Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 29
ÞÁ er komið í ljós hvaða sveitir etja kappi í íslensku undankeppni alþjóðlegu hljómsveitakeppninnar. Dómnefndin sem sá um valið sam- anstóð af fimm aðilum frá erlend- um tímaritum, bókunar-, umboðs- skrifstofu- og tónleikafyrirtækjum og þremur innlendum aðilum. Sveitirnar eru Atrum, Carpe Noc- tem, Gone Postal, Gruesome Glory, Severed Crotch, Universal Tragedy og Wistaria Wacken Me- tal Battle fer fram laugardaginn 13. mars á Sódómu Reykjavík. Sigurvegari kvöldsins hlýtur þátt- tökurétt í lokakeppni Metal Battle- keppninnar á Wacken Open Air- hátíðinni í Þýskalandi í ágúst. Sex manns koma gagngert til landsins erlendis frá til að dæma á kvöld- inu en meðal þeirra er háttsettur aðili frá Wacken-hátíðinni sem einnig er yfirmaður Metal Battle- keppninnar. Þessar keppa í Wacken Metal Battle Skuggaleg Svartmálmssveitin Carpe Noctem er á meðal keppenda. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010 Allt frá stofnun Hafnarfjarð-arleikhússins árið 1996hefur leikhúsið einbeittsér að nýjum íslenskum verkum eða þýðingum. Upp á síð- kastið hefur leikhúsið verið í nokkru samstarfi við aðra leikhópa og að þessu sinni er það Lab Loki sem frumsýnir Ufsagrýlur eftir Sjón. Þessir aðilar hafa áður leitt saman hesta sína en í fyrra setti Lab Loki upp í Hafnarfjarðarleikhúsinu sýn- inguna Steinar í djúpinu. Ufsagrýlur er skrifað sérstaklega fyrir Lab Loka svo sem fram kemur í viðtali við höfundinn sem birt var í Morgunblaðinu 5. febrúar sl. Um- fjöllunarefnið eru þeir atburðir sem riðu yfir íslenskt þjóðfélag í október 2008 og aðdragandi þeirra. Verkið gerist í óskilgreindum og tímalaus- um heimi þar sem ljóst er að gríð- arleg spilling hefur átt sér stað, svik og prettir. Söguþráður er fremur óljós. Móra yfirlæknir hefur umsjón með nokkrum ufsagrýlum og gerir rannsóknir á þeim. Ekki er áhorf- endum ljóst í fyrstu hver tilgang- urinn er með að halda þessum skrímslum föngnum. Einn fangi eða öllu heldur sjúklingur, Veigar Mar, er bundinn niður og er í einhvers konar meðferð hjá Móru og virðist sagan snúast að mestu um hann og örlög hans. Þegar líður á sýninguna fara hlutirnir að skýrast, a.m.k. að sumu leyti. Ufsagrýlurnar og Veigar Mar eru þeir sem sólundað hafa pen- ingum og svikið þjóðina og beðið er eftir því að þeir greiði skuld sína til baka með því að skíta peningunum sem þeir bókstaflega átu upp. Sjón er afar fjölhæfur rithöfundur og hér tekst hann á við leikhúsformið sem hann hefur ekki oft fengist við áður. Textinn er mjög skemmtilegur á köflum, djúpur, fyndinn og hittir beint í mark. Hins vegar kallar leik- húsformið á það að áhorfendur skilji það sem fram fer á sviðinu. Vissulega er leikritið Ufsagrýlur í ætt við abs- úrdisma og súrrealisma en eitthvað vantar upp á til að sagan komist vel til skila. Umgjörð verksins er skyld gróteskunni að mörgu leyti og margt spennandi ber fyrir augu, en hætt er við að áhorfendur týni þræðinum og njóti því ekki sögunnar sem skyldi. Oft er mikið um að vera á sviðinu og líklega hefði leikstjórinn betur dreg- ið úr ærslaganginum á stöku stað. Leikarar stóðu sig allir mjög vel en flestir þeirra leika fleiri en eitt hlut- verk. Erfitt er að segja hver stóð upp úr en Erling Jóhannesson var eft- irminnilegur í hlutverki yfirþjónsins og Birna Hafstein í hlutverki Móru yfirlæknis. Búningar voru við hæfi verksins og líklega eru leikgervi Ástu Haf- þórsdóttur eitt hið eftirminnilegasta við þessa sýningu. Ásta er mjög vön leikhúsinu