Organistablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 12

Organistablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 12
Tónlistarskóli Borgarflarðar 20 ára Borgameskirkjafylltist af fólki þriöjudagskvöldiö 10. nóv., en þávar minnst 20 ára afmælis tónlistarskólans. Þar komu fram þíanó-, trompet- og flautu- leikarar, sem stundað höfðu nám við skólann, en eru nú flestir komnir í nám utan héraðs eða til kennslu. Jón Þ. Björnsson organisti í Borgarnesi og fyrsti skólastjóri tónlistarskól- ans lék á orgel kirkjunnar. Björn Leifsson, sem hefur verið skólastjóri tónlistarskólans undanfarin ár, kynnti þá sem fram komu á tónleikunum og fléttaði inn í kynninguna fróðleik úr sögu félagsins og skólans. Kór Hvanneyrarkirkju söng á samkomunni lög útsett af Ólafi heitnum Guðmundssyni, en Ólafur hefði orðið sextugur þennan dag. Hann var organ- isti við Hvanneyrarkirkju auk þess að vera kennari og síðar skólastjóri tón- listarskólans. Eftir tónleikana söfnuðust tónleikagestir heim til skólastjórahjónanna Björns og Ingibjargar Þorsteinsdótturtil veislu og söngs. Þau hjónin hafa um árabil starfað að tónlistarmenntun í Borgarfirði og sér víða árangur starfs þeirra. Þarna hjá þeim Ingibjörgu var sungið við undirleik hennar auk þess sem kór Hvanneyrarkirkju tók nokkur lög undir stjórn núverandi organista Bjarna Guðráðssonar. 40 ára afmæli lórlgulrórasambands Amesprófastsdæmis Um 230 kórfélagar söfnuðust saman í Hveragerðiskirkju laugardaginn 14. nóv. og sungu lög eftir organista sína. Nokkur laganna voru eftir þá frægu liðnu snillinga Sigfús Einarsson og feögana ísólf og Pál, en þarna heyröust líka nýsamin lög eins og lög organist- anna Pálmars Þ. Eyjólfssonar, Steindórs Zóphaníassonar og Vilmundar Jónssonar. Einnig voru flutt lög eftir Sigurð Ágústsson, Einar Sigurðsson, Loft S. Loftsson, Guðmundur Nielsen og Guðmund Gottskálksson. Flutningi sönglaganna var hagað þannig, að fyrst sungu kórarnir einir, stundum sameinuðust kórar tveggja kirkna og æfðu saman fyrir þetta söngmót. Að lokum voru flutt 4 lög af sameinuðum kórunum. Tónleikarnir hófust með því að Haukur Guðlaugsson lék eigin útsetningu af Maríuversi Páls Isólfssonar, en síðan flutti Einar Sigurðsson ágrip af sögu sambandsins. 12 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.