Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.2009, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.2009, Blaðsíða 4
N etið er ekki bara tetris og tölvupóstur. Fyrir utan samskiptabyltinguna sem það hefur haft í för með sér, þá vex því líka stöðugt ásmegin sem opinn pott- ur hugmynda og kenninga, fantasía og fyr- irbæra. Gagnabanki misnothæfra hugmynda Um daginn rakst ég á vef sem heitir halfba- kery.com. Þetta hálfbakarí er einskonar sam- félagslegur gagnagrunnur hálfbakaðra upp- finninga og hugmynda, sem byggðar eru á pælingum þeirra sem vilja vera með. Þarna kraumar skapandi hugsun og springur út í bæði framkvæmanlegum hugmyndum og óframkvæmanlegum; sumar eru lagðar fram í fúlustu alvöru, aðrar í alvarlegu gríni. Þeir sem skoða vefinn geta gefið hugmyndunum einkunnir í formi brauðhorna. Muniði eftir þrívíðu myndunum sem eru á sumum pennaveskjum og svoleiðis hlutum? – Mikki mús skiptir um stellingu eftir því hvort horft er á myndina frá vinstri eða hægri. Ein skemmtilegasta hugmyndin í Hálfbak- aríinu er sú að sæti strætisvagna verði klædd slíkum myndum, svokölluðum „sterogram“-myndum, eða „anaglýf- um“, þannig að þegar maður hallast í beygju, þá breytist myndin á sætinu fyrir framan mann. „Myndi þetta ekki gera langar strætóferðir mun áhuga- verðari?“ spyr höfundur hugmynd- arinnar. Alvarlegri er sú hug- mynd og sniðin að amerískum veruleika að um leið og fólk fær PIN-númer á greiðslukortin sín, fái það líka öryggis PIN-númer til þess að nota ef það lendir í því að byssubófar þröngvi því til að taka út pening. Með því að slá það inn kæmi löggan um- svifalaust og myndavélin á hraðbankanum færi að taka upp í extra góðri upplausn myndir af glæpamönnunum. Gallinn er auðvit- að sá að hvorugt garanterar að bófarnir drepi ekki manneskjuna með kortið. Það þarf ekki að taka fram að hugmynd- irnar spanna vítt svið viðfangsefna, og því er þeim raðað í flokka til að gera þær aðgengilegri. Svo er það hugmyndin um kassa- hljóðin í matvörubúðunum. Í stað óþolandi takkahljóðanna, væru sjóðsvélarnar prógram- meraðar til að spila tónverk þegar ýtt væri á takkana – samhæft, þannig að á kassa eitt væru fiðl- urnar, víólurnar á kassa tvö, málm- blásararnir á kassa fimm o.s.frv. Þannig dreymir höfund hugmynd- arinnar um að hann gæti hlustað á Messías eftir Händel meðan hann bíður í röðinni. Verst ef kassi fjög- ur væri lokaður og maður heyrði verkið án kórsins. Ein hugmynd kveikir aðra Hvað um það. Það eru kannski ekki hugmyndirnar sjálfar sem eru aðalatriðið hér, heldur það að fólk skapi sér vettvang til að deila skapandi hugmyndum. Auðvitað er hægt að deila hugmyndum með ýmsu móti, en netið er forsenda þess að slíkur pottur geti orðið lifandi og gagnvirkur og hann nær óneitanlega sjónum ótrúlega margra. Það sýnir sig líka vel í Hálfbakaríinu, að ein hugmynd kveikir aðra, og þótt sú fyrsta kunni að virka fáránleg, kemur næsta mann- eskja ef til vill með nýtt sjónarhorn, eða reynslu sem nýtist til að betrumbæta hana. Allir eru hugmyndasmiðir; okkur er eiginlegt að spá og spekúlera. Framþróun mannsins hefur byggst á því að við pælum og veltum hugmyndum á milli okkar. Einn góðan veð- urdag kemur sá sem sér tilganginn í hug- myndinni og bakar hana til fulls. begga@mbl.is Með Messíasi við kassann Það kraumar í pottum Hálfbakarísins, sem er pottur skapandi hugsunar NETIÐ BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR halfbakery.comJá takk! Mikka mús í þrívídd á strætósæti! Í sænsku hryllingsástarsögunni Hleyptu þeim rétta inn (Låt den rätte komma in; 2008) hrýtur orðið „vampíra“ aðeins einu sinni af vörum aðalpersónunnar, hins tólf ára Ósk- ars (Kåre Hedebrant). Það er engu að síður eina lýsingin sem á við um jafnöldru hans, Elí (Lina Leandersson), sem ásamt „föður“ sínum er ný- flutt inn við hliðina á Óskari í félagsmála- blokkahverfi í útjaðri Stokkhólms. Það fyrsta sem Elí segir við nágranna sinn þegar þau hitt- ast að kvöldlagi á snæviþakinni lóðinni fyrir framan blokkina er: „Ég get ekki orðið vinur þinn“ – en sú verður þó raunin, náinn vinskapur skapast milli þeirra og áður en langt um líður kemst Óskar að þeirri niðurstöðu að ekki sé allt með felldu varðandi þessa nýju vinkonu sína. Án verulegrar undrunar, enda þykist hann vita svarið, spyr hann um miðja mynd hvort hún sé vampíra og, eftir að hafa hugsað sig um í ör- skotsstund, kinkar Elí kolli. „Hvað ertu þá göm- ul?