Organistablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 31

Organistablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 31
vandræðum. Ef þrjú hljómborð eru fyrir hendi er það auðveldara en ef aðeins eru tvö, en strangt tekið er það ekki nauðsvnlegt. I lok þriðja tilbrigðis koma fyrir háar nótur sem eru ekki til á göml- um dönskum orgelum. Þá verður annaðhvort að gera, að leika þennan kafla, sem um er að ræða — hálfan annan takt — á annað hljómborð, sem er með 4’ grunnrödd og spila áttund neðar, eða loka fyrir 8’ raddirnar og spila áttund neðar. Sömu háu tónarnir koma aftur fyrir í lokatöktunum, en þá er ekki hægt að leysa vand- ann á sama hátt. Vegna þess að hinn mikli tutti-hljómur verður að fá að njóta sín er ekki hægt að fjarlægja allt í einu 8’ raddirnar og spila áttund neðar. Annað hvort verður því að umskrifa einstaka hljóma eða spila suma kafla í heild áttund lægra en skrifað er. Hljómsins vegna er ekki heldur mikill vandi á ferðum. Það er aðeins á fáum stöðum sem Ives gefur leiðbeiningar um raddaval (registur), þess utan lætur hann sér nægja að setja merki um dyna- mik og hljómborðaskipti. Velji menn raddir í samræmi við karakter hvers einstaks tilbrigðis, er lítil hætta á að þeir villist langt af réttri leið. Það eru e. t. v. millispilin sem geta komið mönnum í dálítinn vanda. Að finna rétta raddskipan með // í annarri hendi en pp í hinni, svo að jafnvægi haldist og ekki verði ,,grautarlegt“ gæti reynst nokkuð örðugt viðfangs. Það gæti verið góð hugmynd að hafa þunnan, hreinan og eins og fjarlægan hljóm á pp-hljómborði Salicional 8’ og 4’?) og í //-hljómborði nægilega margar prinsipal- og/eða flauturaddir (eða tungurödd sem væri ekki ofsterk) svo að pp-hljómurinn verði ekki yfirgnæfður. Það er erfitt að skilja þessi polytónölu millispil, sem koma eins og þruma úr heiðskíru lofti, sem er skyndilega skotið inn á milli tilbrigðanna án þess að hafa mikla þýðingu. Sé nánar að gáð, tökum við eftir því, að í annarri hendi eru sömu formerki og í undangengnu tilbrigði en í hinni sömu formerki og í því tilbrigði, sem á eftir fer. Utkoma: Ives modulation! Hin snöggu hljómborðaskipti í allraseinasta millispili geta orðið örðug viðfangs. Það er vegna þess að nóturnar á dönskum orgelum eru lengri og lengra á milli hljómborða en á amerískum orgelum. Persónulega finnst mér að vel megi forsvara að spila á einn manúal, e. t. v. svellverkið svo að pedalinn, sem flytur melódíuna komi greinilega fram. Að lokum skal nefnt, að nokkur pedal-hlaup (sjá 6. nótnadæmi) ORGANISTABI.AÐIÐ 31

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.