SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 35

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 35
25.október 2009 35 Stundum eru mótmælin víðtækari og gjarnan eiga þá opinberar framkvæmdir í hlut. Hljómskálanum í sam- nefndum garði var mótmælt og sagt er að Kjarval hafi verið framarlega í flokki og nefnt sem rök að byggingin skyggði á útsýni til Keilis. Kjarval var aftur á móti fylgj- andi því að byggður yrði ofan á tankana á Öskjuhlíð her- legur veitingastaður eins og fram kom í athyglisverðri grein hans. Það var gert löngu eftir hans dag og var margur á móti því. Hugmyndir voru um miklar torg- framkvæmdir á Skólavörðuholti í ætt við það sem sést í miðborg Helsinki og síðar var Hallgrímskirkju Péturs- sonar ætlað þar pláss. Þá hófust mikil mómæli. Ómar Ragnarsson (sem sjálfur hefur verið liðtækur mótmæl- andi) söng í þessa veru um það: „Um Hallgrímskirkju byggingu er býsna lítill friður. Biskup segir upp með hana en Pétur (Ben) sagði niður.“ Dóttir sama Péturs hamaðist myndarlega gegn Ráðhúsinu, sem nú er við Tjörnina, en hafði sama árangur og faðirinn í slag hans við kirkjuna. En löngu áður en núverandi ráðhús reis hafði staðið lengi yfir teiknivinna fjölmargra arkitekta og verkfræðinga að öðru ráðhúsi, með borgarleikhúsi inni í sér, sem standa skyldi þvert fyrir norðurenda Tjarnarinnar. Þá risu mót- mæli einnig hátt með menn á borð við Sigurð Líndal í forystu. Það hús og öll sú mikla framkvæmd koðnaði niður undan þeim mótmælum. Magnús Óskarsson og Sundasamtök hans stöðvuðu fyrirhugað stórhýsi SÍS inni við Sund. Seðlabankinn ætlaði að byggja þar sem hús Thors Jensens stóð á Fríkirkjuvegi 11 og hraktist þaðan upp á Arnarhól. Þar ætlaði bankinn að byggja einhvers konar pýramída á hvolfi en mótmælendur undir forystu Þorsteins Ö. Stephensens leikara stöðvuðu það. Tónlist- arhús var teiknað og átti að rísa í Laugardal. Það var stöðvað. Og svona mætti lengi telja. Mikið fé í óbyggð hús Ef saman væri lagt er ljóst að gríðarlegum fjármunum, ekki síst almennings, hefur verið varið í hugmyndir og hönnun húsa, sem aldrei risu. Gaman væri ef fræðimenn treystu sér til að leggja mat á það dæmi. En sem sagt, þá er niðurstaðan hugsanlega sú að við getum sagt í stuttri tölu, upphátt eða í hljóði, við leiði Jóns og Ingibjargar í gamla kirkjugarðinum, til dæmis hinn 17. júní 2011: „Þær framfarir hafa orðið í landinu síðan þú varst og hést ,Jón, að vér mótmælum ekki bara allir, heldur mótmælum vér og þó nú orðið við næstum öllu sem nöfnum tjáir að nefna.“ Ef eitthvað getur glatt þau góðu hjón þá gæti það verið þetta. Þ að eru takmörk fyrir því hvað fólk getur innbyrt af svartnætti. Og fjöl- miðlar mættu gera meira af því að senda ljósglætu inn um bréfalúguna. Ekki þarf annað en að rifja upp efni úr síðasta sunnudagsblaði til að rök- styðja það: „6. október 2008 var örlagaríkur dagur í lífi hjónanna Auðar Elfu Kjartansdóttur og Páls Guðmundssonar, ekki síður en íslensku þjóðarinnar. Þann dag fór fæðing sonar þeirra óvænt af stað í 28. viku meðgöngu og á sama tíma og Geir Haarde bað Guð að blessa íslenska þjóð voru læknar að uppgötva að fóstrið var með lífshættu- legan ofvöxt í öðru lunganu. Tilviljanir stjórnuðu því að Auður og Páll voru stödd á einu fremsta sjúkrahúsi í heimi í fyrirburalækningum sem að öllum líkindum bjarg- aði lífi litla drengsins.“ Þannig hófst viðamikil umfjöllun Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur, sem vakti sterk viðbrögð. „Nú er ég glöð,“ skrifaði Ásdís Sigurðardóttir á blogginu eftir að hafa horft á myndskeiðið sem fylgdi fréttinni. „Ég held ég velji þetta „bestu“ jákvæðu frétt vikunnar hjá mér í jákvæðum fréttum.