Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010 SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI G SELFOSSI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI HHHHH “ÓMENGUÐ SNILLD YST SEM INNST.” “HÚN HEFUR SVO SANNARLEGA ALLA BURÐI TIL AÐ VERÐA VINSÆLASTA OG BESTA MYND SUMARSINS” S.V. - MBL HHHHH - P.H. BOXOFFICE MAGAZINE HHHHH „ÞETTA VERÐUR EKKI MIKIÐ BETRA“ - Þ.Þ FRÉTTABLAÐIÐ HHHH "TOY STORY 3 ER ÞAÐ BESTA SEM ÉG HEF SÉÐ Í BÍÓ Á ÞESSU ÁRI HINGAÐ TIL OG ÉG GET EKKI BEÐIÐ EFTIR AÐ SJÁ HANA AFTUR!" - T.V. KVIKMYNDIR.IS SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI EIN FERSKASTA ÍSLENSKA KVIKMYND Í LANGAN TÍMA! N, ÍSGERÐUR ELFA GUNNARSDÓTTIR, ON, MAGNÚS JÓNSSON, HJALTI RÖGNVALDSSON RSSON TÓNLIST: KARL PESTKA VIDDI, BÓSI LJÓSÁR OG HIN LEIKFÖNGIN ERU KOMIN AFTUR Í STÆRSTU OG BESTU TOY STORY MYNDINNI TIL ÞESSA STÓRKOSTLEG SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SPARBÍÓ 600 krkr á allar sýningar merktar með appelsínugulu BOÐBERI kl. 5:40 - 8 - 10:20 14 LEIKFANGASAGA 3 ísl. tal kl. 5:50 L THE A TEAM kl. 8 L NIGHTMARE ON ELM STREET kl. 10:20 16 BOÐBERI kl. 6 - 8 - 10 14 LEIKFANGASAGA 3 3D ísl. tal kl. 5:403D L TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 8 - 10:35 12 BOÐBERI kl. 8 - 10:20 14 TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 5:30 - 8 - 10:30 12 LEIKFANGASAGA 3 ísl. tal kl. 5:50 L / KEFLAVÍK / SELFOSSI/ AKUREYRI Boðberi er um margtóvenjuleg íslensk mynd.Við höfum að vísu gertnokkrar óháðar og ódýr- ar myndir í gegnum árin; (Ó)eðli, Ussss og Þriðja nafnið, svo eitthvað sé nefnt, en það verður að segja Boðbera til hróss að hún er í öðrum gæðaflokki. Ekki svo að skilja að hér sé um sígilt meistaraverk að ræða, en hér eru handtök fumlaus- ari og hugmyndirnar auðugri en við eigum að venjast í myndum sem áhugasamir kvikmyndagerðarmenn hafa verið að setja saman með tvær hendur tómar. Líkt og þær naut Boðberi engra opinberra styrkja og ekki mulið undir hana á nokkurn hátt annan en að flestir ef ekki allir lánuðu eða gáfu vinnu sína, þannig var björninn unninn. Það er dálítið snúið að skilgreina þennan kostulega einfara í íslenskri kvikmyndagerð, einna helst að stimpla hana sem kaldhæðnislega ádeilu, af þeim rótum er hún sprottin. Leikstjórinn og handrits- höfundurinn, Hjálmar Einarsson, hafði dvalist við kvikmyndanám í ein fimm ár í fjarlægu landi þegar hann kom til baka og þá blöstu við honum þessar margumræddu stökkbreytingar sem höfðu orðið á flestum sviðum í eyríkinu litla. „Út- rásarvíkingar“ í óðaönn að ræna bankana innan frá, ofþensla á öllum sviðum. Hjálmar byrjaði að filma mynd um ósköp venjulegan pípara (Darri Ingólfsson) en á hann fara að sækja draumfarir myrkar um hvað er að gerast á bak við tjöldin og hvað tekur við þegar jarðvist vorri lýkur. Í svefni og vöku flækist píparinn í byltingarkennt ástand þar sem koma við sögu englar af himnum sendir. Ófyrirleitna spill- ingarvaldana segja þeir ótínda djöfla, en hver er hvað og hvað er hver, hún reynist óljós línan þar á milli. Ósóminn veður uppi í þjóð- félaginu og farið er að drita niður valdamenn og skotfærin þeirra eig- in saur … Í myndina blandast sýnir og sér- trúarsafnaðir, ástamál og litríkur hópur aukapersóma sem margar hverjar lífga upp á þessa frumlegu mynd með traustum leik og fram- sögn. Þar koma við sögu þjóð- kunnir listamenn á borð við Gunnar Eyjólfsson, Móeiði Júníusdóttur, Kjartan Bjargmundsson, Magnús Jónsson og síðast en ekki síst Pét- ur Einarsson og Hjalta Rögnvalds- son, sem er framúrskarandi og synd að fá ekki að sjá meira til hans í bíómyndum, og sama má hiklaust segja um kollega hans í myndinni. Boðberi, eða Refsivöndurinn, er ekki svo ýkt þegar allt kemur til alls og aðeins forsjónin veit hvað bíður okkar næstu misserin eða ár- in. Hjálmar reynist sannspár á köflum og víst er að í æðum okkar margra svellur að vísu allmengað víkingablóð, þó ekki það útþynnt að í vissum tilfellum hafa landar vorir getað hugsað sér til hreyfings. Boðberi er óvenjuleg mynd að efni og efnistökum, hugdetta sem fær á sig á köflum furðulega raun- verulegan blæ. Fyrst og fremst er hún þó fantasía um hvað hefði get- að orðið og skýtur þá á og yfir markið jöfnum höndum. Leikur hinna minna reyndu er í flestum tilfellum ásættanlegur og þó að hún leiði okkur oft á tíðum út í óvissuna er Boðberi furðu skýr í kollinum þess á milli og hnyttin á sinn kald- hæðnislega hátt. saebjorn@heimsnet.is Englar og djöflar Boðberi „Í svefni og vöku flækist píparinn í byltingakennt ástand þar sem koma til sögu englar af himnum sendir.“ Sambíóin Boðberi bbbnn Leikstjóri og handritshöfundur: Hjálmar Einarsson. Tónlist: Karl Pestka. Kvik- myndataka: Edwin (Eddie ) Krieg. Klipp- ing Jóhannes Tryggvason. Framleið- endur: Hákon Einarsson o.fl. Aðalleikarar: Darri Ingólfsson, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Jón Páll Eyjólfsson, Magnús Jónsson, Pétur Einarsson, Mó- eiður Júníusdóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Gunnar Eyjólfsson, Frosti Runólfsson, Kjartan Bjargmundsson. 96 mín. Hers- ing Film Production. Samfilm 2010. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.