Jazzblaðið - 01.02.1951, Blaðsíða 12

Jazzblaðið - 01.02.1951, Blaðsíða 12
Helgi Ingimundarson: HUGLEIÐINGAR UM HLJÓÐFÆRAINNFLUTNINGINN Hérna um daginn var ég að blaða í amerískum verðlista yfir hljóðfæri og ég verð að viðurkenna, að ég hugs- aði sem refurinn, sem sagði: ,,Þau eru súr“. Að vísu er þetta gamall verð- listi, en það væri gaman, ef hljóðfæri eins og þar var að finna væru á boð- stólnum hér. Hugsið ykkur að ganga inn í hljóðfæraverzlun hér á landi og geta skoðað og keypt ný hljóðfæri af öllum gerðum. — Nei, slíkt geta aðeins bjart- sýnustu draumóramenn hugsað. JVfaður gat orðið sárgramur við að skoða þetta og vera búinn að spila eða öllu heldur reyna að spila á hljóðfæri yfir lengri tíma, sem að útliti líkist einna helzt manni, sem lent hefur í bíl- sly3Í og það miklu. Annar hver hlutur heimatilbúinn og allt vafið í plástrum. Það hefur komið sér vel, að maður lærði „Hjálp í viðlögum“ í gamla da^a. Eg ætla ekki að lýsa hljóðunum, sem koma svo úr þessu, minnir mann helzt á væl í gamalli, ryðgaðri loftvarnar- flautu. Eg veit að margir hljóðfæraleikarar hafa ljótar sögur að segja um viður- eign sína við að halda hljóðfærinu í góðu lagi og það er áreiðanleg stað- reynd, að i mörg ár hefur það háð fjölda íslenzkra hljóðfæraleikara, að innflutningur á hljóðfærum hefur al- gjörlega — jæja, til að taka ekki of djúpt í árina — að mestu verið stöðv- aður. Þetta væri nú ekki svo bölvað, ef hægt væri að halda við gömlum hljóð- færum og kaupa varahluti i þau, en það er því miður næstum ómögulegt, því að varahlutir sjást ekki frekar en hljóð- færin í ,,hljóðfæra“-verzlunum bæjar- ins. Þetta er mikið vandamál, sem ég veit, að flestir hljóðfæraleikarar lands- ins hafa átt við að stríða undanfarin ár. Eina ráðið hefur oftast verið að þekkja mann, sem þekkir mann, sem siglir eða eitthvað svoieiðis, en það er ekki nema einn af hundraði, sem hefur þá aðstöðu. Einhver smávegis innflutningsleyfi hafa ,,hljóðfæra“-verzlanir bæjarins fengið á seinni árum og flutt inn eitt- hvað smádót. Sumt gott, sumt sæmilegt, en mest bölvað rusl. Þeir, sem að hljóð- færaverzlununum standa vita nefnilega, að mesti businessinn er sá, að nota leyf- in til að kaupa nógu mikið af smádrasli, t. d. gamlar dægurlaganótur með lögum, sem gengu fyrir tveim til þremur árum, lélegar grammófónnálar, slæm saxófón- og klarinetblöð, auman nótnapappír o. s. frv. og svo að selja „fyrrverandi" hljóðfæri í umboðssölu. Sökin er þó ekki nema að örlitlu ráði hjá „hljóðfæra“-verzlununum. Það er gjaldeyrisvandamálið, sem á víst að eiga alla sökina. Þessi grýla, sem nú er notuð miskunnarlaust sem afsökun þess, að lítið sem ekkert nauðsynlegt er flutt til landsins. Maður gæti haldið vegna hins stöðuga innflutnings á bílum, að hinir 12 jazzltaU

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.