Ísfirðingur


Ísfirðingur - 11.07.1962, Blaðsíða 2

Ísfirðingur - 11.07.1962, Blaðsíða 2
2 ISFIRÐINGUR inpir KNAKM*NNA / niTrMRMKtð*C*MI Ötoefandi: Samband Framsóknarfélaganna í Vestfjarðakjördæmi Ritstjórar: Halldór Kristjánsson og Jón Á. Jóhannsson, áb. Afgreiósluma&ur: Guðmundur Sveinsson Engjaveg 24 - Sími 332 Mstirnar og skrnmið í ELDHÚSDAGSUMRÆÐUNUM í vor,. laihjúpaði Eysteinn Jónsson eftirminnilega skrum ríkisstjórn- arflokkanna um „viðreisnina“. M. a. fórust honum iþá orð á þessa leið: Ríkisstjórnin heldur uppi miklu skrumi um að hún haíi reist fjár- hag þjóðarinnar úr rústum. Þessar blekkingar um rústina annars veg- ar og stórfelldan bata hins vegar, verða bezt afhjúpaðar með því ein- falda ráði að bera saman rústimar og skrumhöll viðreisnarmanna eins og hún stóð við síðustu ára- mót. Við áramótin var gjaldeyris- staða bankanna jákvæð um 526 millj. en var jákvæð um 288 millj. í árslok 1958. Hefur því batnað um 293 milljónir. Á sama tíma haf a lausaskuldir vegna vörukaupa erlendis hækkað um nálega 300 milljónir og stafar því betri gjald- eyrisstaða bankanna nú um ára- mótin eingöngu frá lausaskulda- söfnun erlendis. Á sama tímabili hafa erlend lán til lengri tíma aukizt um rúmlega 600 milljónir króna. Ekkert bendir til að hin ofboðs- lega kjaraskerðing né samdráttur framkvæmda, hafi á nokkurn hátt orðið til þess að bæta heildarhag þjóðarinnar. Sú þjóð, sem dregur úr eða van- rækir arðbæra fjárfestingu sína, er ömurlega á vegi stödd og grefur undan afkomu sinni, jafnvel þótt hún eignist nokkrar krónur í reikn- ing. Slíkt hefnir sín grimmilega. Bætt gjaldeyrisstaða á síðasta ári á rætur sínar í því, að hér kom að landi meiri sjávarafli en dæmi eru til áður, og seldist yfirleitt góðu verði, auk þess sem gjafafé frá Bandaríkjunum kom til á ný. Kjaraskerðingar- og samdráttar- ráðstafanir ríkisstjórnarinnar hafa máske dregið eitthvað úr innflutn- ingnum, en þær drógu einnig tvtí- mælalaust úr framleiðslunni. Hafa framleiðendur landsins verið ó- þreytandi að lýsa því, hvernig til- búinn rekstursfjárskortur, okur- vextir og aðrar þrengingarráð- Baðvörður (karlm.) óskast við Sund- höllina frá 15. ágúst ca. n.k. FORSTÖÐUMAÐUR. KÍR TIL SÖLU. Þrjár kýr, sem eiga að bera um og eftir áramót, eru til sölu. — Upplýsingar gefur JÓN A. JÓHANNSSON, ísafirði. Sími 104. Aflafréttir Tilkynning frá Gagnfræðaskólanum á Isafirði. Framhaldsdeild með námsefni 3. bekkjar í menntaskóla verður starfrækt við skólann næsta vetur. Umsóknir um skólavist í deildinni sendist sem fyrst til skóla- stjórans, Gústafs Lárussonar, Hlíðarvegi 23, ísafirði. Isafirði, 6. júlí 1962. FRÆÐSLURÁÐ ISAFJARÐAR. Framhald af 4. síðu. áhöfn. Á línuveiðum voru þessir 5 smærri þilfarsbátar og öfluðu sem hér segir: Helgi (nýr bátur) 35 lestir í 17 sjóferðum, Vísir (líka nýr) 30 lestir í 17 sjóferðum, Kári 20 lestir í 16 sjóferðum, Sigurborg 