Morgunblaðið - 26.03.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.03.2010, Blaðsíða 6
6 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2010 KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikar A-DEILD, riðill 1: Njarðvík – Haukar ................................... 1:1 Rafn Markús Vilbergsson 90. (víti) – Arnar Gunnlaugsson. Staðan: ÍA 5 4 1 0 16:10 13 Grindavík 4 3 0 1 11:7 9 Stjarnan 5 2 1 2 14:12 7 Fylkir 3 1 1 1 4:3 4 Haukar 4 1 1 2 7:10 4 Þór 3 1 0 2 4:6 3 Fjarðabyggð 4 1 0 3 5:10 3 Njarðvík 4 0 2 2 4:7 2 A-DEILD, riðill 3: Þróttur R. – ÍR .......................................... 3:4 Oddur Björnsson, Hörður S. Bjarnason, Ingvar Ólason – Björn Viðar Ásbjörnsson (2), Kristján Ari Halldórsson, Guðfinnur Þ. Ómarsson. Staðan: KR 4 4 0 0 20:4 12 Keflavík 5 4 0 1 17:8 12 Breiðablik 5 4 0 1 10:6 12 ÍBV 6 2 2 2 11:8 8 ÍR 5 2 0 3 10:23 6 HK 5 0 3 2 6:11 3 Þróttur R. 5 0 2 3 6:12 2 Grótta 5 0 1 4 3:11 1 Spánn Getafe – Real Madrid................................ 2:4 Atlético Madrid – Athletic Bilbao............ 2:0 Staða efstu liða: Real Madrid 28 23 2 3 78:24 71 Barcelona 28 22 5 1 70:18 71 Valencia 28 15 8 5 45:29 53 Real Mallorca 28 14 5 9 45:32 47 Sevilla 28 13 6 9 40:32 45 Bilbao 28 12 6 10 36:34 42 Dep. La Coruna 28 12 6 10 31:32 42 Atl. Madrid 28 10 7 11 42:42 37 Ítalía Napoli – Juventus ..................................... 3:1 Staða efstu liða: Inter Mílanó 30 18 9 3 57:26 63 Roma 30 17 8 5 54:34 59 AC Milan 30 17 8 5 48:28 59 Palermo 30 13 9 8 43:37 48 Sampdoria 30 13 8 9 37:36 47 Napoli 30 11 12 7 40:36 45 Juventus 30 13 6 11 46:43 45 Holland Bikarkeppnin, undanúrslit: Go Ahead Eagles – Ajax........................... 0:6  Ajax mætir Feyenoord í úrslitaleik. Danmörk Bröndby – Köge........................................ 1:3  Stefán Gíslason var ekki í leikmannahópi Bröndby. Midtjylland – SönderjyskE ..................... 0:0  Sölvi Geir Ottesen lék allan leikinn með SönderjyskE en Ólafur Ingi Skúlason fór meiddur af velli á 67. mínútu. Esbjerg – OB............................................. 1:2  Rúrik Gíslason lék allan leikinn með OB og skoraði sigurmarkið. Randers – AGF ......................................... 2:1 Staðan: København 22 14 4 4 40:13 46 OB 22 13 7 2 36:21 46 Esbjerg 22 10 7 5 34:25 37 Silkeborg 22 10 5 7 36:25 35 AaB 22 10 4 8 26:18 34 Nordsjælland 22 9 3 10 25:26 30 Brøndby 22 8 5 9 38:39 29 Midtjylland 22 8 5 9 28:33 29 AGF 22 7 6 9 26:34 27 SønderjyskE 22 6 7 9 17:22 25 Randers 22 2 8 12 16:35 14 Køge 22 2 5 15 20:51 11 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, N1-deildin Akureyri – Fram ................................... 26:31 Haukar – Valur...................................... 20:24 FH – Grótta ........................................... 23:30 Stjarnan – HK ....................................... 33:28 Staðan: Haukar 18 13 2 3 461:433 28 Akureyri 18 10 2 6 489:461 22 Valur 18 9 3 6 444:422 21 HK 18 9 2 7 487:469 20 FH 18 9 1 8 503:484 19 Grótta 18 6 0 12 454:481 12 Stjarnan 18 5 1 12 426:483 11 Fram 18 5 1 12 475:506 11 1. deild karla Fjölnir – Þróttur ................................... 25:24 Staðan: Selfoss 15 13 0 2 473:347 26 Afturelding 15 12 1 2 420:334 25 ÍBV 15 11 0 4 467:390 22 Víkingur R. 16 8 1 7 452:371 17 ÍR 15 7 0 8 402:406 14 Fjölnir 17 2 1 14 332:541 5 Þróttur 17 0 1 16 370:527 1 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla Umspil, undanúrslit, oddaleikur: Valur – Skallagrímur .......................... 