Ísfirðingur - 21.09.1949, Blaðsíða 1

Ísfirðingur - 21.09.1949, Blaðsíða 1
I ÍSFIRÐINGUR BLAÐ FRAMSÓKNARMANNA Á VESTFJÖRÐUM I. árgangur. Isafjörður, 21. september 1949. 1. tölublað. Miltil fjármálatíðindi. Bretar fella gengi sterlingspundsins ÁVAPSORÐ. Þegar kosningar fara í hönd, þykir öllum flokkum og aðstandendum frambjóðandanna brýn þörf á að eiga að- gang að blaði um lengri eða skemmri tíma til að túlka skoðanir sínar, og uiðhorf til helztu dagskrármálanna, — vísa ranghermum og afflutningi á stefnumálum flokks- ins á bug, og bernla á hin jákuæðu. Fyrir flokka, sem ekki eiga aðgang að blaði, er það sama og að uera meinað máls á almennum kjósendafundi. Þótt Framsóknarmenn eigi þuí láini að fagna, að aðalblað þeirra, Tíminn, er bæði stórvinsælt og að allra dómi bezt skrifaða blað landsins, þá fer ýmislegt framhjá almenningi, einkum þeim sem fjær búa, er vert væri að festa sér í minni. Þetta blað býst að uísu ekki uið að geta sinnt verkefni sínu, suo sem vert væri, og biður menn í því efni að taka viljann fyrir verkið. En yæti því auðnast að leiðrétta mis- skitning þótt eigi væri nema nokkurra einstaklinga, sem sluðst hafa við einhliða áróður og ranga túlkun á málstað Framsóknarflokksins, þykist blaðið eigi til einskis hafa vaknað til lífsins. Isfirðingur fulltreystir því, að allir Framsóknarmenn, leggi frambjóðendum flokksins, ulltþaðliðsem þeirmega. Blaðið heitir líka á alla þá mörgu, sem nú eiga samstöðu með Framsóknarflokknum, en kjósa ýmsir að svo stöddu að standa utan flokka, að stuðla fast að atkvæðaaukningu flokksins við þessar kosningar. Með sameiginlegri sókn og skörpum átökum er vissulega unnt að nema ný lönd og vinna aftur gömul. Þau tíðindi gerðust síðastlið- inn sunnudag, að breska stj órn in framkvæmdi stórfelda geng- islækkun, feldi sterlingspundið í verði miðað við dollara, um ca. 30%. Ráðstöfun þessi mun bafa komið öllum á óvart, nema ef til vill nánustu sam- starfsmönnum stj órnarinnar. Ástæður fyrir ráðstöfun þess ari, segir Stafford Cripps, fjármálaráðherra vera þær, að brezka stjórnin hafi séð fram á það, að ef gengi punds- ins gagnvart dollara yrði hald- ið óbreyttu, myndi óhjákvæmi legt, að samdráttur atvinnulífs ins, og þar af leiðandi atvinnu- leysi hafa haldið innreið í Bretland, og ennfremur að óbreyttu gengi myndi hafa reynst ókleift að halda hinu brezka alþýðutryggingakerfi ó- breyttu. Brezka stjórnin hefði þvi séð sig til neydda að fella sterlingspundið i verði, í því skyni að koma i veg fyrir at- vinnuleysi og vernda trygginga kerfið. Síðan hafa 16 ríki farið að dæmi Breta, þar á meðal allar Norðurlandaþ j óðirnar. Þessi ráðstöfun hefir alheims- þýðingu, og er yfirleitt ekki á færi annara þjóða að dæma um ákvarðanir Breta í þessu efni. Viðhorf Islendinga. Hvað sögðu Fram- sóknarmenn? Málið er athyglisvert fyrir Islendinga, og einkum hvernig við höfum snúizt við þessu vandamáli, þveröfugt því sem hinir reyndu brezku stjórn- málamenn. — Brezka stjórnin og þing brezka verkalýðsfélag- anna, sem háð var fvrir stutt- um tíma fordæmdi allar kaup- hækkanir, taldi þ j óðarnauð- sjm að halda kaupgíaldi og verðlagi óbreyttu í því skyni að koma i veg fyrir atvinnu- levsi, og forða frá gengisfalh- Þótt Bretar hafi þannig hald