SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 20

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 20
að sig á því hve fræg hún var orðin: „Ef ég á að segja al- veg eins og er fattaði ég þetta ekki. Sem betur fór. Ég er bara fyrst núna að átta mig á því að það er þokkalega mikið að selja níu þúsund plötur. Ég pældi aldrei í þessu. Ég labbaði um göturnar og furðaði mig á því af hverju fólk væri að stara á mig.“ Á Crouçie D’où Là og Merman var lítið um Emilíönu, ef svo má segja, því lagalistinn var aðallega þekkt lög eftir aðra söngvara. Í viðtali við franskt vefsetur á síðasta ári sagðist Emilíana helst ekki vilja tala um þær plötur núorðið og þannig hefur hún komið í veg fyrir að þær verði endurútgefnar. Lagt upp í víking Hún var þó að iðja við fleira en sólóskífur því 1995 lék hún í kvikmyndinni Einkalíf eftir Þráin Bertelsson og tók þátt í starfi fjöllistahópsins Gus Gus, en var þá með á prjónunum að reyna fyrir sér ytra og gerði það, fluttist til Lundúna og tók til við að móta sólóferil. Framan af bjó hún í Lundúnum, en settist síðan að í Brighton og býr þar enn, segir að víst sé það stórundarlegur staður, en að sama skapi mjög indæll. „Það er æðislegt að búa þar, það er svo mikið listalíf, og bóhemlíf, enda er allt fullt af hippum.“ Eftir talsverða vinnu varð til breiðskífan Love In the Time Of Science, sem kom út 1999, en á henni á Emilíana nokkur lög, sum unnin í samvinnu við Eg White, en mest ber á þunglamalegum lögum Rolands Orzabal, sem gerði garðinn frægan með Tears for Fears. Platan seldist vel, en mörgum fannst þó fulllítið af Emilíönu á skíf- unni; víst söng hún á henni og átti fín lög, en tónlistin eiginlega ofhlaðin. Á næstu árum var mikil vinna lögð í að kynna plötuna um Evrópu og gekk vel, sérstaklega í Frakklandi, Þýska- landi og á Spáni, en gekk ekki nema miðlungi vel í Bret- landi þrátt fyrir mikla vinnu. Það leið líka drjúgur tími í næstu plötu; Love in the Time of Science kom út 1999, en næsta plata þar á eftir ekki fyrr en sex árum síðar. Það má segja að það hafi orðið ákveðinn vendipunktur í tónlistarsögu Emilíönu þegar hún kynntist tónlistar- manninum Dan Carey, sem notar alla jafna listamanns- nafnið Mr. Dan. Þau unnu til að mynda að tveimur lög- um á milljónaplötu Kylie Minogue sem kom út 2003, en aðalvinnan var þó sólóplata númer fimm: Fisherman’s Woman. Úr annarri átt Fisherman’s Woman kom úr allt annarri átt en platan á undan, einlæg og hjartnæm plata með fínlegum útsetn- ingum og undirspili þar sem menn leituðu greinilega einfaldleikans, einskonar andsvar við íburðarmiklu poppi fyrri verka – í stað rafeindahljóða og hljómaflækju kom kassagítar, marr og raul – nú var Emilíana búin að finna fjölina sína og kom ekki á óvart að Fisherman’s Woman fór beint á toppinn á Tónlistanum íslenska og sat þar sem fastast mánuðum saman. Gagnrýnandi Morgunblaðsins gaf plötunni fimm stjörnur og lýsti henni svo: „Emilíana hefur aldrei verið eins mikil Emil- íana – ef þannig mætti að orði komast. Aldrei, að manni virðist, gefið eins mikið af sjálfri sér og verið eins vel heima í því sem hún hefur verið að gera.“ Einfaldleikinn var þó ekki bara vegna þess að hún vildi skipta um stíl, það bjó harmur undir því Emilíana hafði misst sambýlismann sinn í bílslysi og samdi plöt- una sem einskonar hugarfró, losaði um tilfinningarnar með því að skrifa bréf til hans sem væri hún sjómanns- ekkja og hann í eilífðarsiglingu, eins og nafn skífunnar ber reyndar með sér. Meira fjör Á næstu plötu, Me and Armini, var heldur meira fjör í músíkinni, en þó eðlilegt framhald af Fisherman’s Woman. Hún vann plötuna eins og þá fyrri, þ.e. í sam- starfi við Mr. Dan, nú sömdu þau