Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 4

Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 4
Mikil stemning í æfinga- ferð Breiðabliks á Spáni 4 Monitor FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010 • Stöð 2 hefur á teikniborðinu íslenskan sjónvarpsþátt um póker, en þátturinn yrði sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi. Stendur til að fjalla á gaman- saman hátt um pókermenning- una hér á landi og þá á að halda stórmót, þar sem stórlaxar landsins í póker keppa um stór peningaverðlaun. Það eru þeir Valur Heiðar Sævarsson, betur þekktur sem Valur í Buttercup, og Davíð Rúnarsson sem eru hugmyndasmiðir þáttarins. • Ekkert hefur verið ákveðið um hver muni stjórna þættinum, en fregnir herma að þeir Valur og Davíð hafi rætt við aðstandendur þáttanna Atvinnumennirnir okkar um að búa til þættina. Atvinnumenn- irnir okkar slógu eftirminnilega í gegn og voru tilnefndir til Edduverðlauna, en leikstjóri þeirra var knattspyrnumaður- inn Hannes Þór Halldórsson. • Haffi Haff er í viðræðum við útgáfufyrirtækið Borgina um að gefa út fyrstu breiðskífu sína sem er væntanleg í sumar. Haffi mun fyrst hafa rætt við Senu sem hafnaði kappanum. Steinþór Helgi Arnsteinsson og félagar hjá Borginni eru talsvert spenntari fyrir tónlist Haffa Haff og heimildir Monitor herma að verið sé að rissa upp samning þeirra á milli. Borginni gekk vel í plötuútgáfu í fyrra, en á þeirra snærum voru meðal annars Hjálmar og Hjaltalín. • Fegurðar- drottningarnar Jóhanna Vala Jónsdóttir og Ásdís Svava Hallgrímsdóttir eru orðnar fullgildar flugfreyjur. Jóhanna var valin Ungfrú Ísland árið 2007 og Ásdís Svava hafnaði í öðru sæti í sömu keppni árið áður. Þær stöllur eru vinkonur en fengu vinnu hjá sitthvoru flugfélaginu, Jóhanna Vala hjá Icelandair, en Ásdís Svava hjá Iceland Express. Þótt félögin séu í harðri samkeppni hafa skvísurnar látið hafa eftir sér að öll dýrin í skóginum eigi að vera vinir og hafa víst ákveðið að láta smella af sér mynd saman í flugfreyjugöllunum í sumar. • Bergur Ebbi Benediktsson er fjölhæfur með eindæmum. Bergur er starf- andi lögfræðing- ur og meðlimur í grínhópnum Mið-Ísland, en hann hefur þrátt fyrir það fundið sér tíma til að semja ljóðabók. Bókin ber heitið Tími hnyttninnar er liðinn og kemur út hjá Máli og menningu í maí. • Annar Mið- Íslendingur, Ari Eldjárn, sló í gegn á Aldrei fór ég suður hátíðinni um síðustu helgi. Þá söng hann lög Bubba Morthens við undirleik Hjaltalín. Ari er orðinn svo góður í að herma eftir Bubba að hann gæti blekkt Bubba sjálfan. Og já... Tónleikar í Hljómahöllinni á þriðjudaginn Geimsteinn kynnir útgáfu ársins Útgáfufyrirtækið Geimsteinn stendur fyrir tónleikum í Hljómahöllinni í Keflavík næstkomandi þriðjudagskvöld, 13. apríl, þar sem útgáfa fyrirtækisins á árinu verður kynnt. 13. apríl var afmælisdagur rokkkóngsins Rúnars Júlíussonar, sem lést í desember 2008, en hann hefði orðið 65 ára á þriðjudaginn. „Við erum með svo stóra útgáfu í ár. Við höfum alltaf verið með uppskeruhátíð í desember, en núna langaði okkur að bjóða upp á stóra tónleika og kynna útgáfuna al- mennilega,“ segir Björgvin Ívar Baldursson hjá Geimsteini. Ein af þeim hljómsveitum sem gefa út hjá Geimsteini í ár er Lifun, en Björgvin er einmitt meðlimur í henni. „Það er búið að taka einhver tvö ár að gera plötuna. Ég er með svo mikla fullkomnun- aráráttu,“ segir Björgvin. Lára Rúnarsdóttir syngur með Lifun á plötunni, en hún er hætt í hljómsveitinni til þess að einbeita sér að sólóferli sínum. Tónleikarnir á þriðjudag hefjast klukkan 20 og er frítt inn. Þeir sem koma fram eru Blaz Roca, Klassart, Deep Jimi and the Zep Creams, Valdimar, Bjartmar Guðlaugs og Bergrisarnir og Lifun. Grillaðir Blikar Bikarmeistarar Breiðabliks fóru í æfingaferð til Spánar á dögunum til að þjappa hópnum saman fyrir komandi átök í sumar. Kári Ársælsson, fyrirliði Breiðabliks, segir stemninguna í hópnum einstaklega góða og meðfylgjandi myndir, sem hann tók í ferðinni, eru góð sönnun fyrir því. „Við höfðum létta frumleikakeppni. Gengum á milli herbergja og létum menn gera eitthvað frumlegt. Þetta var það sem kom út úr því,“ segir Kári þegar hann er beðinn um að útskýra alla nektina sem blasir við á myndunum. „Svona ferðir eru farnar til þess að þjappa hópnum saman og það er nákvæmlega það sem hún gerði. Þetta var frábært í alla staði,“ segir Kári. Breiðablik er greinilega eitt hressasta knattspyrnulið landsins og Monitor bíður spennt eftir næsta uppátæki. FYRIRLIÐINN KÁRI ÁRSÆLSSON ÁSAMT SIGMARI INGA SIGURÐSSYNI ÞJÁLFARINN ÓLAFUR KRISTJÁNS FÆR HÁRÞURRKUMEÐFERÐINA HÖGNI OG ARON MÁR ERU BESTU VINIR OG GERA ALLT SAMAN GUÐMUNDUR PÉTURSSON ER SLÁANDI LÍKUR DAVID BECKHAM ÆVINTÝRI Í ANDA BROKEBACK MOUNTAIN Í UPPSIGLINGU HAUKUR BALDVINSSON OG ALFREÐ FINNBOGASON FREMJA GJÖRNING FINNUR ORRI OG KRISTINN SPILA RASSINN ÚR BUXUNUM OG BUXURNAR AF RASSINUM JÖKULL OG ARNÓR SVEINN SÝNA NÆRFATALÍNU PEPSIDEILDARINNAR 2010 BLAZ ROCA GEFUR ÚT HJÁ GEIMSTEINI Í ÁR BJÖRGVIN ÍVAR ER Í HLJÓMSVEITTIN LIFUN

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.