“ Hún var svo „uppveðruð og kát“ að hún ætlaði að framlengja jákvæðnisbloggið sitt til mánaðamóta og skrifa aðeins jákvætt þann tíma. Út af fyrir sig vekur orðið já- kvæðni nostalgísk hughrif, eins og umræðan hefur þróast í samfélaginu. En það virðist enginn hörgull á jákvæðum Íslendingum. Að minnsta kosti vakti það foreldr- unum óvænta ánægju, þegar þeim barst bréf í pósti frá ókunnugum manni, „sem var með frumsömdu ljóði og blessaði okkur öll …“ Fjölbreyttari Sunnudagsmoggi Sunnudagsmogginn kemur nú út fyrr á laugardögum og gefst með því svigrúm til meiri fjölbreytni, þó að áfram verði mikið lagt upp úr fréttaskýringum og viðtölum. Fjallað verður með reglubundnum hætti um efnisþætti, sem Íslendingum eru hugleiknir, svo sem ferðalög, bækur, kvikmyndir, hönnun, matargerð, heilsu, íþróttir og margt fleira. Vonandi finna sem flestir efni við sitt hæfi í blaðinu. Forsíðuviðtalið tekur Árni Matthíasson við Emilíönu Torrini, sem lauk í vikunni tónleikaferð um Evrópu, en hún sló rækilega í gegn í sumar með lagið Jungle Drum og trónaði lengi efst á vinsældalistum í Þýskalandi. Einnig er tekið hús á Flosa Ólafs- syni á tímamótum í hans lífi og Kolbrún Bergþórsdóttir verður með helgarviðtalið á sínum stað. Ótal margt fleira mætti telja til. Agnes Bragadóttir verður á sínum stað með skarpa greiningu á þjóðmálum. En í hóp pistlahöfunda bætist Styrmir Gunnarsson, sem skrifar pistla undir yfirskriftinni Af innlendum vettvangi, en það gerði hann áður í Morgunblaðinu fyrir tæpum fjór- um áratugum. Þá verður Kristín Heiða Kristinsdóttir með krassandi pistla undir yf- irskriftinni Stigið í vænginn og Helgi Ólafsson stórmeistari skrifar um skákheiminn. Fleiri pistlahöfundar reka inn nefið, þó að þeir staldri mislengi við. Lesbók hefur jafnan átt sinn dygga lesendahóp og verður nú hluti af Sunnudags- mogganum. Bergþóra Jónsdóttir tekur aðalviðtalið við Margréti Örnólfsdóttur, fyrr- verandi Sykurmola, handritshöfund, tónlistarkonu, útvarpskonu og nú bókarhöf- und. Margrét var að gefa út sína fyrstu bók, Aþenu, fyrir börn á aldrinum 9-15 ára. Á meðal annars efnis er viðtal við Hildi Bjarnadóttur veflistakonu, en einnig verður þar bókaburður, Lesarinn, fjölmiðlapistill og dómar af ýmsu tagi. Góða skemmtun! Jákvæðni í fjölmiðlum „Þetta kom svo á óvart þegar ég sá þetta.“ Hermann Valsson, leiðsögumaður og starfs- maður Vikingtravel, rak augun í að Goðafoss í Skjálfandafljóti kemur ítrekað fyrir á myndum í kynningu Microsoft á nýja Windows 7- stýrikerfinu. „Ef að líkum lætur er þessu ekki lokið.“ Haraldur Briem smitsjúkdóma- læknir, aðspurður hvort A1H1- flensan geti valdið fleiri dauðs- föllum. „Þessi viðurkenning er heiður fyrir mig og hefur sömuleiðis þýðingu fyrir framgang þeirra verk- efna sem ég vinn að.“ Áslaug Haraldsdóttir, verkfræð- ingur hjá Boeing, fékk viðurkenn- ingu frá samtökum kvenverkfræð- inga í Bandaríkjunum. „Það hefur orðið algjör stökk- breyting í þessum rekstri.“ Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, um kanna- bisræktun á Íslandi. „Það var auðvitað sárt að missa gamla herbergið en við stefnum að svo góðum sigri í næstu kosningum að við endurheimtum það.“ Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins, en framsóknarmenn þurftu að eftirláta Vinstri grænum gamla herbergið sitt í Alþingishúsinu. „Við getum ekki brugðist við þessu, því við eigum ekkert pláss, við getum ekki meir.“ Páll Winkel fangelsismálastjóri spurður hvernig hægt sé að bregðast við því að öll fangelsi landsins eru yf- irfull. Ummæli vikunnar Óskar Magnússon Stofnað 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Útgefandi: Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.