18 lestir í 16 sjóferðum, Frægur 16 lestir í 15 sjóferðum. Þrír litlir þilfarsbátar stunduðu færaveiðar og tveir smábátar. Mestan afla hafði Trausti, fékk um 17 lestir. — Aflinn í heild fremur rýr á Flat- eyri. Suðureyri. Allir bátar þaðan stunduðu nú línuveiðar. Góður afli á nokkra báta, en yfirleitt mis- jiafn. — Þessir þilfarsbátar fengu yfir 20 lestir: Stefnir 78 lestir í 19 sjóferðum, Gyllir 37 lestir í 12 sjóferðum, Jón Guðmundsson 24,7 lestir í 13 sjóferðum, Vonin 24,5 lestir í 14 sjóferðum, Bjarmi 24 lestir í 14 sjóferðum, Sigurfari 22,3 lestir í 12 sjóferðum. Nokkrir smábátar öfluðu vel. Valdís (Þorv. Kristjánsson einn á bátnum) fékk um 7000 kg. og nokkrir bátar með 2 mönnum um 8000 kg. Bolungarvík. Góður reitingsafli jafnan, en ýmsir bátanna, einkum þeir smáu byrjuðu seint veiðar. Um og eftir mánaðamótin bættist margt báta við, sem ýmsir stunda veiðar aðeins 1 ígripum. — Einnig leggja nokkrir aðkomubátar upp í hraðfrystihúsið þarna. Eftirtald- ir bátar, sem eru frá 5 til 12 lesta, fengu yfir 20 lestir: Sigurfari 41 lest í 20 sjóferðum, Haukur 32,2 lestir í 17 sjóferðum, Álft 24,2 lestir í 18 sjóferðum, Geirúlfur 23,7 lestir í 15 sjóferðum, Tími 20,2 lestir í 15 sjóferðum. — Af stafanir hafa truflað rekstur fyrir- tækja og dregið úr framleiðslunni. Auk þess sem umfangsmiklar vinnustöðvanir eyðilögðu að veru- legu leyti vertíðina í sumum beztu verstöðvum landsins í fyira, og nú liggja allir togararnir. opnu bátunum voru hæstir: Sjöfn með 8600 kg, Skuld 4700 kg, Val- ur 3900 kg, Fákur 3400 kg, Sæ- björn 3100 kg. — Sjóferðatala 15 til 16. Hnífsdalur. Vb. Einar (18 lesta) fékk 34 lestir í 14 sjóferðum, Dynj- andi með 16,6 lestir í 5 sjóferðum, Gissur hvíti 10 lestir í 8 sjóferðum. Bátarnir voru með línu. lsafjarðarbær. Góður afli á nokkra báta og yfirleitt sæmilegur oftast nær, en óvenju ógæftasamt. Heidaraflamagnið er því minna en ella. — Ýmsir smærri bátar hófu og fyrst veiðar síðari hluta mán- aðarins. Nokkrir bátar hafa stund- að færaveiðar, en yfirleitt hefur hér verið um línuveiðar að ræða. Lang-aflahæsti bátur á ísafirði er nú Ver (stærri) með 82,7 lestir í 18 sjóferðum, þá örn 50 lestir í 16 sjóferðum. — Geta verður þess hér, að maíafli þessa báts hafði misritast, var talinn 35 lestir, en var um 65 lestir. Bryndís fékk 41,5 lestir í 16 sjóferðum, Ásdís 35 lest- ir í 12 sjóferðum, Mummi 24 lestir, Jódís 18,2 lestir, Einar lagði í Hnífsdalshúsið 17 lestir. Af opnu bátunum var Una (Bæring Þor- björnsson) aflahæst með 7400 kg. Súðavík. Vb. Trausti var á línu- veiðum og aflaði 61 lest í 15 sjó- -(IIIIMMIIIIIIIIUIIIIIIIUlUIIIIIIIIIKIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIillllllllllllBIIII lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll FRAMLEIÐSLA ALLAR GERÐIR VINNUFATNAÐAR ÁKONUR KARLA OG RÖRN Heklu

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.