84:77 Gangur leiksins: 16:14, 43:33, 56:59, 84:77. Stig/fráköst Vals: Hörður Helgi Hreiðars- son 33/8/5 stoðsendingar, Sigurður Friðrik Gunnarsson 21/10, Byron Davis 12/11/11 stoðsendingar, Snorri Páll Sigurðsson 8/4, Guðmundur Kristjánsson 4/3, Sigmar Eg- ilsson 4/1, Benedikt Pálsson 2/3, Björgvin Rúnar Valentínusson 0/2, Stig/fráköst Skallagríms: Silver Laku 24/8, Hafþór Ingi Gunnarsson 22/2, Konrad Tota 14/13, Trausti Eiríksson 14/14, Sigurð- ur Þórarinsson 3/1, Kristján Guðmundsson 0/2, Óðinn Guðmundsson 0/3.  Valur sigraði, 2:1, og mætir Haukum í úr- slitum um sæti í úrvalsdeildinni. í kvöld KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikarinn: Egilshöll: Leiknir R. – Valur .....................19 Ásvellir: ÍH – Hamar ................................. 20 Egilshöll: KV – BÍ/Bolungarvík ............... 21 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla: Austurberg: ÍR – Afturelding.............. 19.30 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrslit kvenna, fyrsti leikur: DHL-höllin: KR – Hamar .................... 19.15 8-liða úrslit karla, fyrstu leikir: Ásgarður: Stjarnan – Njarðvík............ 19.15 Grindavík: Grindavík – Snæfell ........... 19.15 Úrslit 1. deildar kvenna, fyrsti leikur: Grafarvogur: Fjölnir – Þór Ak............. 19.15 SKÍÐI Skíðamót Íslands hefst í dag kl. 17 með sprettgöngu í Ólafsfirði. Mótið verður form- lega sett á Dalvík í kvöld en það fer fram í nágrannabæjunum og lýkur á mánudag. BADMINTON Meistaramót Íslands er haldið í TBR-hús- unum um helgina. Það hefst í dag kl. 19 og stendur til 21.30. Eftir Kristján Jónsson kris@mbl.is TVÆR afar spennandi rimmur hefj- ast í kvöld í átta liða úrslitum Ice- land Express-deildar karla. Annars vegar á milli Grindavíkur og Snæ- fells en Stjörnunnar og Njarðvíkur hins vegar. Þau höfnuðu í sætum 3.-6. í deildinni en eiga öll raunhæfa möguleika á því að verða meistarar að mati undirritaðs. Grindvíkingar voru meistaraefni fyrir leiktíðina. Frekar litlar breyt- ingar urðu á liðinu sem missti svo naumlega af titlinum síðastliðið vor. Liðinu gekk hins vegar ekki sem skyldi framan af og eftir tólf umferð- ir var Grindavík einungis með 50% vinningshlutfall. Þeir voru hins veg- ar naskir þegar þeir nældu sér í Bandaríkjamanninn Darrel Flake því hann féll mjög vel inn í liðið. Grindvíkingar hafa verið sterkir eft- ir áramót. Þeir töpuðu reyndar bik- arúrslitaleiknum en voru fljótir að jafna sig og unnu nokkra leiki í röð. Það var einmitt Snæfell sem lagði Grindavík að velli í bikarúrslita- leiknum. Það er eiginlega með ólík- indum að Snæfell hafi aðeins náð 6. sæti í deildinni en eins og áður segir er ekki svo mikill gæðamunur á efstu sex liðunum. Þessi niðurstaða hefur sett Hólmara í erfiða stöðu. Þeir þurfa að vinna einn leik í Grindavík annars eru þeir úr leik. Snæfell er eitt sterkasta varnarlið deildarinnar ef ekki það sterkasta. Þarna mætast kannski ólíkir stílar því Grindvíkingar eru þekktari fyrir að vera stuðkarlar í sókn og getuna til að skora mikið. Snæfell byrjaði leiktíðina án Kana en leikstjórnand- inn Sean Burton sýndi í bikarúrslita- leiknum að hann var happafengur fyrir Hólmara. Hvað gerir Bradford? Stjarnan og Njarðvík eigast við í fjórða leik átta liða úrslitanna. Garðbæingar hafa leikið frábærlega á löngum köflum á þessari leiktíð og eru mjög erfiðir heim að sækja. Teit- ur Örlygsson hefur skipulagt leik Stjörnunnar afskaplega vel og menn eru með sín