Organistablaðið - 01.11.1981, Blaðsíða 13

Organistablaðið - 01.11.1981, Blaðsíða 13
Ólafsdagar í Þrándheimi 1982. Norræn kórvika frá 26. júlí - 1. ágúst. Norræn kórvika fyrir söngvara, sem vanir eru að syngja ikór, verður íDóm- kirkjunni í Niðarósi, undir stjórn dóm- organistans Per Fridtjov Bonsaksen. Fyrirhugað er að syngja Requiem eftir W.A. Mozart og að taka þátt í Úlafsvöku og "Olsokmessen". Nánari upplýsingar gefur ritari kórvikunnar: Beatrix Nilssen, Dybdahlsvej 23 A, N - 7000 Trondheim. sími: (075) 68 505. Þar fást einnig umsóknareyðublöð. Heimsókn André Isoir André Isoir, organisti við kirkju St, Germain de Pres í París heimsótti Island í apríl síðastliðnum. Hann hélt þrenna tónleika, eitt námskeið og fyrirlestur. Fyrirlesturinn fjallaði um gamla franska orgeltónlist, en á því sviði er Isoirsérfróður. Hann útskýrði hvernig gamla franska orgeltónlistin óx úr dansinum á 1 6. öld og hvernig improvisation hefur haft áhrif á hana, svo að á tímabili var lítið skrifað niöur og improvisationin stóð í miklum blóma. Tónleikarnir voru haldnir í Fíladelfiu- kirkju, Skálholtskirkju og Landkotskirkju og efnisskráin var miðuð við sérkenni, getu og stærð orgelsins á hverjum stað, þannig að triosónata Bachs í C-dúr hljómaði frábærlega vel í Skálholtskirkju og hin volduga F-dúr tokkata hans hafði sína réttu umgjörð í Landakotskirkju. i Fíladelfíukirkju spilaði hann aukalega improvisation um sálminn „Lofið vorn Drottin" og var það mjög skemmtilegt fyrir áheyrendur og lærdómsríkt fyrir organista. Orgelstíll Isoirs tilheyrir augljóslega franska skólanum, en þrátt fyrir það hefur hann sterkan persónulegan stíl, sem gerir hann að einum besta organista okkar tíma. það yrði of langt mál, ef telja ætti upp frá mörgum sjónarhornum allar hliðar getu hans, sem er jafn ríkuleg og persónuleiki hans er lifandi, en þess hljóta allir er þátt tóku í námskeiðinu að hafa notið. Námskeiðið var tileinkað César Franck og kenndi André Isoir organistum túlkun verka hans. Athyglisvert er að minnast athugasemda Isoir um spilatækni César Francks sem byggist á píanótækni vegna þess að á hans tíma voru organistar aðallega píanóleikarar en sem kunnugt er hefur cembaloleikari aðra handbeitingu en píanóleikari, sem leiðir af sér að til þess að geta túlkað barokktónlist þarf aðra handbeitingu en til að túlka rómantíska orgeltónlist. Af öðru en orðum Isoir var hægt að læra, því það að fylgjast með honum er hann spilaði, var kennsla út af fyrir sig, svo og trillurnar hans. Eftir námskeiðið var asi á honum því hann ætlaði að ganga á Heklu, og sýnir það vel hversu mannlegur hann er þrátt fyrir að hann er mikill listamaður. Með þakklæti segjum við: „Merci André”. Orthulf Prunner. Áttunda alþjóölega organistakeppnin „GRAND PRIX DE CHARTRES" verður í París dagana 23. ágúst til 19. september 1982. Innritun lýkur 30. apríl 1982. Þátttaka er heimil öllum organ- istum sem fæddir eru eftir 1. janúar 1 947. ORGANISTABLAÐIÐ 13

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.