Morgunblaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009 Íþróttaárið 2009 – Stiklað á stóru í íþróttaumfjöllun Morgunblaðsins ÍÞRÓTTAÁRIÐ er brátt á enda. Á næstu dögum mun Morgunblaðið rifja upp það sem bar hæst í umfjöll- un íþróttafréttamanna Morg- unblaðsins í hverjum mánuði fyrir sig. Að sjálfsögðu eru íslenskir íþróttamenn – og -konur í aðal- hlutverkum. 2. mars: „Það var algjör draumur að fá að taka þátt í þessu með strák- unum,“ sagði Dagur Sigurðsson, fyrrverandi fyrirliði íslenska lands- liðsins í handknattleik, sem lék með Valsliðinu síðustu mínúturnar í bik- arúrslitaleiknum við Gróttu í hand- knattleik karla. Dagur skoraði tvö mörk og sýndi að hann hefur engu gleymt í úrslitaleiknum sem endaði með öruggum sigri Vals, 31:24, en Hlíðarendaliðið hafði titil að verja í keppninni. Þetta var í sjöunda sinn sem Valur fagnar sigri í keppninni. 2. mars: „Undirbúningurinn fyrir leikinn var mjög skemmtilegur. Við fórum í Mecca Spa og slökuðum á í pottinum. Svo var matur hjá Atla [Hilmarssyni] þjálfara, æfing í Laugardalshöllinni með tónlistina í botni og borðað hjá Ingvari vini okk- ar á Salatbarnum. Vikan í kringum bikarúrslitaleikinn er alltaf skemmtilegasta vika ársins,“ sagði Sólveig Lára Kærnested leikmaður Stjörnunnar eftir 27:22 sigur liðsins gegn FH í bikarúrslitaleik kvenna í handknattleik. Þetta var í sjötta sinn sem Stjarnan verður bikarmeistari í kvennaflokki og varði Stjarnan tit- ilinn frá árinu 2008. 9. mars: „Ég verð betri og betri með hverju árinu sem líður, það er alveg á hreinu. Mótspyrnan er samt farin að aukast og maður sér alveg að hinir strákarnir fljúga áfram,“ sagði borðtennissnillingurinn Guð- mundur E. Stephensen úr Víkingi sem landaði sínum sextánda Ís- landsmeistaratitli í einliðaleik. „Þetta er voðalega gaman, alveg æðislegt. Núna getur maður farið heim og slappað aðeins af, sett fæt- urna upp í loft og reynt að láta blóð- ið renna úr þeim,“ sagði KR- ingurinn Guðrún G. Björnsdóttir sæl á svip eftir að hún varð Íslands- meistari í einliðaleik kvenna í borð- tennis. Þetta er í fjórða sinn sem Guðrún nær þeim árangri. 12. mars: Ísland hafnaði í sjötta sæti Algarvebikarsins í knattspyrnu kvenna eftir ósigur gegn Kína, 1:2, í Portúgal. Heildarniðurstaða mótsins var því óvæntur sigur á Norð- mönnum, 3:1, en síðan þrír ósigrar gegn liðum sem öll eru í hópi þeirra fremstu í heiminum. 16. mars: „Um leið og ég sleppti spjótinu vissi ég að kastið væri langt en að það færi yfir 60 metra reiknaði ég ekki með,“ sagði Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni í gær eft- ir að hún hafði bætt eigið Íslands- met í spjótkasti um 62 sentímetra, kastað 60,42 metra, og hafnað í þriðja sæti á Vetrarkastmóti Frjálsíþróttasambands Evrópu á Kanaríeyjum. 16. mars: Þróttur úr Reykjavík varð bikarmeistari í blaki karla og er því áratugar löng bið félagsins eftir titli í karlaflokki á enda. Þróttur lagði baráttuglaða KA-menn 3:2 í leik þar sem Akureyringar komust í 2:0. HK varð bikarmeistari kvenna með 3:1 sigri á ungu og skemmtilegu liði Þróttar frá Neskaupstað. 16. mars: Fríða Rún Ein- arsdóttir og Viktor Kristmannsson fögnuðu Íslandsmeistaratitlum í áhaldafimleikum en þetta var sjö- undi titill Viktors í röð. 23. mars: Íslendingar töpuðu fyrir Færeyingum í fyrsta sinn í sögunni þegar þjóðirnar áttust við í vináttulandsleik í Kórnum í Kópa- vogi. Færeyingar hrósuðu 2:1, í sigri í 22. landsleik þjóðanna en fyrir leik- inn í gær höfðu Íslendingar unnið 20 af leikjunum og úrslitin því söguleg. 