tvö öll lögin saman, og ekki varð árangurinn síðri. Í spjalli segist hún hafa þá fyrst náð því sem hana langaði að gera þegar hún kynnt- ist Carey: „Ég fæ voða lítið af hugmyndum að lögum yf- irleitt, það er frekar að ég sjái fyrir mér myndir, landslag eða atriði í bíómyndum og hann er galdramaður í að ná að skapa þær myndir í tónlist; ég segi honum bara hvað ég er að hugsa og undireins verður eitthvað til sem verður svo að lagi,“ segir Emilíana. „Vinnan byrjar oft á því að ég vel eitthvert hljóðfæri sem mér finnst passa við það sem ég er að pæla og svo kemur þetta bara. Ég hef lært það smám saman að málið er að vera ekki að þvinga neitt fram, bara vera í flæði og leyfa lögunum að birtast, enda langar þau til að fæðast.“ Þetta vinnulag dugði þeim Emilíönu og Carey svo vel að platan varð til á undraskömmum tíma, lögin samin á rúmum tveimur vikum samtals, með góðum hléum á milli. Megnið var samið í Oxford og á Íslandi, en Emil- íana segist sækja sér innblástur hingað, í íslenska nátt- úru, íslenskt þjóðfélag og íslenskt fólk. Hún segir líka að það sé henni mjög mikilvægt að geta tekið frá tíma til lagasmíða, það verði aldrei neitt til af viti í tónleikaferð- um, „maður er alltaf í flugi eða að bíða eftir sándtékki, eða að hanga í rútunni“. „Semja lög, kveikja bál og vera glöð“ Hvað næstu plötu varðar þá hyggst hún beita álíka að- ferðum, en nú stendur til að fara lengra í burtu, alla leið til Joshua Tree í San Bernardino, Kaliforníu, og þar á að geta atlögu að næstu plötu; „semja lög, kveikja bál og vera glöð, eins og að vera uppi á jökli“, segir Emilíana, en bætir við að þótt hún sæki svo langt í burt sé líka morgunljóst að hún muni einnig semja einhver laganna hér á landi til að halda jarðsambandinu. „Það er bara svo mikið af skemmtilegum hippum í Joshua Tree sem eru líka ótrúlega fínir tónlistarmenn og það er svo gaman að sitja með fólki og impróvísera, að hitta fólk sem finnst gaman að spila og er ekkert að pæla í því að búa til plötur eða lög. Fólk tekur bara upp hljóðfærin og spilar fyrir ánægjuna, svo byrjar einn að syngja og annar að radda og svo er allt í einu komið lag. Mig þyrstir í að komast í það umhverfi, en í Bretlandi eru allir svo mikið í vinnunni, allt er svo alvarlegt um leið og hljóðfærin eru komin á loft.“ Undanfarna mánuði hefur Emilíana verið á ferð um Evrópu með hljómsveit sinni; hóf ferðina í Árósum í júní á tónleikum sem voru svo einkennilegir að hennar sögn að henni þótti sem hún væri ekki viðstödd þá, heldur sæti hún úti í sal að fylgjast með því sem var að gerast á sviðinu. Áheyrendur kunnu þó vel að meta framlag frammistöðuna, en ekki fór á milli mála að menn voru ekki alltaf með á nótunum, nema hljómborðsleikarinn, enda var hann með nóturnar fyrir framan sig. Hann var nefnilega að spila með sveitinni á sínum fyrstu tón- leikum og hafði aðeins fengið hálfan dag í æfingar. Ekta slagari Það var því hálfgerður losarabragur á öllu saman, en eins og getið er kom það varla að sök, því Emilíana geisl- ar frá sér svo mikilli einlægni og hlýju á tónleikum að áheyrendur geta ekki annað en hrifist af og gildir nánast einu hvaða seið er verið að fremja á sviðinu. Núorðið er sveitin þó vel samansúrruð, því tónleikahald hefur verið afskaplega stíft, en meðal góðra liðsmanna hennar eru þeir Sigtryggur Baldursson trommuleikari, sem sumir þekkja sem Bogomil Font, aðrir sem Sigtrygg í Sykur- molunum og enn aðrir sem helming Steintryggs, og Pét- ur gítargoð Hallgrímsson sem hefur spilað með flestum þeim sem eitthvað er spunnið í að spila með hér á landi og einnig verið í lausamennsku ytra með góðum árangri. Í Evrópuferðinni lá leið Emilíönu til Austur-Evrópu í fyrsta