“ spyr hann. „Ég er tólf“, svarar hún, „en ég hef verið tólf í dálítið langan tíma“. Samband Óskars og Elí er meginviðfangsefni Hleyptu þeim rétta inn sem byggð er á sam- nefndri skáldsögu eftir John Ajvide Lindqvist, en hann skrifar sjálfur kvikmyndahandritið. Leikstjóri er Tomas Alfredson og tekst honum, ásamt kvikmyndatökumanninum Hoyte Van Hoytema, að skapa sérstaka vetrarveröld úr hráslagalegu blokkaumhverfinu; bókstaflega allir litir eru kaldir og snjórinn er dimmblár nema þegar hann litast blóði. Skógurinn í ná- grenninu rennir stoðum undir ævintýrabraginn en drykkjulæti íbúanna, sem flestir virðast vera atvinnulausir (og minna samkundur þeirra jafn- vel á senur úr Kaurismäki-mynd), draga þó andrúmsloftið aftur niður á jörðina. Þá er þetta tíðaranda-mynd, hún á að gerast á áttunda ára- tugnum og kannast eflaust margir sem muna tímabilið við innanstokksmuni og leikföng, svo ekki sé minnst á fatatískuna. Ef þessa mynd er að marka þá hefur Reykjavík áttunda áratug- arins átt ýmislegt sameiginlegt með fátæku út- hverfi í Stokkhólmi á sama tíma. En eins og áð- ur segir er það vinskapur Óskars og Elí sem liggur myndinni til grundvallar, bæði hafa þau hrakist á ákveðinn samfélagsjaðar, Elí af aug- ljósum ástæðum, en Óskar vegna þess að for- eldrar hans eru skilin, og hann sætir einelti í skólanum. Blóðsugan tákn bældra hvata Það er eineltið sem í raun þrýstir þeim saman. Óskar er í hefndarhug, það er augljóst. Van- máttur hans gagnvart fjandmönnum sínum, en leiðtogi þeirra er hinn yfirmáta dannaði Conny (Patrik Rydmark), virðist jafnvel ætla að brjót- ast fram í einhvers konar voðaverki. Þar sem leið þeirra Elí og Óskars liggur saman fyrsta kvöldið fyrir utan blokkirnar er Óskar til dæmis að æfa sig með hníf. Hann hreytir ónotum út í nóttina, hótunum sem skýrlega er beint að Conny, og rekur svo sakleysislegt tré „á hol“ á illyrmislegan hátt. Þetta sér Elí og virðist jafn- vel laðast að honum fyrir vikið. Meðferðin sem Óskar hlýtur í skólanum er slæm og ljóst er að andlega er hann kominn að suðumarki. Freist- andi er því að lesa blóðsuguna sem hann kynnist á þessum tímapunkti sem táknræna birting- armynd bældra hvata og hefndarhugs Óskars, en ekki er um neitt að villast í söguheiminum. Elí er áþreifanleg og raunveruleg, eins og ýmsir nágrannar hennar komast að sér til lítillar ánægju. Þannig tekur hrina fjöldamorða í nágrenni blokkanna að vekja athygli og samband Elí við „föður“ sinn, samviskulausan fylgihnött sem nefnist Håkan (Per Ragnar), spilar þar óhugn- anlegt hlutverk. Håkan gengur erinda Elí, en virðist einnig knúinn áfram af eigin hvötum, og „þorsta“ sem er ekki síður skelfilegur en sá sem stjórnar Elí. Þorsti og drykkja eru reyndar við- varandi mótíf í myndinni – fjölmargar senur sýna fullorðna fólkið sitja að sumbli, karlar og konur verða iðulega ofurölvi, og faðir Óskars vanrækir hann, en ræktar flöskuna af þeim mun meiri áhuga. Alkóhólisminn í umhverfinu spegl- ast þannig í „drykkjuþörf“ vampírunnar Elí. Þörf hennar fyrir lífsvökvann er yfirþyrmandi og banvæn, en félagslegur eyðileggingarmáttur áfengisins virðist þó að sumu leyti verri. Forðast margar klisjur Galdur myndarinnar felst í persónusköpun hinna ungu vina. Óskar á við ýmis vandamál að stríða og Elí hjálpar honum að bregðast við þeim. Þá virðist Elí einmana og hálfráðvillt, og vinátta Óskars er einkar þýðingarmikil fyrir hana. Ýmis atriði sem sýna vinskap sem nær yf- ir „tegunarmörk“ eru sérlega vel útfærð og jafnvel hjartnæm, en undir