ið launum og verðlagi niðri, hefir það þó ekki getað forðað gengisfallinu. Alþýðublaðið hefir í suniar verið síjórtrandi á því að Framsóknarmenn ætli að koma á gehgisfalli íslenzku krónunnar eftir kosningar. Nú hefir farið svo að Alþýðuflokk- urinn hefir ásamt hinum flokk unum orðið að standa a,ð geng- isfalli íslenzku krónunnar gagnvart dollara fyrir kosning- ar. Framsóknarflokkurinn vill ekki gengislækkun, — en for- mælendur flokksins hafa hald- ið því fram, sem öllum er aug- ljóst, að Alþýðufl. og Sjálf- stæðisfl. væru þegar búnir að fella krónuna í verði. Hér yrði því að veita viðnám með því að taka upp heilbrigða stjórn- arhætti. — Tillögur Fram- sóknarmanna þar að lútandi i ríkisstjórn og á Alþingi hafa allar verið felldar af spyrðu- bandi Alþýðufl. og íhalds, — einmitt þær tillögur sem mið- uðu að lækkun dýrtíðar. Og rétt er að láta þess getið í þessu sambandi fyrir, þá, sem ekki lesa fundargerðir, en láta sér nægja afskræmdar frásagn ir andstöðublaðanna, að aðal- fundur miðstjórnar Framsókn arflokksins í vetur, sem taldi að vart yrði komizt hj á gengis- lækkun eða verðhjöðnun, og máske yrði að reyna hvoru- tveggja, lagði svo til, orðrétt: „að leitað yrði álits og samráðs stéttasamtakanna, hvor leiðin skuli farin, og að hve miklu leyti, áður en endanleg ákbörð- un yrði tekin“. Framsóknarmenn töldu að betra væri að viðurkcnna hreinskilnislega gengisfall krónunnar, en að fela það. Og þeim var líka Ijóst, að gengis- fall eða opinber lækkun á verði krónunnar gat komið líkt og skriða úr fjalli, án þess þing eða. stjórn æskti þess, jafnvel þótt þingflokkarnir væru gengisfalli mótfallnir. — Þetta hefir nú rætzt. Gengislækkunarraus Alþýðu- blaðsins er nú oltið um sjálft sig. Gera verður ráð fyrir, að annars konar gengislækkun is- lenzku krónunnar komi ekki III greina. Gengismálið verður því ekki þrætuepli í þessum kosningum. -— Það verða annai's konar ráð- stafanir til lækkunar dýrtíð- inni, sem glímt verður um. Að svo stöðnu verður ekkert sagt um hvort og að hve miklu leyti dýrtíð hér á landi kann að aukazt við hækkun á gengi dollai'ans. Vörur frá Banda- ríkjunum hækka vitanlega, svo sem vélar, ef til vill mat- vörur, en aftur fæst hærra verð fyrir afurðir okkai', sem þangað sendast — þær sem ekki eru seldar í sterlinspund- um. -------O------ Frambjóðendur Framsóknarflokksins i Isa- fjarðarsýslum við næstu al- þingiskosningar eru: Jón Á. Jóhannsson, yfirlög- regluþjónn, Isafirði, í Isafjarð- arkaupstað. Þórður Hjaltason, símstöðvai’stjóri í Bolungar- vík, I N.-Isafjai’ðarsýslu og séra Eii'íkur J. Eiríksson, skólastjói'i að Núpi, i Vestur- Isafjarðarsýslu. I næstu blöð- um verur nánar sagt um fram- boð þessara manna. Áttræður. Þann 16. þ.m. átti Magnús Guðmundsson, hér í bæ, átt- ræðisafmæli. Heilla óskir. Nýlega hafa opinberað trú- lofun sína: Ungfrú Sigríður Sigurðar- dóttir og Gunnar Pétursson (Péturssonar), Grænagarði. Ungfrú Inga Bjarnadóttir frá Akureyri og Jens Sumar- liðason, Isafirði. Ungfrú Jóna Júlíusdóttir frá Vestm.eyjum og Tryggvi Jónasson, Isafirði. Ungrfú Arndís Stefánsdóttir, Hnífsdal og Ásgrimur Bene- diktsson, Isafirði. ísfirðingur ái’nar þessum hjónaefnum alh-a heilla. í vnzi

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.