Morgunblaðið - 02.09.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.09.2010, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010 íþróttir Meistaraefni Arna Stefanía Guðmundsdóttir, nýbakaður Norðurlandameistari unglinga í 400 m hlaupi, lét strekkingsvind ekki hafa áhrif á sig á Akureyri. Leggur handboltann á hilluna 2 Íþróttir mbl.is Reuters Barátta Heimsmeistaramótið í körfubolta fer fram þessa dagana í Tyrklandi og fóru 12 leikir fram í gær í fjórðu umferð riðlakeppninnar. Ein umferð er eftir af riðlakeppninni og eru línur farnar að skýrast í riðlunum fjórum. Í gær áttust m.a. Grikkir og Fílabeinsströndin við og þar höfðu Grikkir betur. Mið- herji gríska landsliðsins, Kostas Tsartsaris, er hér bláklæddur undir körfunni en hann lék með liði Grindvíkinga veturinn 1997-1998. Úrslit á bls. 2. Íris Guðmunds- dóttir, landsliðs- kona í alpagrein- um á skíðum, slasaðist á hné á æfingu í Sass Fee í Sviss í fyrra- dag. Talið er að Íris hafi skaddað krossband, lið- band og liðþófa. Hún er væntan- leg til Noregs á morgun þar sem hún mun fara í ítarlega skoðun hjá lækni. Ef í ljós kemur að Íris er með slitið krossband er ljóst að hún verður frá í rúmlega hálft ár. Íris keppti fyrir Íslands hönd á vetrar- ólympíuleikunum í Vancouver í Kanada í febrúar á þessu ári. Hún var í lok ársins 2009 valin skíða- kona ársins. Íris er aðeins 19 ára gömul og hefur verið búsett í Nor- egi undafarin fimm ár þar sem hún stundar nám í menntaskóla sam- hliða afreksskíðaþjálfun. seth@mbl.is Íris slasaðist illa á hné Íris Guðmundsdóttir Ívar Benediktsson iben@mbl.is Einn efnilegasti sundmaður Norðurlanda, Sindri Þór Jakobsson, hefur fengið norskt ríkisfang og keppir fyrir Noreg á næstu árum. Hann fékk nýtt vegbréf í hendurnar á dögunum og stefnir á að keppa í fyrsta sinn á stórmóti fyrir Noreg á Evr- ópumeistaramótinu í 25 m laug sem haldið verður undir lok ársins. „Nú er þetta allt gengið í gegn og Sindri hefur fengið send skjöl því til staðfestingar að hann er orðinn norskur ríkisborgari,“ sagði Sigurlín Þóra Þorbergsdóttir, móðir Sindra Þórs, í samtali við Morgunblaðið í gær. Sindri Þór, sem verður 19 ára í þessum mánuði, hefur búið í Bergen í Noregi í fimm ár. Hann hef- ur æft sund frá barnsaldri og vakti snemma at- hygli fyrir góðan árangur. Hann hefur margoft orðið norskur meistari. Sindri Þór setti Íslands- met í sundi á síðasta ári. Sindri Þór sagði í samtali við Morgunblaðið á síðasta ári að þær hugmyndir hefðu verið viðraðar við sig að hann gerðist norskur ríkisborgari. Hann væri að velta þeim kosti alvarlega fyrir sér, eink- um vegna þess að mikill aðstöðumunur væri á milli Íslands og Noregs þegar kæmi að stuðningi við sundmenn í fremstu röð. Sindri Þór hefur kynnst aðstöðumuninum þar sem hann hefur síð- ustu þrjú árin æft af og til með norska landsliðinu þrátt fyrir að vera íslenskur ríkisborgari. „Það hafði mikil áhrif á Sindra þegar hann vó og mat kosti þess og galla að gerast norskur rík- isborgari hversu miklu meira er gert fyrir sund- menn á vegum Sundsambandsins í Noregi og bet- ur komið til móts en þá. Sá stuðningur fer stigvaxandi með bættum árangri. Þessi ákvörðun var ekki auðveld. Hann hefur alltaf átt þá ósk að standa á verðlaunapalli á alþjóðlegu móti og sjá ís- lenska fána dreginn að hún og heyra þjóðsönginn leikinn,“ sagði Sigurlín, en ekki náðist í Sindra Þór í gærkvöldi. Sigurlín segir að Sindri Þór geri sér fyllilega grein fyrir að kröfur um lágmarksárangur inn á stórmót s.s. Ólympíuleika séu strangari í Noregi en á Íslandi. „Hann er alveg sáttur við það, enda gerir hann miklar kröfur til sjálfs sín. Sindri Þór hefur sagt að hann vilji ekki fara á stórmót eins og Ólympíuleika til þess eins að vera með. Hann vill láta til sín taka,“ segir Sigurlín. Framundan er stífar æfingar hjá Sindra Þór, sem stefnir á taka þátt í Evrópumeistaramótinu í 25 m laug sem haldið verður síðla í nóvember. Hann hefur ekki náð tilskildum árangri inn á mót- ið ennþá en stefnir á að ná honum í lok október. Þá tekur við fyrsta alþjóða mótið hans sem norsk- ur ríkisborgari. Sindri er orðinn norskur  Ákvörðunin var ekki auðveld  Aðstöðumunurinn er mikill  Stefnir á að keppa í fyrsta sinn fyrir Noreg á stórmóti undir lok ársins á EM í 25 m laug Stoke City stað- festi í gær að samningurinn sem gerður var við Eið Smára Guðjohnsen í fyrrakvöld sé ekki lánssamn- ingur heldur var- anlegur og gildi í eitt ár. Stoke hafði upphaflega gert samkomulag um lánssamning en á annasömum lokadegi félagaskipt- anna á Britannia þar sem félagið fékk Eið Smára, Jermaine Pennant og Marc Wilson, varð úr að Eiður skrifaði undir eins árs samning eftir að Stoke-menn kom- ust að því að samningur hans við Mónakó rennur út næsta sumar. Þeir sömdu við liðið úr furstaríkinu um kaupverðið sem ekki hefur verið gefið upp. Enskir fjölmiðar telja að Stoke greiði Mónakó 2 milljónir punda, sem jafngildir 370 milljónum króna. „Sú staðreynd að Eiður er nú okkar leikmaður gerir það að verk- um að þetta eru ennþá betri við- skipti fyrir félagið,“ segir Pulis á vef Stoke. Eiður Smári klæðist Stoke- búningnum í fyrsta sinn 13. þessa mánaðar þegar Stoke fær Aston Villa í heimsókn. „Við höfum nú tólf daga til að gera Eið Smára og Pennant tilbúna. Hvað þeir gera í leiknum á móti Villa veltur á því hversu mikið við náum að gera með þeim þar til að leiknum kemur,“ sagði Pulis. gummih@mbl.is Stoke keypti Eið Smára frá Mónakó Eiður Smári Guðjohnsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.