niðri kraumar þó ávallt myrk undiralda. Þetta er að sumu leyti frostbitin mynd, framvindan er köld í ýmsum skilningi og myndramminn er iðulega þannig uppsettur að lítið er um óvæntar hreyfingar. Þá hreyfist sjálf myndavélin lítið, myndramminn er afmarkaður eins og á málverki, og það er jafn- vel hægt að ímynda sér að hún hafi frosið við jörðina. En þannig forðast myndin einnig marg- ar klisjur formsins (líkt og snöggar óvæntar hreyfingar og ískrandi „bregðutónlist“) og í per- sónusköpun, en endurnýjar um leið vamp- írumyndahefðina á afar kraftmikinn hátt. Hleyptu þeim rétta inn ferðaðist á milli kvik- myndahátíða fyrri hluta síðasta árs, var frum- sýnd á Norðurlöndunum síðasta haust og hefur verið tekin til sýninga víðsvegar á meginlandi Evrópu síðan um jólin. Þegar hefur verið hafist handa við bandaríska endurgerð. vilhjalmsson@wisc.edu Hleyptu þeim rétta inn (2008) | Tomas Alfredson MYNDIR VIKUNNAR BJÖRN ÞÓR VILHJÁLMSSON Vandasöm vinátta MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009 4 LesbókKVIKMYNDIR N ornin í vestri er látin (Nishi no Majo ga Shinda; eða The Witch of the West is Dead á ensku) er japönsk skáldsaga eftir Kaho Nashiki. Bókin sló öll met þar í landi þegar hún kom út, hlaut fjölda verðlauna, og er víst álitin nútímaklassík. Hún hefur nú verið löguð að hvíta tjaldinu af Shunichi Nagasaki og útkoman er fallega ljóðræn mynd um sumardvöl ungrar stúlku hjá ömmu sinni í sveit- inni. Mai (Mayu Takahashi) er unglingur sem á við félagsleg vandamál að stríða, hún neitar að mæta í skólann og foreldrar hennar eru ráðalausir. Úr verður að Mai er send til ömmu sinnar í sveitinni, en sjálf kallar amm- an sig „nornina í vestrinu“. Tíminn sem þær verja saman er að sumu leyti hefðbundið þroskaferli. Amman (Sachi Parker, dóttir Shirley McClain) er nátt- úruunnandi sem ræktar grænmeti og býr til sultu í rólegheitunum, og býr í húsi sem er eins og því hafi verið hnuplað beint út úr ævintýri. Líf- inu vindur fram eins og tuttugasta öldin hafi aldrei átt sér stað og ljóst er að nokkurt aðlög- unarferli bíður borgarbarnsins Mai. Þetta er mynd sem tekur sig mátulega alvarlega, og þótt hún sé látlaus í yfirbragði er ýmislegt sem á sér stað undir yfirborðinu. Myndin ferðast þessa stundina milli kvikmyndahátíða og var m.a. sýnd á London Film Festi- val í haust en hefur hvergi verið tekin til almennra sýninga nema í Japan. Nornin í vestri er látin (2008) | Shunichi Nagasaki Sveitasæla S káldsaga franska rithöfundarins Michel Houellebecq, Möguleikinn á eyju (La Pos- sibilité d’une île; Possibility of an Island í enskri þýðingu), hefur nú verið kvikmynduð, en líkt og sum önnur verk eftir hann fjallar bókin um bitra karlmenn, kvenhatur, úrkynjaða Evrópu, endalok mannkyns og fáránleika þess að álíta einhvers konar von eða endurnýj- unarkraft búa í menningunni. Mögu- leikinn á eyju er þriðja skáldsaga Houellebecq til að vera löguð að hvíta tjaldinu (á eftir Öreind- unum og Útvíkkun átaka- sviðsins) en nú hefur hann tekið ráðin í sínar hendur og leikstýrir verkinu upp á eigin spýtur. Útkoman er misjöfn. Að mörgu leyti er hér ekki um beina aðlögun skáldsögunnar að ræða. Houellebecq ræðst til atlögu við þemu úr bókinni (t.d. trúarbrögð og klónun) og jafnvel má segja að hann einbeiti sér að síðasta þriðjungi skáldsögunnar. Þeir sem lesið hafa söguna munu sakna biturrar hæðni hennar, sem og gagnrýni þess hluta verksins sem fjallar um samtíma- menningu, en afar athyglisvert er að sjá hvernig Houellebecq nálgast eigið verk í þessum miðli, eink- um vegna þess að upp- haflega skáldsagan er mjög upptekin af kvikmyndagerð og kvikmyndaiðnaðinum. Enn sem komið er sýnist mér Möguleikinn á eyju aðallega ferðast um kvikmyndahátíðir. Möguleikinn á eyju (2008) | Michel Houellebecq Framtíðarósómi Óskar og Elí „Hvað ertu þá gömul?“ spyr hann. „Ég er tólf“, svarar hún, „en ég hef verið tólf í dálítið langan tíma“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.