sinn, en þangað hafði hana víst alltaf langað til að koma en umboðsskrifstofa hennar ekki hirt um að taka þeim óskum sem bárust um tónleikahald þar á slóðum. Skemmst er frá því að segja að henni var hvarvetna vel tekið, en hvergi betur þó en í Mið-Evrópu, því engin þjóð kann eins að meta Emilíönu og Þjóðverjar, að lönd- um hennar frátöldum. Það segir sitt að lagið Jungle Drum af Me and Armini fór á toppinn á þýska smáskífu- listanum og sat þar sem fastast í heilar átta vikur að það hnikaði sér í annað sæti listans. Jungle Drum var þó ekki bara vinsælt í Þýskalandi, Svisslendingar og Austurríkismenn tóku því líka fanta- vel, en það varð þó hvergi eins vinsælt og í heimalandi schlagersins – sagan segir að ekkert lag hafi verið sungið eins mikið á októberhátíð Bæjara og þar hafi menn feng- ið að heyra af því alls konar útgáfur; polka, lúðrasveitir, skemmtara – hvaðeina sem tiltækt var og menn kunnu sæmilega að spila. Það má til að mynda stytta sér stundir við það að hlusta á óteljandi útgáfur lagsins á YouTube, hvort sem menn eru að flytja það sjálfir á kassagítar, fiðlu eða með aðstoð fullmannaðrar grenjandi dauða- rokkssveitar. Flugumaður minn í föruneyti Emilíönu sagði mér þá sögu að hún hefði brugðið sér til Düsseldorf í spjallþátt hjá Oliver Pocher, Hemma Gunn þeirra Vest- urvellinga, og flutt lagið með húshljómsveit Pochers og þar hefði lagið fengið að hljóma áþekkt og Geirmundur Valtýsson hefði snúið því upp á gömludansana – sem- sagt: echter Schlager. Síðustu tónleikarnir í haustsyrpu Emilíönu og félaga voru í Melkweg í Amsterdam sl. þriðjudagskvöld og nú kærkomið frí. Það er þó ekki langt, því næstu tónleikar verða í Portúgal næstkomandi laugardag, 31. október, og síðan eru tvennir tónleikar til áður en hún kemst í jólafrí. Eftir jól verður snúið í gang að nýju, því 30. des- ember er þráðurinn tekinn upp í Ástralíu, aukinheldur sem í bígerð er að spila vestan hafs sem er ónumið land hvað Emilíönu varðar því hún hefur ekki haldið tónleika þar að ráði hingað til, en fór reyndar skreppu í haust. Emilíana í stuði Það er líka meira í pípunum, því verið er að púsla saman ferð um Asíu á nýju ári og því nóg vinna framundan. Það finnst henni líka vera hið besta mál: „Ég er búin að fá mér frí þessi ár [sem liðu á milli platna] og mig langar til að halda áfram núna, ég er í stuði, mér finnst þetta svo gaman. Þetta er akkúrat það líf sem ég vil helst lifa núna, ferðast um heiminn og spila fyrir fólk. Ég veit það að þegar ég fer heim í frí þá er ég orðin ólm að komast af stað aftur eftir tvær vikur svo ég vil gjarnan halda áfram af krafti,“ segir Emilíana og bætir við að það sé ekki síst gaman þegar sveitin sé búin að spila sig svo vel saman, enda fara lögin þá að breytast í meðförum hennar, menn hætta sér út af nótnablaðinu. Að því sögðu þá er þó takmarkað hverju hægt er að breyta því lagavalið er fjölbreytt og þarf títt að skipta um hljóðfæri til að láta allt ganga upp: „Það eru svo margar gítarskiptingar milli laga og þá þarf að stilla. Það fer því mikill tími í það hjá mér að bíða á meðan menn eru að gera sig klára og þá verð ég svo stressuð og fer að blaðra, segja bölvaða vitleysu og lygasögur; vinir mínir sem sjá mig á tónleikum koma svo til mín og segja: ég man ekki eftir að þetta hafi verið svona,“ segir hún og hlær inni- lega. „Vinnan byrjar oft á því að ég vel eitthvert hljóðfæri sem mér finnst passa við það sem ég er að pæla og svo kemur þetta bara. Ég hef lært það smám saman að málið er að vera ekki að þvinga neitt fram, bara vera í flæði og leyfa lög- unum að birtast, enda langar þau til að fæðast.“ 20 25. október 2009
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.