Organistablaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 21
Þótt þú langförull legðir.
"Það er að brjótast í mér lag. komdu niður og syngdu það með mér."
Sigvaldi S. Kaldalóns var héraðslæknir í Nauteyrarhéraði 1910-1922.
Læknishéraðið var víðlent - náði yfir Snæfjallaströnd, Langadalsströnd
(Nauteyrarhrepp), Vatnsfjarðarsveit (Reykjarfjarðarhrepp) og Ögursveit.
Læknirinn sat á Ármúla. Sigvaldi tengdist Djúpmönnum traustum
Læknishúsið
á Ármúla.
vináttuböndum. Á Ármúla samdi hann fjölmörg af sinum alkunnu og vinsælu
lögum. Þau urðu brátt landskunn. Sigurður á Laugabóli gaf út fyrstu
sönglagahefti Kaldalóns: Sjö sönglög, 1 916, Þrjú sönglög, 1917 og Tíu sönglög
1918. Eftir það komu svo sérprentuð lög eftir Kaldalóns, hvert af öðru. Þótt þú
langförull legðir kom út 1922.
Bókin um Kaldalóns kom út 1971. Gunnar M. Magnúss rithöfundur skráði.
Mikil vinátta var milli Æðeyjarfólks og Kaldalónsfjölskyldunnar.
Og nú lítum við í bókina um Kaldalóns.
"Æðey á Isafjarðardjúpi
Ásgeir heldur áfram:
Ásgeir heldur áfram:
Sigvaldi lék oft lögin sín fyrir okkur, sem vorum gestir á heimili hans.
Einu sinni, þegar ég gisti á Ármúla, það var 1913, þá kemur hann upp,
þegar ég var að hátta. Hann var með blað í hendi, og segir:
Það er að brjótast í mér lag, komdu niður og syngdu það með mér.
Ég kom niður og hann fór að spila: Þótt þú langförull legðir sérhvert land
undir fót.
Hann spilaði þetta margsinnis og ég söng með, þangað til ég kunni það.
Það var víst ekki svefnsamt í húsinu það kvöldið. Mér fanst hann vera
fjarska glaður og ánægður.
Það var mikil eftirsjá að honum, þegar hann veiktist og var fluttur frá
okkur.
ORGANISTABLAÐIÐ 21