Organistablaðið - 01.10.1971, Blaðsíða 44
Kirkjukórasamband íslands.
20. aðalfundur Kirkjukórasambands
íslands var haldinn í 1. kennslustofu
Háskólans 23. júní ’71.
Formaður samhandsins, Jón ísleifs-
son setti fundinn og hauð fulltrúa
velkomna. Sérstaklega bauS hann vel-
kominn Bjarna Bjarnason formann
Kirkj ukórasambands Austur-Skaf ta-
fellsprófastsdæmis.
FormaSur skipaði fundarstjóra séra
Þorgrím Sigurðsson og fundarritara
Oddberg Eiríksson og Pál Ilalldórsson.
Fundinn sátu 17 fulltrúar frá 14
kirk j ukórasamböndum.
Formaður las heillaóskaskeyti sem
sambandinu höfðu borizt frá söngmála-
stjóra þjóðkirkjunnar, sem staddur var
í New York, og frá Kirkjukórasam-
bandi Reykjavikurprófastsdæinis.
Kitari sambandsins, frú Ifrefna
Tynes las fundargerð síðasta aðalfund-
ar og var hún samiþykkt án athuga-
semda.
Formaður samlbandsins flutti skýrslu
stjórnarinnar, í aðalatriðum, sem
liér segir: Átta söngkennarar hafa
starfað við söngkennslu á liðnu starfs-
ári í sjö kirkjukórasamböndum inn-
an K.l. í sumum þessum kirkjukóra-
samböndum liafa kirkjukórar æft fjöl-
breytta kirkjutónlist og notið þá að-
stoðar áhugafólks utan kóranna og
með þeim hætti hafa þeir komið fram
sem traustir og mannmargir kórar,
vel færir um að flytja ýmis kórverk,
sem ofvaxin eru venjulegum kirkju-
kórum. í þessu sambandi mætti nefna
Kirkjukór Ólafsfjarðar og afmæliskór
K.l. og vafalaust fleiri, ef vel væri að
gætt. Nú, svo sem ævinlega áður, hafa
fjölmargir kirkjukórar víðsvegar um
landið staðið fyrir samsöngvum og
kirkjukvöldum í sínum byggðarlögum,
og auk þess verið einlægt föst söng-
númer í dagskrárliðum flestra tilli-
daga, sem einhvers eru metnir. Þá
hefur farið fram umfangsmikið starf
varðandi 20 ára afmæli K.í. Það er
staðbundið að því er ég bezt veit og
verður rakið að svo miklu leyti sem
þörf þykir sér á parti.
Gjaldkeri sambandsins las upp
reikninga fyrir siðastliðið reikningsár
K.I. og voru þeir samþykktir. Enn-
fremur las hann fjárhagsáætlun sam-
bandsins fyrir 1971.
Síðan fór fram stjórnarkosning.
Stjórn samhandsins var öll endur-
kjörin en liana skipa:
Aðalstjórn: Jón Isleifsson, Rvík,
form., frú Hrefna Tynes, Rvík, ritari,
Finnur Árnason, fulltrúi, Hafnarfirði,
gjaldkeri.
Meðstjórnendur: Séra Sigurður
Kristjánsson, Isafirði, séra Þórir Steph-
ensen, Sauðárkróki, séra Einar Þór
Þorsteinsson, Eiðum, Eiríkur Isaksson,
fulltrúi, Rauðalæk, Rang.
Varastjórn framkvæmdastjórnar: Ein-
ar Sigurðsson, trésmiður, Selfossi,
form., Páll Halldórsson organleikari,
Rvk, ritari, Magnús Guðmundsson
kaupm., gjaldkeri. Meðstjórnendur:
Kristján Júlíusson kennari, Bolungar-
vík, Eyþór Stefánsson tónskáld, Sauð-
árkróki, Jón Mýrdal organleikari,
Norðfirði og frú Anna Eiriksdóttir,
Selfossi.
Endurskoðendur reikninga voru
kjörnir: Einar Th. Magnússon, skrif-
stofum., Rvk og Aðalsteinn Ifelgason,
tréam., Rvk. Til vara: Baldur Pálma-
son, fulltrúi, Rvk og Hálfdán Ifelga-
son, kaupm., Rvk.
Þá voru rædd ýms málefni sambands-
ins.
Gengu fundarmenn síðan í nýja stu-
44 ORGANISTABLAÐIÐ