30. mars: Skautafélag Reykja- víkur tryggði sér Íslandsmeist- aratitilinn í íshokkíi karla með 7:3 sigri á SA í Skautahöllinni í Laug- ardal. „Við vorum oft verið í basli í vetur en héldum haus og menn léku hver fyrir annan og liðið í síðustu leikjum,“ sagði Richard Eiríkur Tahtinen, þjálfari SR. 30. mars: Það er óhætt að segja að Tinna Helgadóttir úr TBR hafi átt sviðið á Íslandsmótinu í badmin- ton sem fram fór í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Tinna varð þrefaldur Íslandsmeistari en hún sigraði í einliðaleik, tvenndar- og tvíliðaleik. Og er hún 17. ein- staklingurinn sem nær þeim ár- angri. Helgi Jóhannesson úr TBR fagnaði tveimur Íslandsmeist- aratitlum.Helgi sigraði Huga Heim- isson í úrslitum í einliðaleiknum og það tók Helga og Magnús Helgason aðeins 19 mínútur að landa meist- aratitlinum í tvíliðaleiknum, þriðja árið í röð. 31. mars: Karatefélagið Þórs- hamar náði þeim einstaka árangri á Íslandsmótinu í Kata að sópa til sín öllum gullverðlaununum. Mars Met og fjölmargir meistaratitlar Fögnuður Leikmenn Stjörnunnar og Sigurður Eggertsson úr Val fagna bikarmeistaratitli í Laugardalshöll. 2. apríl: Fimm leikja stríði milli deildarmeistara Hauka og bik- armeistara KR, um Íslandsmeist- aratitilinn í körfuknattleik kvenna, lauk á Ásvöllum í Hafnarfirði. Hauka- konur yfirgáfu vígvöllinn sigurreifar eftir sigur í fimmtu orrustunni, 69:64 „ Í þessu liði eru bara fjórar úr meist- araliðinu 2007. Þetta er auðvitað ótrú- legt. Sérstaklega með hliðsjón af því að við erum með svo ungt lið,“ sagði þjálfari Hauka, Yngvi Gunnlaugsson. 4. apríl: HK varð Íslandsmeistari í blaki kvenna í fyrsta skipti síðan 1995 þegar liðið lagði Þrótt frá Neskaup- stað örugglega 3:0. HK-konur luku þar með frábæru tímabili með viðeig- andi hætti en þær sigruðu þrefalt í vetur. Karen Björk Gunnarsdóttir er fyrirliði HK. „Ég var með miklar væntingar fyrir tímabilið og hafði trú á því að við gætum farið alla leið,“ sagði Karen. 6. apríl : „Þetta er langur tími, heill áratugur, og því tímabært að við næð- um Íslandsmeistaratitlinum,“ sagði Valur Guðjón Valsson, uppspilari og fyrirliði blakliðs Þróttar í Reykjavík, eftir að liðið fagnaði Íslandsmeist- aratitlinum. Það gerðu Þróttarar með því að leggja Stjörnuna úr Garðabæ 3:0 í öðrum úrslitaleik liðanna og vann Þróttur þá báða 3:0. 14. apríl: „Þessi Íslandsmeist- aratitill er aðeins ljúfari en árið 2007. Mér finnst eins og þetta hafi verið „lokaverkefnið“ sem ég byrjaði á árið 1992 þegar ég var að þjálfa megnið af þessum strákum. Ég er rosalega stolt- ur af þessu liði og þetta var frábær úr- slitakeppni,“ sagði Benedikt Guð- mundsson, þjálfari KR, eftir 84:83 sigur KR í oddaleik um Íslandsmeist- aratitilinn gegn Grindavík í körfu- knattleik karla. Þetta var 11. Íslands- meistaratitill KR. 20. apríl: Enn stenst enginn hér- lendur skíðamaður Dalvíkingnum Björgvini Björgvinssyni snúning. Það sýndi sig á Skíðamóti Íslands. Hann sigraði af miklu öryggi í stórsviginu, sviginu og þar með í alpatvíkeppni, og loks í keppni í samhliðasviginu. Systurnar Íris og María Guðmunds- dætur hirtu öll gullverðlaunin sem í boði voru í alpagreinum. Íris vann stórsvigið, María svigið og Íris samhli- ðasvigið. María sigraði í alpatví- keppni. 23. apríl: Alfreð Gíslason og læri- sveinar hans í þýska handknattleiks- liðinu Kiel fögnuðu meistaratitlinum fimmta árið í röð. Þetta var fyrsti Þýskalandsmeistaratitill Alfreðs með Kiel. 27. apríl: Þorvaldur Blöndal fagn- aði Íslandsmeistaratitlinum í +100 kg flokki á Íslandsmótinu í júdó en hann keppir fyrir Ármann. Anna Soffía Víkingsdóttir sigraði í opnum flokki kvenna og -70 kg. flokknum. Apríl Haukar og KR fögnuðu Íslandsmeistaratitlum Íslandsmeistarar Haukakonur fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í kvennaflokki og KR-ingar í karlaflokki í körfunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.