða til ársloka 1937, að einu ári und-
anskildu.
Sænskur vara-ræðismaður fyrir Austur-
land var hann skipaður 1921. Var sæmdur
sænskri orðu og einnig fálkaorðunni ís-
lenzku.
Hann var skipaður í yfirskattanefnd
Norður-Múlasýslu og Seyðisfjarðarkaup-
staðar 1922, er sú nefnd tók fyrst til starfa.
Formaður fasteignamatsnefndar Seyðisfjarð-
ar var hann skipaður 1916. Yíirleitt gegndi
hann þessum störfum til ársloka 1936, að
hann baðst undan endurkosningu í bæjar-
stjórn á Seyðisfirði. í ræðuhöldum, sem
öðru, var hann fjörlegur, skenmitilegur og
hispurslaus.
Eftir að hann hætti bankastjórastarfinu
1929 var aðalstarf lians verzlun og ljós-
myndagerð og ýmis umboðsstörf.
Hann andaðist á síðastliðnu vori.
Eyjólfur naut ekki skólamenntunnar sem
kallað er, en glöggskyggni hans, greind og
víðsýni gerði það að verki, að manni gat
fundist að um lærðan mann væri að ræða
í vissum greinum. Hann hafði þann hátt,