hlutverk á hreinu. Koma Djorde Pantelic hægir þó nokkuð á leik liðsins en liðið ætti hins vegar að geta verið öflugra varnarlið með hann innanborðs. Forvitnilegt verð- ur að sjá hvaða áhrif þetta hefur á Fannar Frey Helgason sem spilaði frábærlega framan af leiktíðinni og er nú í öðru hlutverki. Njarðvíkingar eru kannski það lið í úrslitakeppn- inni sem erfiðast er að spá í. Þeir sýndu meistaratakta fyrir áramót og bjuggu til sterka liðsheild. Auk þess var Magnús Gunnarsson í miklu stuði en nú er óvissa um hans þátt- töku vegna hnémeiðsla. Njarðvík- ingar voru án Kana framan af móti en nældu í Nick Bradford. Síðan þá hefur allt gengið á afturfótunum hjá liðinu, einhverra hluta vegna. Brad- ford var drjúgur bæði fyrir Keflavík og Grindavík og hefur ábyggilega ekki sagt sitt síðasta orð. Morgunblaðið/Golli Sterkur Hlynur Bæringsson hefur átt frábært tímabil með Snæfelli. Hann og Darrel Flake eiga eftir að takast hressilega á í Grindavík í kvöld. Hefnir Grindavík fyrir bikartapið?  Teitur Örlygsson freistar þess að slá Njarðvíkinga út Eftir Kristján Jónsson kris@mbl.is KR og Hamar takast á í fyrsta leik úrslitarimmunnar um Íslandsmeist- aratitilinn í körfuknattleik kvenna í DHL-höllinni í Frostaskjóli í kvöld. Þessi lið höfnuðu í tveimur efstu sætunum í deildinni og má því færa rök fyrir því að tvö bestu lið lands- ins séu komin í úrslit. Landsliðsfyrirliðinn og besti leik- maður Iceland Express deild- arinnar í fyrra, Signý Her- mannsdóttir, gekk til liðs við KR fyrir þessa leiktíð. Hún hefur reynst liðinu drjúgur liðsauki eins og við var að búast. Þrátt fyrir glæsilegan feril hefur Signý aldrei orðið Ís- landsmeistari og það má reikna með því að hún muni drífa KR-liðið áfram í þessari rimmu. Þetta er hennar tækifæri til þess að vinna titilinn því KR-liðið hefur hingað til verið sterkasta liðið á þessari leik- tíð. Signý mun berjast við Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur miðherja Hamars sem lék með KR í fyrra. Sigrún hefur vafalaust mikinn áhuga á því að vinna gömlu sam- herjana og barátta þesara tveggja verður áhugaverð. Allt þegar þrennt er? KR hefur tapað úrslitarimmum sem þessari síðustu tvö ár. Gegn Haukum í fyrra og þar áður gegn Keflavík. Leikmenn KR þekkja því það umhverfi sem fylgir því að berj- ast um titilinn og virðast hafa lagt mikið á sig til þess að geta klárað dæmið. Margrét Kara Sturludóttir hefur átt frábært tímabil. Hún not- aði undirbúningstímabilið vel og tókst að skerpa á snerpunni og hraðanum. Það hefur skilað sér í meira stigaskori hjá henni. Varn- armaður ársins í fyrra, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, hefur ekki lát- ið sitt eftir liggja í lyftingasalnum og er gríðarlega sterk maður á móti manni eins og það er kallað. Bæði lið búa vel þegar kemur að þjálfun liðanna. Benedikt Guð- mundsson þjálfari KR hefur tvíveg- is unnið titilinn í karlaflokki en er nýliði í kvennaboltanum. Ágúst Björgvinsson gjörþekkir kvenna- boltann og var ekki lengi að koma Hamri í fremstu röð en félagið hef- ur aldrei orðið Íslandsmeistari. Það verður væntanlega hátt sungið Heims um ból í Hveragerði ef liðinu tekst að leggja vesturbæj- arstórveldið og tryggja sér sinn fyrsta titil. Bið Signýjar á enda?  Úrslitarimma KR og Hamars að hefjast  Verður lands- liðsfyrirliðinn loks meistari?  Hamar hefur aldrei unnið Morgunblaðið/hag Átök Signý Hermannsdóttir KR og Sigrún Ámundadóttir Hamri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.