og kann sína iðju upp á hár. Gervin voru frábær. Leikmyndahönnuðurinn Móeiður Helgadóttir nýtti rýmið vel og margt skemmtilegt bar fyrir augu. Lýsing var leikmynd stuðningur eins og vera ber og hljóðmynd var með ágætum. Sýningin Ufsagrýlur er ekki alveg nógu vel heppnuð sem leikhúsverk sem vissulega er synd því þar eru ágætir sprettir og fært leikhúsfólk sem stendur að verkinu. Margar sen- ur eru mjög eftirminnilegar en verk- ið of samhengislaust sem þétt leik- sýning. Skrímsli og aðrar kynjaverur Spillingin skoðuð „Verkið gerist í óskilgreindum og tímalausum heimi þar sem ljóst er að gríðarleg spilling hefur átt sér stað, svik og prettir.“ Hafnarfjarðarleikhúsið í samstarfi við Lab Loka Ufsagrýlur eftir Sjón bbmnn Leikarar: Aðalbjörg Þóra Árnadóttur, Árni Pétur Guðjónsson, Birna Hafstein, Erling Jóhannesson, Hjálmar Hjálmars- son, Orri Huginn Ágústsson, Gísli Björn Heimisson, Halldór Magnússon, Huld Óskarsdóttir, Júlía Hannam, Magnús Örn Sigurðsson og Rúnar Örn Marínósson. Leikmynd: Móeiður Helgadóttir Búningar: Myrra Leifsdóttir Leikgervi: Ásta Hafþórsdóttir Lýsing: Garðar Borgþórsson Tónlist/hljóðmynd: Stilluppsteypa Leikstjórn: Rúnar Guðbrandsson Frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu föstudaginn 5. febrúar INGIBJÖRG ÞÓRISDÓTTIR LEIKLIST Það verður lengi í minnumhaft er Andrew D’Angelostjórnaði Stórsveit Reykja-víkur í Kaffileikhúsinu í mars 2003 og Björn R. blés enn með bandinu. Kraftur Andrews og spila- gleði átti sér engin takmörk og hin þá hefðbundna Stórsveit sleppti fram af sér beislinu. Sjö árum síðar er Andrew gestur Stórsveitarinnar að nýju og sum lag- anna frá 2003 enn á efnisskránni og fönkaður krafturinn í „Marching Fuckers“ jafn sterkur og fyrr og boppskotinn óðurinn til mömmunnar „Big Butt“ enn spennandi jafnvæg- islist hins frjálsa og hins hefðbundna – aftur á móti ríkir meira jafnvægi í tónlist Andrews en fyrr og ekki að efa að barátta hans við dauðann, þar sem hann fór með sigur af hólmi, hefur sett mark sitt á tónlist hans. Kannski ekki alltaf til góðs – í það minnsta fannst mér poppballaða hans „Cho- rale“ þar sem hann raulaði í sífellu „I love you“ dálítið einsog í vitlausu leik- riti – þó að laglínan væri falleg. „Free Willy“ var nánast hefðbundinn stór- sveitarópus fjórskiptur – svo kom þar á tónleikunum að bandið brast í blús. Öll var tónlist Andrews án til- gerðar og tildurs, oft voru elling- tonskir sprettir með tilheyrandi demparablæstri og alltaf lék ferskur andblær um tónlistina, ólíkt þeim til- finningardoða sem einkennir æ meira stósveitir útvarpsstöðva og tónlist- arháskólaskóla heimsins og ýmsir bandarískir „flökkustjórnendur“ eru haldnir. Margt góðra sólókafla mátti heyra á tónleikunum og að sjálfsögðu var Andrew þar í aðalhlutverki bæði á bassaklarínett og altósaxófón, en kraftmikill altóblástur hans, vöfða- stæltur einsog hjá Dolphy, er gulli betri. Saxófónarnir voru óborg- anlegir í mishljóma babli sínu í lokum „Shoosabuster“ og Óskar Guðjónsson blés kröftugan tenórsóló í „Gay Disco“ sem var lokaverk tónleikanna og þar reis sveitin að nýju í hæðir. Svo voru það allir hinir sem stóðu sig einsog hetjur og Sigurður Flosa- son, kröftugur bakhjarl Andrews á tónleikunum. Aftur á móti var hljóm- urinn á Rosenberg ekki upp á hið besta og hrynsveitin dálítið útundan þar sem ég sat. Þá er bara eitt eftir; að óska Stór- sveit Reykjavíkur til hamingju með að hafa verið valin tónlistarhópur Reykjavíkur 2010 og ekki síður okk- ur, sem njótum leiks hennar. Það er