SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 29

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 29
Við elskum áskor- unina sem felst í því að horfa á hvers kyns úr- gang og ímynda okkur eitthvað stórkostlegt sem gæti komið út úr honum. 25.október 2009 29 Uppvinnsla hefur verið stunduð hér á landi, sérstaklega í fata- og skartgripahönnun. Ein þeirra sem hefur nýtt sér gamalt dót til sinnar hönnunar er Sigríður Ásta Árnadóttir, sem hannar undir merkinu Kitschfríður. Pils og veski sem hún hefur útbúið úr gömlum Álafossteppum hafa notið vinsælda, raunar svo mik- illa að nú er Sigríður orðin uppi- skroppa með hráefni í þá hönn- un, þrátt fyrir að hafa ítrekað auglýst eftir teppum. „Ég held að kreppan sé að setja svolítið strik í hráefnisöflunina hjá mér,“ segir hún hlæjandi. „Ég fann það um leið og kreppan skall á í fyrra – fólk heldur meira í það sem það hefur.“ Þetta merkir hún einnig á því að hún fær ekki jafn mikið af garnafgöngum og áður „enda allir farnir að prjóna.“ Hún seg- ist þó ekki í miklum hráefn- isvandræðum, enn sem komið er. „Ég hef mest verið að endur- vinna gömul ullarföt og það er svolítið misjafnt hvað ég breyti efninu mikið. Ef það er gott eins og það er breyti ég áferð- inni ekki, en yfirleitt lita ég flík- urnar og sauma svo eitthvað ut- an á þær. Undanfarið hef ég gert mikið af því að taka gamla handavinnu; útsaum, puntu- dúka og annað slíkt og skreytt peysurnar með því en ég hef gaman af því að setja ólíka hluti saman.“ Hún segir eftirspurnina hafa hægt og sígandi verið að aukast í versluninni Kirsuberja- trénu þar sem hún selur vörur sínar, en það háir framleiðsl- unni einna helst hversu mis- jafnt hráefnið er. „Framleiðslan er því voðalega lítið stöðluð en ég er oft spurð hvenær ég ætli að koma með meira úrval af peysum í ákveðinni stærð eða lit. Ég á hins vegar ósköp erfitt með að anna sérstakri eft- irspurn því ég læt hvern hlut svolítið segja mér hvað hægt er að gera við hann.“ Álafossteppin fá að njóta sín. Hver hlutur fær að ráða för Sigríður Ásta Árnadóttir er litaglöð í hönnun sinni. Gamalt bróderí tekur sig vel út á á gamalli peysu sem hefur verið lituð. Morgunblaðið/Ásdís © 2009 KPMG hf., íslenski aðilinn að KPMG International, svissnesku samvinnufélagi. Öll réttindi áskilin. Endurskipulagning á rekstri og fjárhagsskipan er mikið í umræðunni. Eftir algjört hrun íslenska fjármálakerfisins má spyrja hvert stefnum við, hvert er hlutverk fjármálastofnanna og hver er staða hluthafa og starfsmanna við þessar kringumstæður. Hvernig verður best staðið að endurskipulagningu? Er hætta á að sjónarmið lánardrottna verði of ráðandi í starfsemi fyrirtækja? Endurreisnin Endurskipulagning á erfiðum tímum Ráðstefna KPMG 5. nóvember Dagskrá - Setning Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri KPMG - Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra - Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka - Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Útgáfufélagsins Heims - Craig Masters, sérfræðingur í endurskipulagningu fyrirtækja, KPMG London - Pallborðsumræður, stjórnandi Þorsteinn Pálsson Ráðstefnustjóri er Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Staður: Grand Hotel, Gullteigur Tími: 5. nóvember frá kl. 13:00 til 17:00 Ráðstefnugjald: 17.500 kr. Léttar veitingar verða í boði að loknum pallborðsumræðum. Skráning á kpmg@kpmg.is eða í síma 545 6000. kpmg.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.