fyrir löngu orðið klisja að benda á að hún sé í fremsta flokki stórsveita, en því skal bætt við að sveitin hefur flest stílbrigði á valdi sínu. Saxófónorgía Stórsveitarinnar Blásarinn „Öll var tónlist Andrews án tilgerðar og tildurs, oft voru elling- tonskir sprettir með tilheyrandi demparablæstri og alltaf lék ferskur and- blær um tónlistina,“ segir Vernharður m.a. Café Rosenberg Stórsveit Reykjavíkur og Andrew D’Angelobbbmn Einar Jónsson, Kjartan Hákonarson, Snorri Sigurðarson og Birkir Freyr Matthíasson á trompeta; Edward Fre- deriksen, Stefán Ómar Jakobsson og Einar Jónsson á básúnur; David Bobroff á bassabásúnu; Ólafur Jónsson, Óskar Guðjónsson, Sigurður Flosason, Haukur Gröndal og Kristján Svavarsson á saxó- fóna, klarinettur og flautur, Kjartan Valdimarsson á rafpíanó, Gunnar Hrafnsson á rafbassa og Einar Scheving á trommur. Stjórnandi: Andrew D’Angelo sem einn- ig blés í altósaxófón og bassaklarinett. Mánudagskvöldið 8. febrúar. VERNHARÐUR LINNET TÓNLIST ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ „Besta leiksýning ársins“ Mbl., GB Mbl., IÞ Uppl. um sýningar og miðasala 551 1200 www.leikhusid.is 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Góðir Íslendingar HHHH GB, Mbl Faust (Stóra svið) Mið 10/2 kl. 20:00 Fim 25/2 kl. 20:00 Aukas Sun 14/3 kl. 20:00 Fim 11/2 kl. 20:00 Fös 26/2 kl. 20:00 Lau 20/3 kl. 20:00 Fös 12/2 kl. 20:00 8.K Fös 5/3 kl. 20:00 Sun 28/3 kl. 20:00 Fös 19/2 kl. 20:00 9.K Lau 6/3 kl. 20:00 Aukas Lau 20/2 kl. 20:00 10.K Lau 13/3 kl. 20:00 Aukas í samvinnu Borgarleikhússins og Vesturports Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið) Lau 13/2 kl. 19:00 Lau 27/2 kl. 19:00 Fös 12/3 kl. 19:00 Fim 18/2 kl. 19:00 aukas Fim 4/3 kl. 19:00 Lau 27/3 kl. 19:00 Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt. Góðir íslendingar (Nýja svið) Fös 12/2 kl. 20:00 Fös 19/2 kl. 20:00 Lau 13/2 kl. 20:00 Lau 20/2 kl. 20:00 Undir yfirborðinu býr sannarlega þjóð sem á sér ýmis leyndarmál. Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið) Lau 13/2 kl. 12:00 Lau 27/2 kl. 12:00 Sun 7/3 kl. 12:00 Lau 13/2 kl. 14:00 3.K Lau 27/2 kl. 14:00 Sun 7/3 kl. 14:00 Sun 14/2 kl. 12:00 Sun 28/2 kl. 12:00 Lau 13/3 kl. 12:00 Sun 14/2 kl. 14:00 4.K Sun 28/2 kl. 14:00 Lau 13/3 kl. 14:00 Sun 21/2 kl. 12:00 Lau 6/3 kl. 12:00 Sun 14/3 kl. 12:00 Sun 21/2 kl. 14:00 5.K Lau 6/3 kl. 14:00 Sun 14/3 kl. 14:00 Harry og Heimir (Litla sviðið) Fös 12/2 kl. 19:00 Sun 14/2 kl. 20:00 Fös 26/2 kl. 19:00 Lau 13/2 kl. 19:00 Fös 19/2 kl. 19:00 Lau 27/2 kl. 19:00 Lau 13/2 kl. 22:00 Lau 20/2 kl. 19:00 Sýningum lýkur í mars Djúpið (Nýja svið) Fim 11/2 kl. 20:00 síðasta sýn Síðasta sýning 11. feb. Sýningartími: 1 klst, ekkert hlé. Bláa gullið (Litla svið) Mið 10/2 kl. 9:30 Fös 12/2 kl. 9:30 Mán 15/2 kl. 11:00 Mið 10/2 kl. 11:00 Fös 12/2 kl. 11:00 Þri 16/2 kl. 9:30 Fim 11/2 kl. 9:30 Mán 15/2 kl. 9:30 Þri 16/2 kl. 11:00 Uppsetning Opið út í samstarfi við Borgarleikhúsið. Fjölskyldan ,,Besta leiksýning árins“ Mbl, GB Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is 39 þrep (Samkomuhúsið) Fös 12/2 kl. 19:00 Fös 19/2 kl. 19:00 Lau 27/2 kl. 19:00 Lau 13/2 kl. 19:00 Lau 20/2 kl. 19:00 Fös 5/3 kl. 19:00 Ný sýn Sun 14/2 kl. 20:00 Fös 26/2 kl. 19:00 Lau 6/3 kl. 19:00 Ný sýn Sýningum lýkur í mars Munaðarlaus (Rýmið) Fim 11/2 kl. 20:00 1.sýn. Lau 13/2 kl. 19:00 3.sýn. Fös 12/2 kl. 19:00 2.sýn. Sun 14/2 kl. 20:00 4.sýn. Aðeins nokkrar sýningar verða í Rýminu á Akureyri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.